Beint á leiðarkerfi vefsins

Laun

Starfsmenn ríkisins

Í lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (stml.) er m.a. fjallað um greiðslu launa. Í 9. gr. laganna segir að almennir starfsmenn eiga rétt á launum fyrir störf sín skv. kjarasamningum. Föst laun skulu greidd eftir á fyrsta virkan dag hvers mánaðar, sbr. 10. gr. laganna. Með hugtakinu „föst laun" er átt við föst laun fyrir dagvinnu án viðbótarlauna. Viðbótarlaun eru laun til viðbótar grunnlaunum vegna sérstakrar hæfni er nýtist í starfi eða sérstaks álags í starfi, svo og fyrir árangur í starfi. Þessum ákvörðunum má breyta hvenær sem er. Starfsmaður getur kosið að segja upp starfi sínu vegna slíkrar breytingar, enda skýri hann forstöðumanni frá því innan eins mánaðar frá því að breytingin var tilkynnt honum. Sé breytingin starfsmanni í óhag tekur hún ekki gildi fyrr en að liðnum uppsagnarfresti hans. Lesa má reglur á grundvelli stml. um greiðslu viðbótarlauna hér.


Vinnuréttur

Póstlistaskráning


Á döfinni


mansal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta