Beint á leiðarkerfi vefsins

EFTA-ráðgjafanefnd

Ráðgjafarnefnd Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) er vettvangur launþegasamtaka og vinnuveitendasambanda aðildarlandanna fjögurra, Íslands, Liechtensteins, Noregs og Sviss. Ráðgjafarnefndin er tengiliður milli aðila vinnumarkaðarins í EFTA-ríkjunum og Evrópusambandinu og gerir í samstarfi við ráðgjafarnefnd Evrópusambandsins sameiginlegar álitsgerðír á málefnum sem eru efst á baugi. Þá vinnur ráðgjafarnefnd EFTA að gerð sjálfstæðra álitsgerða sem kynntar eru fyrir fastanefnd EFTA í Brussel og ráðherrum EFTA-ríkjanna. Einnig fara fram óformlegir viðræðufundir um stefnumál með undirnefndum og vinnuhópum, sem starfa undir fastanefndinni. Þá eru haldnir fundir með þingmannanefnd EFTA.

Eftirfarandi málaflokkar hafa sérstakan forgang hjá ráðgjafarnefndinni og fyrir þá hefur nefndin skipað sérstaka skýrslugjafa sem starfa sem sérfræðingar og verkefnastjórar: Innri markaðurinn, atvinnu- og félagsmál, stækkun ESB og EES, samskipti EFTA við þriðju lönd, Lissabon-áætlunin, Stjórnarskrá ESB o.fl..

Ráðgjafarnefndin heldur venjulega þrjá til fjóra starfsfundi á ári og einn sameiginlegan fund árlega með fastanefnd EFTA. Tvisvar á ári halda aðilar vinnumarkaðarins innan EFTA-ríkjanna fundi með ráðherrum EFTA-ráðsins – með ráðherrum allra EFTA-ríkjanna fjögurra á vorin og á haustin með ráðherra í forsæti. Í tengslum við haustfundina skipuleggur ráðgjafarnefndin venjulega ráðstefnur um málefni sem eru henni mikilvæg.

Skýrsla um EFTA-fund 12 og 13 nóvember 2008

Skýrsla um verkefni EFTA-ráðgjafarnefndarinnar maí 2005

Skýrsla Ráðgjafarnefndar EFTA um Þróunarsjóð EFTA

Skýrsla EFTA-ráðgjafanefndar fyrir árið 2003  


Vinnuréttur

Póstlistaskráning


Á döfinni


fræðslumál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta