Uppsagnir
Spurt er hvort segja megi starfsmanni upp meðan hann er í veikindaleyfi?
Almennt hefur verið litið svo á að heimilt sé að segja starfsmanni upp meðan hann er í veikindaleyfi svo framarlega sem veikindaréttur starfsmannsins sé ekki skertur með uppsögn og hefur það verið túlkun BSRB. Hafa ber í huga að ekki er tekið á því í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, hvort heimilt sé að segja upp starfsmanni í veikindaleyfi. Þá er rétt að benda á að í kjarasamningsákvæði 12.2.2 segir að laun greiðist ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.
Mér var sagt upp störfum frá og með 1. janúar 2004. Uppsagnarbréfið barst mér ekki fyrr en 6. janúar s.l.. Skiptir það máli varðandi uppsagnarfrestinn?
Mikilvægt er að starfsmanni berist uppsagnarbréf fyrir mánaðarmót því uppsögn miðast alltaf við mánaðarmót. Sé starfsmanni sent bréf með ábyrgðarpósti þarf að tryggja sönnur fyrir því að hann hafi átt þess kost að kynna sér efni þess fyrir mánaðarmót. Póststimpill einn og sér dugar ekki í þessu sambandi. Berist starfsmanni ekki uppsagnarbréf fyrir mánaðarmót miðast uppsögnin við næstu mánaðarmót á eftir og starfslok frestast því um mánuð. Í þínu dæmi fer uppsagnarfresturinn ekki að telja fyrr en 1. febrúar 2004.
Mér var sagt upp störfum með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Á sumarorlof mitt að vera hluti af þessum þremur mánuðum?
Vinnuveitandi getur ekki látið starfsmann taka sumarorlof sitt á uppsagnarfrestinum nema starfsmaður sé því samþykkur. Verður það því að vera samkomulagsatriði við starfsmanninn að skipa uppsagnarfresti með þeim hætti að hluti hans sé orlof.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























