Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfslok

Kveðið er á um aldurshámark starfsmanna ríkisins í 2. mgr. 43. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (starfsmannalög). Þar segir „Starfsmanni skal þó jafnan segja upp störfum frá og með næstu mánaðarmótum eftir að hann nær 70 ára aldri."

Samkvæmt greininni hvílir skyldan til að segja starfmanni upp fyrir aldurs sakir á vinnuveitanda. Í raun mætti líta svo á að sé það ekki gert geti starfsmaður unnið þar til hann fái tilkynningu um starfslok sökum aldurs.

Starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins hefur túlkað þessa grein svo að tilkynna þurfi um starfslok þremur mánuðum áður en viðkomandi starfsmaður nær 70 aldri, sbr. dreifibréf nr. 7/2001. Greinin er hins vegar óljós hvað þetta varðar og mætti í raun túlka hana svo að segja ætti starfsmanni upp næstu mánaðarmót eftir að hann nær 70 aldri og þá vinni hann í þrjá mánuði eftir það.


Vinnuréttur

Póstlistaskráning


Á döfinni


kjaramál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta