Fréttir
Ögmundur gagnrýnir afstöðu ASÍ
27.1.2005
Ögmundur Jónasson fjallar um eftirlaunafrumvarpið og afleiðingar þess á heimasíðu sinni. Þar bendir hann á að það hafi allan tímann verið ljóst að fyrrverandi ráðherrar og alþingismenn gætu verið á eftirlaunum, jafnframt því að gegna launaðri vinnu fyrir ríkið. Hann fjallar líka um viðbrögð ASÍ við afleiðingum frumvarpsins.
Ögmundur segir m.a.: "Ömurlegastur er þó hlutur Alþýðusambands Íslands í þessu máli og get ég fullvissað félaga mína á þeim bænum um að nú er farið að þykkna í okkur sem stöndum að hinum opinberu sjóðum. ASÍ leyfir sér að spyrða saman sérsniðinn lífeyrissjóð ráðherra og þingmanna annars vegar og lífeyrissjóði ríkis- og bæjarstarfsmanna hins vegar, sem BSRB og önnur samtök innan almannaþjónustunnar hafa barist fyrir áratugum saman, og heimtar að þegar lagabreyting verði gerð á fyrrnefnda sjóðnum verði einnig tekið á hinum síðarnefndu. Og hvað skal gert? Réttindin rýrð! Augljóst er að þetta felst í kröfu Alþýðusambandsins."
Sjá greinina í heild sinni á heimasíðu Ögmundar
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























