Beint á leiðarkerfi vefsins

Eftirlit atvinnurekenda

Atvinnurekendur hafa ýmis konar eftirlit með sínum rekstri. Slíkt eftirlit er í mörgum tilvikum ekki aðeins byggt á kröfum atvinnurekenda sjálfra heldur einnig á laga og/eða samningsskuldbindingum sem á þeim hvíla.

Skipta má eftirlitinu í tvo flokka:

1) Reglubundið eftirlit þar sem mæld eru afköst starfsmanna og/eða gæði og öryggi við framleiðslu eða þjónustu.

2) Skráning upplýsinga um launagreiðslur og réttindaávinnslu starfsmanna, skil á launatengdum gjöldum osfrv.

 Hin síðari ár hefur færst í aukana eftirlit og skráning upplýsinga um starfsfólk sem gengur mjög nærri friðhelgi starfsmanna, persónu þeirra og einkalífi. Við slík tilfelli þarf ætíð að vega þá hagsmuni atvinnurekanda af því að vinna með slíkar upplýsingar gagnvart hagsmunum starfsmanns.

Dæmi um slíka vinnslu persónuupplýsinga er; notkun sjónvarpsmyndavéla á vinnustæðum, eftirlit með tölvupósts- og netnotkun starfsmanna, lífsýnataka til að mæla áfengis- eða fíkniefnanotkun starfsmanna og GPS staðsetningartæki í bifreiðum.


mansal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta