Fréttir
Staða miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði
19.1.2005
Nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins sem átti að kanna með hvaða hætti væri unnt að sporna við því að fólks sé látið gjalda aldurs á vinnustað, hvort heldur er með uppsögnum eða mismunun í starfi hefur sent frá sér skýrslu þar sem lagt er til að stjórnvöld hefji nú þegar sérstakt fimm ára verkefni til að styrkja stöðu þessa hóps á vinnumarkaði. Fulltrúi BSRB í nefndinni var Arna Jakobína Björnsdóttir formaður KJALAR.
Nefndin var skipuð í kjölfar þess að Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu Ögmundar Jónassonar formanns BSRB um málið. Í nefndinni sátu fulltrúar vinnumarkaðarins og stjórnmálaflokkanna.
Í séráliti fulltrúa BSRB, ASÍ, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna er m.a. lagt til að sett verði rammalöggjöf sem innleiði efnisatriði tilskipunar Evrópusambandsins sem lúta að eldra fólki á vinnumarkaði. Með því verði réttarstaða eldra fólks á vinnumarkaði bætt og tryggt að því verði ekki mismunað vegna aldurs.
Sjá skýrsluna í heild sinni
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























