Greiðsla félagsgjalda til stéttarfélaga
Er ekki öllum skylt að borga í stéttarfélag eða er það ákvörðun sveitarfélags ef svo er ekki?
Í lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986, segir í 2. mgr. 7. gr.: „Starfsmaður, sem lög þessi taka til og eig er innan stéttarfélags samkvæmt lögum þessum, greiði til þess stéttarfélags, sem hann ætti að tilheyra, gjald því sem honum bæri að greiða væri hann í því, enda fari um laun hans og önnur starfskjör samkvæmt samningum þess samkvæmt nánari ákvörðun fjármálaráðherra eða sveitastjórnar. Þá ákvörðun skal tilkynna viðkomandi sveitarfélagi.“ Þetta þýðir að ekki er hægt að nota kjarasamninga félaga án þess að til komi gjald fyrir. Þannig getur sveitarfélagið ekki ákveðið að ráða manna á samninga félagsins án þess að hann borgi til þess.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























