Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Tungumálafræðsla BSRB að hefjast

10.1.2005

Tungumálafræðsla BSRB er að fara af stað. Á höfuðborgarsvæðinu er það Framvegis, miðstöð um símenntun, sem sér um námskeiðin og á landsbyggðinni eru það símenntunarmiðstöðvarnar. Fyrstu námskeiðin hefjast í lok mánaðarins og er skráning á námskeiðin hafin. Hér er um að ræða afar metnaðarfullt átak í að efla tungumálakunnáttu félagsmanna í BSRB.  

Boðið verður upp á námskeið í ensku, dönsku, spænsku, íslensku ritmáli, þýsku og frönsku fyrir félagsmenn BSRB árin 2005 og 2006. Í boði verður bæði einingabært nám fyrir framhaldsskóla, 60 kst. og einnig styttri námskeið þar sem höfuðáhersla verður lögð á talað mál, 30 kst. Stefnt er að því að minnsta kosti 1.500 manns sæki þessi námskeið. Lengra námskeiðið mun kosta 33.000 kr. en styttri námskeiðin 18.000 kr.

BSRB og Framvegis miðstöð um símenntun undirrituðu samning um tungumálafræðslu BSRB 9. desember sl.

Nánari upplýsingar og skráning:
Höfuðborgarsvæðið - 5814914 - http://www.fa.is/framvegis/bsrbmal/ 
Vesturland - 4372390 -www.simenntun.is   
Vestfirðir - 4565025 - www.frmst.is   
Norðurland vestra - 4556010 - http://www.farskolinn.is        
Eyjafjörður - 4605720 - www.simey.is  
Þingeyjarsýslur - 4640454 - www.fraething.is   
Austurland - 4712838 - www.fna.is   
Suðurland - 4808155 - www.sudurland.is/fraedslunet  
Vestmannaeyjar - 4811950 - www.viska.eyjar.is  
Suðurnes - 4217500 - www.mss.is   

Auglýsing um tungumálafræðsluna

Tímasetning tngumálafræðslunnar á höfuðborgarsvæðinu
Danska    Enska    Spænska 

Forsaga þessa máls er að 40. þing BSRB haustið 2003 ályktaði að BSRB geri átak í tungumálafræðslu fyrir félagsmenn líkt og gert var með tölvufræðslu árið 2001, en þá sóttu um 1.500 félagsmenn tölvunámskeið á vegum BSRB. Gerð var könnun meðal félagsmanna í haust um áhuga á tungumálanámi og fengust vel á annað þúsund svör. Reyndist áhuginn á tungumálanámi mjög mikill og vildu um tveir þriðju þeirra sem svöruðu nám sem yrði metið til eininga í framhaldsskóla en þriðjungur styttra nám. Mestur var áhuginn á ensku, spænsku og dönsku.

Framvegis hefur samið við símenntunarmiðstöðvarnar um allt land til að annast námskeið fyrir félagsmenn utan höfuðborgarsvæðisins og verða þau á sama verði og námsefnið samræmt.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


umhverfismál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta