Saga BSRB
BSRB – Bandalag starfsmanna ríkis og bæja

Bandalag starfsmanna ríkis og bæja var stofnað á kennarastofu Austurbæjarskólans í Reykjavík 14. febrúar 1942.
BSRB eru stærstu hagsmunasamtök opinberra starfsmanna á Íslandi. Í ársbyrjun 2006 voru aðildarfélög bandalagsins 28 og fjöldi skráðra félagsmanna 18 þúsund. Þar af voru konur um 70%. Gjaldgengir meðlimir í aðildarfélög BSRB eru allir þeir sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum. Þá eiga þeir einnig rétt til aðildar sem vinna hjá stofnunum og fyrirtækjum sem starfa í almannaþágu en eru ekki rekin af opinberum aðilum.
Ágrip af sextíu ára sögu
![]() |
|
Sigurður Thorlacius |
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja var stofnað í Reykjavík 14. febrúar árið 1942. Stofnfélögin voru 14 og höfðu á að skipa um 1550 félagsmönnum. Tildrögin að stofnun bandalagsins voru ríkjandi dýrtíð allt frá 1939 sem rekja má til heimsstyrjaldarinnar síðari og nánasta aðdraganda hennar. Umræðan um nauðsyn heildarsamtaka var þegar hafin um sumarið 1939. Stórt skref á þeirri braut var svo stigið 28. janúar 1941 er fulltrúaráði félaga opinberra starfsmanna var komið á fót. Hlutverk þess var að koma á framfæri sameiginlegum kröfum félaganna og vinna að stofnun heildarsamtaka.
Tilkoma BSRB hleypti nýjum krafti í kjarabaráttu opinberra starfsmanna sem varð hvort tveggja í senn, öflugri og sýnilegri en fyrr. Þegar á fyrstu starfsárunum náðu BSRB og aðildarfélögin umtalsverðum árangri í réttinda- og kjaramálum. Skýrt dæmi þar um eru lög um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins frá árinu 1943. Fyrir nýstofnuð samtök var lífeyrissjóðslöggjöfin mikill sigur og sést ef til vill best á því að það var ekki fyrr en aldarfjórðungi síðar að farið var að stofna almenna lífeyrissjóði fyrir launafólk.
Samningsréttur og verkfallsréttur, líkt og tíðkaðist á hinum almenna vinnumarkaði, voru á stefnuskrá BSRB frá stofnun en ekkert þokaðist á þeim vettvangi fyrstu tvo áratugina. Kjör flestra opinberra starfsmanna voru því sem fyrr ákveðin með lagasetningu á Alþingi. Fyrir tilstilli BSRB og í samvinnu við ríkisvaldið tóku ný launalög gildi árið 1945. Lögin voru mikið framfaraskref enda leystu þau af hólmi löngu úrelt lög frá árinu 1919. Í þeim fólust margvíslegar réttar- og kjarabætur en einnig formleg viðurkenning ríkisvaldsins á BSRB og forystuhlutverki þess í málefnum opinberra starfsmanna.
Fleiri atriði frá bernskuárum samtakanna er sérstaklega vert að nefna. Lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna frá 1954 voru afar merkur áfangi í kjara- og réttindabaráttu BSRB og þau urðu þegar fram liðu stundir fyrirmynd að auknum réttindum fyrir annað launafólk. Lögin fólu m.a. í sér ákvæði um fæðingarorlof og veikinda- og orlofsrétt. Endurskoðuð launalög litu svo dagsins ljós árið 1955. Hvort tveggja var afrakstur af áralöngum samningaviðræðum við ríkisvaldið.
