Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Styrkjum lífeyriskerfið í þágu allra

3.1.2005

Eitt veit ég að innan BSRB er það viðhorf almennt ríkjandi að styrkja beri og efla lífeyriskerfið í þágu allra. Það verður hins vegar ekki liðið að grafið verði undan lífeyrisréttindum starfsfólks í almannaþjóðnustu eins og því miður örlar á nú um stundir jafnvel af hálfu aðila sem síst skyldi, segir Ögmundur jónasson formaður BSRB m.a. í grein á heimasíðu sinni ogmundur.is . Greinin nefnist Hvernig á að leiðrétta misréttið?

Fyrr í greininni segir Ögmundur: Nú er mér spurn. Getur verið að mönnum þyki of mikið lagt til hliðar í lífeyrissparnað? Ég veit að margir gagnrýnendur lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna eru þessarar skoðunar. Þetta eiga þeir að segja opinberlega í stað þess að naga í kjör sem sem fjölmennir hópar launafólks hafa barist fyrir um áratuga skeið. Við þessa aðila segi ég, talið hreint út og vífillengjulaust: Eruð þið að krefjast þess að lífeyrisréttur sjúkraliða, lögreglumanna, strætisvagnastjóra, skrifstofufólks, tollvarða, læknaritara, fangavarða og fl. og fl. verði skertur – eða viljið þið sambærilegan rétt til allra? Hinu síðara er ég fylgjandi og tel ég að þar tali ég fyrir opinbera starfsmenn almennt.

Sjá grein Ögmundar


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta