Fæðingar- og foreldraorlof
Fæðingarorlof
Allir foreldrar á vinnumarkaði eiga rétt til fæðingar- og foreldraorlofs. Það á jafnt við foreldra sem eru starfsmenn eða þá sem eru sjálfstætt starfandi. Foreldrar utan vinnumarkaðar og foreldrar í námi eiga rétt til fæðingarstyrks.
Helstu markmið laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof er að tryggja barni samvistir við báða foreldra og til að gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.
Lengd orlofs
Fæðingarorlof er leyfi starfsmanns, sem vinnur a.m.k. 25% starf, frá launuðum störfum sem stofnast við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur.
Foreldrar eiga sjálfstæðan rétt sem ekki er framseljanlegur til fæðingarorlofs í allt að þrjá mánuði hvort um sig vegna fæðingar, frumættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur. Einnig eiga foreldrar sameiginlegan rétt á þremur mánuðum til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða foreldrar skipta með sér.
Meginreglan er að rétturinn til fæðingarorlofs stofnast við fæðingu barns eða þegar það kemur inn á heimlið við ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur en fellur niður þegar barnið nær 36 mánaða aldri.
Undantekningar framangreinds eru eftirfarandi.
Foreldri er heimilt að hefja töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag sem staðfest skal með læknisvottorði.
Þá skal foreldri öðlast rétt til fæðingarorlofs í allt að níu mánuði hafi hitt foreldrið andast á meðgöngu barns og barnið fæðist lifandi.
Við ættleiðingu getur fæðingarorlofið hafist í upphafi ferðar þurfi foreldrar að sækja barnið til annarra landa.
Réttur til fæðingarorlofs er bundinn því að foreldri fari með forsjá barnsins eða hafi sameiginlega forsjá ásamt hinu foreldrinu þegar taka fæðingarorlof hefst. Forsjálaust foreldri á rétt til fæðingarorlofs ef fyrir liggur samþykki foreldris sem fer með forsjána um að forsjálausa foreldrið hafi umgengni við barnið þann tíma sem fæðingarorlof stendur yfir.
Tilkynning um fæðingarorlof.
Starfsmaður sem ætlar að nýta sér rétt til fæðingarorlofs þarf að tilkynna atvinnurekanda sínum það eins fljótt og kostur er eða í síðasta lagi átta vikum fyrir fyrirhugaðan fæðingardag barns. Slíkt eyðublað má nálgast hér
Atvinnurekandi og starfsmaður skuli báðir skrifa undir tilkynninguna og skal atvinnurekandi afhenda starfsmanni afrit hennar.
Tilhögun fæðingarorlofs.
Starfsmaður skal eiga rétt á að taka fæðingarorlof í einu lagi. Með samkomulagi við vinnuveitanda er starfsmanni þó heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli. Þó má aldrei taka fæðingarorlof skemur tvær vikur í senn.
Ef samkomulag næst ekki milli starfsmanns og vinnuveitanda um töku fæðingarorlofs starfsmanns á starfsmaður ávallt rétt á að taka fæðingarorlof sitt í einu lagi frá þeim upphafsdegi sem starfsmaður ákveður.
Öryggi og heilbrigði á vinnustöðum.
Ef öryggi og heilbrigði þungaðrar konu, konu sem hefur nýlega alið barn eða konu sem er með barn á brjósti er í hættu samkvæmt sérstöku mati skal vinnuveitandi gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja öryggi konunnar með því að breyta tímabundið vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma hennar. Ef því verður ekki við komið af tæknilegum eða öðrum gildum ástæðum skal vinnuveitandi fela konunni önnur verkefni en að öðrum kosti veita henni leyfi frá störfum í svo langan tíma sem nauðsynlegt er til að vernda öryggi hennar og heilbrigði. Þær breytingar, sem teljast nauðsynlegar á vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma konu, sbr. framangreint skulu ekki hafa áhrif á launakjör hennar til lækkunar eða önnur starfstengd réttindi. Ef veita þarf þungaðri konu leyfi frá störfum samkvæmt ákvæði þessu á hún rétt á greiðslum.
Nánar má lesa um þær ráðstafanir sem atvinnurekandi verður að grípa til verndar þunguðum konum, konum sem nýlega hafa alið barn eða konum með barn á brjósti má nánar lesa um hér.
Réttur til fæðingarorlofs vegna andvanafæðingar og fósturláts.
Foreldrar eiga sameiginlegan rétt á fæðingarorlofi í allt að þrjá mánuði ef um er að ræða andvanafæðingu eftir 22 vikna meðgöngu. Sé um að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu eiga foreldrar sameiginlegan rétt á fæðingarorlofi í allt að tvo mánuði.
Réttur foreldra til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.
Foreldri öðlast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns eða þann tíma þegar barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur.
Mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skal nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram er. Mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi aldrei nema hærri fjárhæð en 300.000 kr.
Við útreikning meðaltals launa skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Reiknivél Fæðingarorlofssjóðs fyrir útreiknings greiðslna í fæðingarorlofi má sjá hér
Uppsöfnun og vernd réttinda.
Lífeyrisréttindi
Meðan á fæðingarorlofi stendur greiðir foreldri að lágmarki 4% af fæðingarorlofsgreiðslu í lífeyrissjóð og Fæðingarorlofssjóður að lágmarki 8%. Foreldri er að auki heimilt að greiða í séreignarsjóð.
Starfstengd réttindi
Fæðingarorlof reiknast til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum, svo sem rétti til orlofstöku og lengingar orlofs samkvæmt kjarasamningum, starfsaldurshækkana, veikindaréttar, uppsagnarfrests og réttar til atvinnuleysisbóta.
Umsókn til Vinnumálastofnunar
Sækja skal um greiðslu í fæðingarorlofi til Vinnumálastofnunar sex vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns.
Ráðningarvernd foreldra í fæðingar- eða foreldraorlofi
Ráðningarsamband milli starfsmanns og vinnuveitanda helst óbreytt í fæðingar- og foreldraorlofi. Starfsmaður skal eiga rétt á að hverfa aftur að starfi sínu að loknu fæðingar- eða foreldraorlofi. Sé þess ekki kostur skal hann eiga rétt á sambærilegu starfi hjá vinnuveitanda í samræmi við ráðningarsamning.
Vernd gegn uppsögnum.
Óheimilt er að segja starfsmanni upp störfum vegna þess að hann hefur tilkynnt um fyrirhugaða töku fæðingar- eða foreldraorlofs eða er í fæðingar- eða foreldraorlofi nema gildar ástæður séu fyrir hendi og skal þá skriflegur rökstuðningur fylgja uppsögninni. Sama gildir um uppsagnir þungaðrar konu og konu sem nýlega hefur alið barn.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