Um 1960 var krafa BSRB um samningsrétt borin fram af meiri þunga en nokkru sinni fyrr. Efnahagsráðstafanir viðreisnarstjórnarinnar, þar á meðal stórfelld gengisfelling árið 1960 með tilheyrandi kjaraskerðingu, gáfu þeirri kröfugerð byr undir vængi. Og baráttan skilaði árangri árið 1962 en þá fékk BSRB takmarkaðan samningsrétt gagnvart ríkinu. Starfsmannafélög sveitarfélaga fengu samningsréttinn þetta sama ár og gilti um hann reglugerð sem byggði á lögunum um samningsrétt BSRB við ríkið. Samningsrétturinn var án verkfallsréttar og gerðardómur, svonefndur Kjaradómur, hafði síðasta orðið í ágreiningsmálum viðsemjenda. Markaði þessi áfangi þáttaskil í sögu hreyfingarinnar enda þótt vissulega kæmi fljótt á daginn að dómstólaleiðin dugði skammt í sókninni til bættra kjara.
![]() |
|
Munaðarnes í Borgarfirði |
Hreyfingin öðlaðist nýjan kraft á sjöunda áratugnum og meðlimum aðildarfélaganna fjölgaði úr tæplega 4.500 árið 1960 í rúmlega sjö þúsund árið 1970. Fjárhagslegt bolmagn samtakanna óx með fjölgun félaga og öll starfsemi varð mun fjölþættari en fyrr. Vinna að kjaramálum varð langtum umfangsmeiri í kjölfar samningsréttarins en einnig glitti í merki þess að gömul markmið í fræðslu- og orlofsmálum mundu senn ná fram að ganga. Fyrsta trúnaðarmannanámskeiðið á vegum BSRB var haldið í Borgarnesi árið 1967. Framkvæmdir við uppbyggingu orlofsheimilahverfis í landi Munaðarness í Borgarfirði hófust árið 1969 og fyrstu orlofshúsin voru tekin í notkun árið 1971. Þá var byggðinni í Munaðarnesi frá upphafi ætlað að verða miðstöð fræðslustarfs fjarri ys og þys borgarlífsins og reglubundin fræðslustarfsemi hófst þar 1971. Þessir tveir málaflokkar, orlofs- og fræðslumál, hafa ásamt með kjara- og réttindamálum verið aðalverkefni heildarsamtakanna og aðildarfélaganna á síðustu áratugum.
Ný lög um kjarasamninga frá 1973 fólu í sér breytta stöðu samtakanna þótt enn um sinn héldi Kjaradómur velli. Gerð sérkjarasamninga við ríkið fluttist til aðildarfélaganna en aðalkjarasamningur var sem fyrr í höndum BSRB. Hin meginbreytingin var ekki síður mikilsverð því að nú voru allir sem fengu laun eftir samningum félaganna skyldaðir að greiða til þeirra félagsgjöld. Innan tíðar völdu langflestir að gerast fullgildir meðlimir og konur urðu í fyrsta sinn meirihluti félagsmanna innan bandalagsins. Það segir meira en mörg orð um áhrif þessara laga að árið 1978 höfðu aðildarfélög BSRB 14.500 manns innan sinna raða, borið saman við 8.500 árið 1972. En í þessu sambandi er vert að minna á að fjölgun félagsmanna speglar einnig aukna almannaþjónustu og þar með fjölgun opinberra starfsmanna.
Stór áfangi var í höfn árið 1976 þegar BSRB fékk verkfallsrétt um gerð aðalkjarasamnings. Tvívegis fóru samtökin í allsherjarverkfall, árin 1977 og 1984. Í framhaldi af verkfallsréttinum var vinnudeilusjóður BSRB stofnaður 1979 í því skyni að styrkja stöðu aðildarfélaganna í vinnudeilum. Jafnframt er sjóðnum heimilt að aðstoða stéttarfélög utan bandalagsins og hefur það verið gert oftar en einu sinni.
![]() |
|
Þátttakendur á trúnaðar- |
Síðla árs 1986 tókust sættir milli BSRB og ríkisvaldsins um breyttan samningsrétt og var samkomulagið í samræmi við vilja samtakanna. Með nýjum lögum sem tóku gildi í ársbyrjun 1987 fengu aðildarfélögin samnings- og verkfallsréttinn í sínar hendur.
