Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Ástandið á herteknu svæðunum vægast sagt slæmt

5.1.2005


Ögmundur Jónasson, Borgþór Kjærnested og Eiríkur Jónsson við húsarústir í Nablus.

Ögmundur Jónasson formaður BSRB er nú staddur í Nablus í Palestínu í boði Palestinsku verkalýðshreyfingarinnar. Með honum í för er Eiríkur Jónsson formaður KÍ. Borgþór Kjærnested félagi í félaginu Ísland Palestína hitti þá Ögmund og Eirík í Tel Aviv. Auk BSRB og KÍ hafði forseta ASÍ verið boðið til Palestínu en hann sá sér ekki fært að fara.

"Ástandið á herteknu svæðunum er vægast sagt slæmt. Á svæðum Palestínumanna er allt í hers höndum í bókstaflegum skilningi og eru það hendur ísraleska hersins sem hér ráða öllu. Okkur er sagt að nú í aðdraganda kosninganna hafi heldur dregið úr niðurlægingunni sem Palestínumenn eru daglega beittir á eftirlitsstöðvum ísraelska hersins ( á Vesturbakkanum eru þær um 100 talsins).  Vitað er að fjöldi útlendinga er á svæðinu og er það talið líklegasta skýringin á þessu óvenjulega afskiptaleysi. Hins vegar er ljóst að smásmugulega úthugsuð grimmd og mannfyrirlitning finnur sér alltaf farveg. Þegar við vörum á leið út úr Jerúsalem á mánudagsmorguninn í grennd við kynþáttamúrinn illræmda virtust tveir kostir blasa við um akstursleiðir. Önnur malbikuð og greðifær að sjá. Hún var svo til auð. Hin leiðin, ómalbikuð með svo djúpum drullupollum eftir úrhellisrigningu næturinnar að jafna mátti við minniháttar stöðuvötn. Ísraelskur hemaður vísaði palestínskum bílstjóra okkar að aka drullupollaleiðina. Ég spurði, hvers vegna hann vísaði okkur þessa leið en ekki hina greiðfærari. Það er einmitt vegna þess að hin leiðin er í lagi, svaraði bílstjóri okkar að bragði. Við höfðum séð nógu mikið til að skilja hvað hann átti við," segir Ögmundur m.a. í grein á heimasíðu sinni.

Ögmundur mun skrifa reglulega pistla frá heimsókninni á heimasíðu sinni. Sjá greinina Palestína: Við viljum réttlátann frið!


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta