Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Rúmlega 400 manns á málþingi um lífeyrismál

20.1.2012

Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, talar fyrir fullum sal á málþingi um lífeyrismálMálþing BSRB, KÍ og BHM fór fram á Grand hótel í gær fyrir fullum sal en alls mættu rúmlega 400 manns til að hlíða á þau erindi sem þar voru flutt.

 

Eiríkur Jónsson, fyrrverandi formaður Kennarasambandsins tók fyrstur til máls og flutti stutt inngangserindi fyrir hönd bandalaganna þriggja. Fór hann þar yfir sögulegan aðdraganda lífeyriskerfisins, mikilvægi þess og sagði frá því sem BHM, BSRB og KÍ  hafa lengi haft áhuga því að fá útreiknað, þ.e. Hvað myndi það kosta TR ef lífeyriskjör opinberra starfsmanna yrðu færð niður til jafns við kjör almennu sjóðanna? Hvað myndi það kosta TR ef þeir opinberu lífeyrisþegar sem nú dvelja á elli- eða hjúkrunarheimilum og greiða dvöl sína sjálfir að fullu eða verulegu leyti hættu því? Því næst tók fundarstjóri, Elín Björg Jónsdóttir til máls og kynnti Benedikt Jóhannesson til leiks.

Benedikt sagði frá niðurstöðum skýrslu sem hann vann um samspil lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum, almannatrygginga og skatta. Af skýrslu Benedikts má sjá að tekjujafnandi áhrif greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins og skattgreiðslna valda því að munur á ráðstöfunartekjum er mun minni en munur á lífeyrisréttindum gefur til kynna. Lífeyrisgreiðslur frá almennum lífeyrissjóði, sem eru um 23% lægri en greiðslur frá A-deild LSR, gefa ráðstöfunartekjur sem eru aðeins um 5%-10% minni hjá þeim sem er í almenna lífeyrissjóðnum. Jafnframt má líta svo á að á móti skuldbindingu vegna lífeyrissjóða ríkisins komi bæði sparnaður vegna almannatrygginga og meiri skatttekjur en ella. Glærur með erindi Benedikts má nálgast neðst á síðunni ásamt skýrslunni.Benedikt Jóhannesson, á málþingi BSRB, KÍ og BHM í

Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar, flutti erindi undir heitinu „Lífeyristrygging - Samspil almannatrygginga og lífeyrissjóða". Þar fjallaði hún sérstaklega um lágmarksframfærslutryggingu TR, tekjutengingar og þróun lífeyristrygginar almanantrygginga samanborið við þróun launa og neysluverðs undanfarna áratugi. glærur með fyrirlestir Sigríðar má sömuleiðis finna neðst á síðunni.

Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra tók næst til máls þar sem hún fjallaði almennt um lífeyrismálin. Ráðherra fjallaði fyrst og fremst um áður þekktar staðreyndir og fór yfir áherslur starfshóps sem undanfarið hefur unnið að hugsanlegum breytingum á lífeyriskerfinu. Ráðherra var einnig tíðrætt um mikilvægi málaflokksins og nauðsyn þess að vinna málið á sáttagrundvelli og af yfirvegun þar sem um mikilar upphæðir væri að ræða sem vörðuðu framtíð landsmanna allra og ríkissjóðs. Ekkert var gefið uppi um hvernig ríkisstjórnin ætlaði að bregðast við vanda opinberu lífeyrissjóðanna en það undirstrikað enn og aftur að eitthvað þyrfti til bragðs að taka.

Sigríður Lillý forstjóri TR á málþingi um lífeyrismálGuðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, tók síðust til máls og fór stuttlega yfir það sem á undan hafði verið rætt. Fór hún einnig yfir sameiginlega sýn BSRB, KÍ og BHM á lífeyrismálin. Að því loknu sleit Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, málþinginu.

Hér að neðan má finna ræðu Eiríks Jónssonar, skýrslu Benedikts Jóhannessonar ásamt ítargögnum og glærurnar sem Sigríður Lillý notaðist við í erindi sínu.

Skýrsla Benedikts

Glærur Benedikts

Inngangserindi Eiríks Jónssonar

Glærur Sigríðar forstjóra TR


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta