Fastar greiðslur
Algengt er að samið er um fasta yfirvinnu eða önnur föst kjör umfram laun sem kjarasamningur segir til um fyrir tiltekið starf. Áréttað skal að kjarasamningur kveður á um lágmarkskjör og er því ekki hægt að semja um verri kjör en hann kveður á um. Ef ráðningarsamningur kveður hins vegar á um önnur föst kjör starfsmanns s.s. fasta yfirvinnu getur atvinnurekandi ekki einhliða ákveðið að fella yfirborgunina niður fyrirvaralaust.
Í því felst að vilji atvinnurekandi segja slíkum kjörum upp verður hann að gera það með tilskildum fyrirvara sem er jafn langur og uppsagnarfrestur ráðningarsamningsins. Í sumum tilfellum hefur ekki verið samið um yfirborgun með ráðningarsamningi og ekkert skriflegt samkomulag til þar um. Engu að síður gildir það sama varðandi uppsagnarfrest á uppsögn slíkrar yfirborgunar.
Hjá flestum fastráðnum starfsmönnum er uppsagnarfrestur þrír mánuðir en einn mánuður á fyrstu þremur mánuðum í starfi. Í kjarasamningi eða ráðningarsamningi getur verið kveðið á um lengri uppsagnarfrest.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























