Fréttir
Formenn BSRB og KÍ heimsækja Palestínu
4.1.2005
Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands komu til Jerúsalem í gær og héldu rakleiðis til Nablus á Vesturbakkanum þar sem höfuðstöðvar Alþýðusambands Palestínu eru. Þeir áttu fundi með forystufólki þess og Kennarasambandsins og heimsóttu jafnframt Læknishjálparsamtökin sem standa fyrir víðtæku hjálparstarfi og heilsugæslu. Þá skoðuðu þeir gömlu borgina en hún og Balata flóttamannabúðirnar hafa orðið fyrir sífelldum árásum Ísraelshers.
Þessi ferð íslenskra forystumanna úr verkalýðshreyfingunni er hin fyrsta sinnar tegundar héðan. Ferðin er skipulögð með milligöngu Félagsins Ísland-Palestína. Á næstu dögum munu Eiríkur og Ögmundur fara um Vesturbakkann og kynna sér ástand mála en jafnframt vonast þeir til að komast til Gaza en ferðir þangað eru miklum takmörkunum háðar af hálfu hernámsliðsins. Þá munu þeir hitta að máli fulltrúa Mannréttindasamtaka lækna og Alþýðusambandsins í Ísrael.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























