Uppsögn orlofslauna
Að undanförnu hefur borið á því að starfsmenn fái uppsagnarbréf á greiðslu orlofsfjár vegna fastrar yfirvinnu. Slíkt er með öllu óheimilt. Í dómi Hæstaréttar nr. 473/1999 var staðfest að ef samið er um fastar yfirvinnustundir á mánuði samkvæmt ráðningarsamningi skal greiða orlofslaun af yfirvinnugreiðslum og öðrum föstum viðbótarkjörum. Þetta felur því í sér að ef ekki er sérstaklega samið um að orlofslaun séu innifalin í greiðslum fyrir yfirvinnu og aðra kaupauka skal greiða sérstaklega orlofslaun af fastri yfirvinnu og öðrum föstum kaupaukum.
Vinnuréttur
Á döfinni
8. júní 2012
24. ágúst 2012
21. september 2012
Leit
























