Veikindi í orlofi
Geti starfsmaður ekki vegna veikinda farið í orlof skal hann tilkynna yfirmanni sínum strax um veikindi eða slys og framvísa læknisvottorði. Svo að veikindi í orlofi séu greiðsluskyld af atvinnurekanda er ekki nægilegt að læknir viðkomandi votti að um veikindi sé að ræða. Veikindi í orlofi þurfa að vera með þeim hætti að ekki sé hægt að njóta orlofsins vegna þeirra.
Að uppfylltu framangreindu getur starfsmaður þá krafist orlofs á öðrum tímum en orlofstímabilinu, en þó ekki síðar en svo að orlofi hans sé lokið fyrir 31. maí næstan á eftir. Geti starfsmaður ekki vegna veikinda farið í orlof fyrir þann tíma á hann rétt á að fá orlofslaun sín greidd ef hann sannar veikindi sín á sama hátt og að ofan greinir. Nauðsynlegt er að tilkynna veikindin strax á fyrsta degi annars kann uppbótarorlof að falla niður.
Í kjarasamningi Póstmannafélags Íslands er uppbótarorlofið bundið við að starfsmaður hafi veikst hér innanlands, innan EES svæðisins, Bandaríkjunum eða Kanada í orlofi og veikindin hafi staðið samfellt lengur en þrjá sólarhringa innanlands en 6 sólarhringa erlendis í nefndum löndum.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