Starfsemi og stofnanir
Þing BSRB fer með æðsta vald í öllum málefnum bandalagsins og er það haldið þriðja hvert ár. Aðildarfélögin kjósa fulltrúa á þingið og fer fulltrúafjöldi einstakra félaga eftir fjölda félagsmanna. Alls voru þingfulltrúar 216 á þingi bandalagsins í október 2003. Á þingum er unnið að stefnumótun til næstu þriggja ára og þar fer fram kjör formanns, gjaldkera, ritara og tveggja varaformanna. Þeir mynda framvæmdanefnd sem starfar í umboði stjórnar á milli stjórnarfunda. Auk þessara fimm einstaklinga er stjórn bandalagsins skipuð formönnum allra aðildarfélaganna og er aðalfundur stjórnar haldinn árlega.

Félagamiðstöðin að Grettisgötu 89. Þar hafa skrifstofur BSRB verið frá árinu 1978.
Skrifstofa BSRB er til húsa í Félagamiðstöðinni að Grettisgötu 89 í Reykjavík og hefur svo verið frá 1978. Þar eru innt af hendi ýmis störf fyrir samtökin og aðildarfélög þess. Meðal þess sem skrifstofan annast er hagfræðiþjónusta og lögfræðiþjónusta við félögin, sem og þjónusta í menntunarmálum. Þá sjá starfsmenn bandalagsins um alhliða upplýsingaþjónustu við félagsmenn aðildarfélaganna, veita m.a. upplýsingar um réttindi og kjör, samninga og fleira. Einnig sér skrifstofan um útleigu orlofshúsa yfir vetrartímann í Munaðarnesi, Stóru-Skógum og á Eiðum en húsin á þessum stöðum eru nú 103 talsins. Aðildarfélögin sjá hins vegar um ráðstöfun og leigu á húsunum um páska og yfir sumartímann.

Svipmynd frá þingi BSRB í október 2003. Á þinginu sátu yfir 200 þingfulltrúar og unnu að stefnumótun fyrir bandalagið til næstu þriggja ára.
Upplýsingamiðlun til félagsmanna er mikilvægur þáttur starfseminnar og um þá þræði er haldið á skrifstofunni. Upphafið að útgáfu tímarits má rekja allt til 1944. Málgagnið hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina en nefnist nú BSRB-tíðindi. Auk tímaritsins hafa samtökin haldið úti heimasíðu frá árinu 1996 og voru fyrst íslenskra verkalýðssamtaka til að nýta sér veraldarvefinn með þeim hætti. Sem upplýsingaveita gegnir heimasíðan stöðugt vaxandi hlutverki. Samhliða þessu hefur bandalagið staðið að ýmsri annarri útgáfu, þar á meðal á skýrslum og bæklingum er varða margvísleg málefni opinberra starfsmanna, um fyrirkomulag almannaþjónustunnar, og loks á námsefni til fræðslustarfs.
Í síbreytilegu samfélagi hefur vegur fræðslumála, sí- og endurmenntunar, vaxið stórum. Einn afrakstur aðalkjarasamnings BSRB árið 1980 var sérstakur starfsmenntunarsjóður starfsmanna ríkisins sem tók til starfa 1982. Hlutverk sjóðsins er að efla og auðvelda starfsmenntun ríkisstarfsmanna innan BSRB. Sex bandalagsfélög eru nú aðilar að sjóðnum en önnur félög reka starfsmenntunarsjóði á eigin vegum.

BSRB hóf sérstakt átak í tölvufræðslu haustið 2001. Hér má sjá nemendur á fyrsta námskeiðinu, ásamt kennara, hluta fræðslunefndar BSRB og starfsmanna hennar.
Fræðslunefnd BSRB skipuleggur námskeið í samvinnu við upplýsinga- og fræðslufulltrúa samtakanna. Markmið menntunarstarfsins er að miðla fróðleik og þjálfun til félagsmanna sem á að nýtast jafnt í starfi og á vettvangi félagsmála. Á vegum fræðslunefndar eru reglulega haldin trúnaðarmannanámskeið og starfslokanámskeið. Þá hefur BSRB lagt mikla áherslu á tölvufræðslu og hafa félagsmenn átt kost á fjölbreyttu námi. Sérstakt átak hófst á þessu sviði árið 2001 í samvinnu við Nýja tölvu- og viðskiptaskólann. Það er til marks um þörfina og áhugann á þessum námskeiðum að fyrsta skólaárið, frá hausti 2001 og fram á vor 2002, sóttu þau hátt í tvö þúsund manns. Loks er þess að geta að BSRB er aðili að Félagsmálaskóla alþýðu og hafa félagsmenn sótt námskeið þar í auknum mæli á síðari árum.

