Beint á leiðarkerfi vefsins

Aðrar reglur um tímabundnar ráðningar

Einnig er fjallað um tímabundnar ráðningar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og í flestum kjarasamningum stéttarfélaga sveitarfélagsstarfsmanna.

Í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins segir að heimilt er að ráða starfsmann til starfa tímabundið og er unnt að taka fram í ráðningarsamningi að segja megi slíkum samningi upp af hálfu annars hvors aðila áður en ráðning fellur sjálfkrafa úr gildi við lok samningstíma. Tímabundin ráðning skal þó aldrei vara samfellt lengur en í tvö ár, sbr. 41. gr. starfsmannalaga.

Í flestum kjarasamningum stéttarfélaga sveitarfélagsstarfsmanna er að finna ákvæði um tímabunda ráðningu en almennt er ákvæðið í gr. 11.1.3.3 en þar segir:

Heimilt er að ráða starfsmann tímabundið og er unnt að taka fram í ráðningasamningi að segja megi slíkum samningi upp af hálfu annars hvors aðila áður en ráðning fellur sjálfkrafa úr gildi við lok samningstíma. Óheimilt er að framlengja eða endurnýja tímabundinn ráðningarsamning þannig að hann vari samfellt lengur en í tvö ár nema annað sé tekið fram í lögum. Þó er heimilt að endurnýja tímabundinn ráðningarsamning stjórnanda, sem gerður hefur verið til fjögurra ára eða lengri tíma, í jafnlangan tíma hverju sinni. Vinnuveitandi skal þó ávallt leitast við að ráða starfsmann ótímabundið.

 


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta