Beint á leiðarkerfi vefsins

Skrifstofa BSRB

Skrifstofa BSRB er til húsa í Félagamiðstöðinni, Grettisgötu 89, í Reykjavík.

Skrifstofan innir af hendi margs konar þjónustu við aðildarfélögin og einstaklinga í félögum opinberra starfsmanna. Upplýsingamiðlun til einstaklinga er mikilvægur þáttur í starfsemi skrifstofunnar. Oftast eru það upplýsingar um réttindi viðkomandi einstaklings. Þá sér skrifstofa BSRB um útleigu orlofshúsanna yfir vetrarmánuðina. Útgáfustarfsemi bandalagsins er á vegum skrifstofunnar. Tölvuþjónusta við félögin er vaxandi þáttur í starfinu. Auk þess sér starfsfólkið um daglegan rekstur bandalagsins og samskipti innanlands sem utan. Á skrifstofunni starfa níu manns.

Skrifstofan er opin alla virka daga frá 8-16, en svarað er í síma frá klukkan 9-16.

Hagfræðiþjónusta: Hagfræðingur BSRB sér um margs konar hagfræðiþjónustu við aðildarfélög BSRB. Hann aðstoðar við gerð kjarasamninga og sér um útreikninga á ýmsum þjóðhagslegum stærðum. Meðal málaflokka sem hagfræðingar BSRB fjalla um eru lífeyrismál, skattamál, fjárlagagerð, starfsréttindamál, húsnæðismál, heilbrigðisþjónustan, og önnur mál sem snerta íslenska velferðarkerfið.

Lögfræðiþjónusta: BSRB veitir félögunum ýmsa lögfræðiþjónustu. Fyrirkomulag þeirrar þjónustu er þannig að einstaklingur, sem telur að á rétti sínum sé brotið, leitar aðstoðar stéttarfélags síns. Félögin geta síðan leitað lögfræðilegs álits ef þurfa þykir, en fastir viðtalstímar lögfræðings eru á skrifstofu BSRB. Telji aðilar ástæðu til að láta reyna á málið fyrir dómstólum leita þeir til stjórnar BSRB um að bandalagið taki að sér rekstur málsins. Stjórn BSRB metur svo hvort ástæða sé fyrir bandalagið að standa straum af kostnaði vegna málarekstursins. Skilyrði þess að BSRB taki mál að sér er að það sé talið hafa fordæmisgildi eða almennt gildi fyrir réttindi launafólks. Þá hefur BSRB rekið mörg mál sem tengjast verkföllum aðildarfélaganna og deilum um undanþágulista í verkföllum.

Upplýsingamiðlun: Auk upplýsingamiðlunar til einstaklinga miðlar skrifstofa BSRB margs konar upplýsingum til félaganna og allra sem þess óska. Þá heldur BSRB úti öflugum upplýsingavef þar sem nálgast má allar helstu upplýsingar um starfsemi bandalagsins, auk ýmiss annars fróðleiks sem varðar félagsmenn. Dreifibréf BSRB kemur reglulega út og BSRB-tíðindi

Félagamiðstöðin: Félagamiðstöðin að Grettisgötu 89 hýsir höfuðstöðvar BSRB. Félagamiðstöðin er sameign BSRB og nokkura aðildarfélaga bandalagsins sem eru með skrifstofur í húsnæðinu. Auk skrifstofuaðstöðu eru fundarsalir, mötuneyti og samkomusalur sem nýtist til námskeiða, funda og mannamóta.

Auk BSRB eru eftirtalin félög með skrifstofur í húsinu: Landssamband lögreglumanna, Póstmannafélag Íslands, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, SFR starfsmannafélag í almannaþjónustu, Félag flugmálastarfsmanna ríkisins og Félag íslenskra flugumferðastjóra. Auk þess er í húsinu Styrktarsjóður BSRB.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


nýsköpun

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta