Reglur um auglýsingar á lausum störfum
1. gr.
Reglur þessar gilda um þá starfsmenn ríkisins sem falla undir skilgreiningu 1. mgr. 1. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, og teljast ekki embættismenn samkvæmt 22. gr. sömu laga.
2. gr.
Auglýsa skal laus störf, þannig að umsóknarfrestur sé a.m.k. tvær vikur frá birtingu auglýsingar.
Ekki er skylt að auglýsa störf í eftirfarandi tilvikum:
1.Störf sem aðeins eiga að standa í tvo mánuði eða skemur.
2.Störf við afleysingar, svo sem vegna orlofs, veikinda, barnsburðarleyfis, námsleyfis, leyfis til starfa á vegum
alþjóðastofnana o.þ.u.l., enda sé afleysingu ekki ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt.
3.Störf sem auglýst hafa verið innan síðustu sex mánaða og í þeirri auglýsingu hafi þess verið getið að umsóknin geti gilt
í sex mánuði.
3. gr.
Laust starf telst nægjanlega auglýst ef auglýst er annað hvort þannig:
1. Að auglýsing birtist að minnsta kosti einu sinni í einu dagblaði sem gefið er út á landsvísu.
Eða
2. að auglýsing sé lesin eða birtist að minnsta kosti þrisvar sinnum í tengslum við hádegis- eða kvöldfréttatíma
ljósvakamiðils sem nær til alls landsins.
4. gr.
Í auglýsingu um laust starf skulu að minnsta kosti vera upplýsingar um eftirfarandi:
1.Hver veitir nánari upplýsingar um starf.
2.Hvert á umsókn að berast.
3.Hvort hún eigi að vera á sérstökum eyðublöðum og ef svo er hvar sé hægt að fá þau.
4.Umsóknarfrestur.
5.Hvaða starf/starfssvið er um að ræða. Þar komi fram lýsing sem sé nægjanlega greinargóð til þess að væntanlegur
umsækjandi geti gert sér glögga grein fyrir því í hverju starfið felst.
6.Starfshlutfall.
7.Hvaða menntunar- og/eða hæfniskröfur gerðar eru til starfsmanns.
8.Hvaða starfskjör eru í boði.
9.Stjórnunarleg staða starfsins innan stofnunar/ríkisfyrirtækis.
10.Hvenær starfsmaður skuli hefja störf.
11.Að öllum umsóknum verði svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
5. gr.
Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, öðlast þegar gildi.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