Mikil aðsókn er að starfslokanámskeiðum BSRB. Þar kynna fyrirlesarar réttindi og félagsleg úrræði fyrir eldri borgara, sem og þá þjónustu sem þeir eiga kost á. Myndin er frá námskeiði í Félagamiðstöðinni árið 1999.
Afl til aukins jöfnuðar og réttlætis
BSRB er afgerandi þjóðfélagsafl sem tekur afstöðu til jafnréttismála, vinnuverndarmála, skattamála, húsnæðismála og velferðar- og kjaramála almennt. Þá geta aðildarfélögin samræmt áherslur í kjarasamningum á vettvangi bandalagsins og oftar en ekki sameinast þau um félagslegan ramma við gerð þeirra, þar á meðal um réttindamál, vinnuverndar- og lífeyrismál. Um lagasetningu sem varðar opinbera starfsmenn hefur BSRB jafnan staðið vörð og reynt að gæta réttinda umbjóðenda sinna. Ný lög um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins voru sett árið 1997 og átti bandalagið stóran þátt í að móta þau. Þá var lögunum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna breytt verulega árið 1996.

Fjölmenn trúnaðarmannaráðstefna BSRB á Akureyri í febrúar árið 2000. Fræðsla, skoðanaskipti og samþykkt ályktun um að gengið yrði hið fyrsta frá samningum um réttindamál starfsmanna í almannaþjónustu. Kröfurnar snerust m.a. um stofnun sjúkrasjóðs, um aukinn rétt til fjarvista frá vinnu vegna veikinda barna, um aukin réttindi og bætta starfsaðstöðu trúnaðarmanna, lengingu fæðingarorlofs og stofnun sérstaks fæðingarorlofssjóðs.
Stjórn BSRB tilnefnir fulltrúa í ýmsar nefndir og ráð á vegum opinberra aðila. Svo aðeins fáein dæmi séu nefnd á BSRB fulltrúa í stjórn Jafnréttisráðs, Starfsmenntaráðs félagsmálaráðuneytisins, Vinnueftirlits ríkisins, Vinnumálastofnunar og Atvinnuleysistryggingasjóðs.
BSRB hefur löngum átt gott samstarf við önnur heildarsamtök launafólks hér á landi. Náið samstarf hefur verið við Bandalag háskólamanna og Kennarasamband Íslands um ýmis réttindamál. Nýlegt dæmi um það er m.a. stofnun fjölskyldu- og styrktarsjóðs en gengið var frá samkomulagi þar um við ríki og sveitarfélög árið 2000. Þá er bandalagið aðili að fjölþjóðlegum samtökum launafólks á hinum Norðurlöndunum, í Evrópu og á heimsvísu.
![]() |
|
Svipmynd frá fjölmennri |
Enginn vafi leikur á mikilvægi verkalýðshreyfingarinnar fyrir launafólk og þjóðfélagið í heild. Á þeim rösku 60 árum sem nú eru liðin frá stofnun BSRB hefur samfélagið tekið stakkaskiptum og lífskjör þjóðarinnar eru á engan hátt sambærileg við það sem tíðkaðist upp úr 1940. Barátta BSRB og annarra samtaka launafólks á undangengnum áratugum hefur borið ríkulegan ávöxt: skilað auknum réttindum, betri kjörum og meiri velferð almenningi til handa. Afar fáar úrbætur hafa komið upp í hendurnar á launafólki fyrirhafnarlaust – þvert á móti hafa allir meiriháttar áfangar og sigrar náðst í krafti samtakamáttar og samvinnu fjöldans.
Þorleifur Óskarsson
Um BSRB
Á döfinni
Leit




























