Fréttir
Mikil aðsókn í starfslokanámskeið BSRB
7.2.2012
Starfslokanámskeið BSRB fór fram í síðustu viku en námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum. Félagsmenn BSRB og makar þeirra fjölmenntu á námskeiðið sem var yfirfullt og rúmlega það.
Fyrri námskeiðsdaginn fjallaði Ásta Arnardóttir frá Tryggingastofnun um almannatryggingakerfið og síðan var boðið upp á kynningu á sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins. Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur flutti loks erindið „Ár fullþroskans". Síðari daginn fór Páll Ólafsson frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og Arent Claessen auk Þórdísar Yngvadóttur frá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga yfir lífeyrismálin.
Að lokum kom svo leikkonan góðkunna Edda Björgvinsdóttir í heimsókn en hún hefur undanfarið gert það gott með fyrirlestri sínum „Jákvæðni, húmor og hlýlegt viðmót". Færri komust að en vildu á námskeiðið að þessu sinni en það stendur félagsmönnum aðildarfélaga BSRB og mökum þeirra til boða endurgjaldslaust.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























