Réttindanefnd BSRB
Stjórn BSRB ákvað á fundi sínum 10. desember 2009 að innan BSRB verði áfram starfandi réttindanefnd BSRB. Hlutverk réttindanefndar er að taka til skoðunar erindi sem stjórn eða einstök aðildarfélög vísa til hennar. Fulltrúar BSRB sem skipaðir eru í nefndir og ráð um réttindamál á vegum bandalagsins geta leitað liðsinnis réttindanefndar við vinnslu gagna og skal nefndin vera þeim til ráðgjafar sé eftir því leitað. Nefndin getur einnig að eigin frumkvæði tekið til athugunar mál sem snerta sameiginlega hagsmuni. Niðurstöður réttindanefndar eru ráðgefandi.
Starfsmenn nefndarinnar er Sonja Ýr Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB og Sigurður Á. Friðþjófsson upplýsinga og fræðslufulltrúi BSRB.
Stjórn BSRB hefur ákveðið að eftirtaldir aðilar skipi hópinn 2009-2012: Árni Stefán Jónsson SFR, Arna Jakobína Björnsdóttir Kili, Gunnar Ingi Jónsson St.Rv., Gunnar Örn Gunnarsson SLFÍ, Þuríður Einarsdóttir PFÍ, Helga Hafsteinsdóttir SDS og Snorri Magnússon LL.
Félög sem ekki eiga fulltrúa í réttindanefnd hafa tilnefnt eftirtalda aðila sem tengiliði félaganna og eiga þeir rétt til setu á fundi nefndarinnar: Haraldur Eggertsson Sth, Jófríður H. Sigfúsdóttir Stk, Guðbjörn Arngrímsson Stól og Stefanía Geirsdóttir FOSS.
Tengiliðir fá upplýsingar jöfnum höndum um starf réttindanefndar.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit






















