Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Úttekt á lífeyrissjóðum hafin

2.9.2010

Úttektarnefnd Landssamtaka lífeyrissjóðanna er tekin til starfa, en henni er ætlað að "gera útekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins í nóvember 2008," líkt og segir í samþykkt um nefndina. Um þriggja manna nefnd er að ræða og tilnefndi ríkissáttasemjari alla í nefndina, að ósk stjórnar landssamtakanna.

Formaður nefndarinnar er Hrafn Bragason lögfræðingur og fyrrum hæstaréttardómari, en auk hans sitja þau Guðmundur Heiðar Frímannsson, siðfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri, og Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík, í nefndinni. Nefndin hefur ráðið Kristján Geir Pétursson lögfræðing sem starfsmann.

Hann mun á næstu dögum setja sig í samband við lífeyrissjóðina og safna gögnum. Þá má búast við að nefndin vilji ræða við einstaka stjórnarmenn og starfsmenn sjóðanna.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


lífeyrismál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta