Fréttir
Hafnarfjörður segi sig úr launanefnd sveitarfélaga
21.1.2005
Aðalfundur Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, sem haldinn var 19. janúar, skoraði á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að segja sig úr launanefnd sveitarfélaga nú þegar og taka upp sjálfstæða samninga við sitt starfsfólk í stað þess að setja sig möglunarlaust undir þá grjóthörðu láglaunapólitík sem rekin er af hálfu launanefndar sveitarfélaga. Ályktunin fer hér á eftir:
Aðalfundur Starfsmannafélags Hafnarfjarðar haldin í Álfafelli 19/1 árið 2005 skorar á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að segja sig úr launanefnd sveitarfélaga nú þegar og taka upp sjálfstæða samninga við sitt starfsfólk í stað þess að setja sig möglunarlaust undir þá grjóthörðu láglaunapólitík sem rekin er af hálfu launanefndar sveitarfélaga.
Fundurinn spyr hvort sjálfstæð launastefna sé ekki hluti af stjórnun bæjarfélagsins og hvort það standist hreinlega landslög að kjörnir bæjarfulltrúar afsali sér fullnaðarumboði í jafn veigarmiklum málum og hér er um að ræða til þriðja aðila? Svo afgerandi umboði að bæjarstjórn Hafnarfjarðar þarf ekki einu sinni að bera upp til samþykktar í bæjarstjórn kjarasamninga við sína eigin starfsmenn og lúta í einu og öllu niðurstöðum launanefndar sveitarfélaga ?
Aðalfundurinn skorar á bæjastjórn Hafnarfjarðar að taka upp sjálfstæða launastefnu og minnir á að gott og metnaðarfullt starfsfólk sem vinnur vel og af trúmennsku fyrir sitt bæjarfélag, eins og STH félagar allir sem einn gera, þurfa auðvitað að búa við alvöru launastefnu. Því fer víðs fjarri að svo sé um þessar mundir og ljóst að svo mun ekki verða meðan að bæjarstjórn Hafnarfjarðar bindur trúss sitt við launanefnd sveitarfélaga og þá grjóthörðu láglaunapólitík sem þar er viðhöfð gagnvart bæjarstarfsmönnum."
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























