Hlutastörf
Almennt er ekki sérstaklega fjallað um starfsmenn í hlutastörfum í kjarasamningum að öðru leyti en t.d. að þeir fái hlutfallslega orlofs- og persónuuppbót. Sett hafa verið sérstök lög sem þjóna því markmiði að koma í veg fyrir að starfsmenn í hlutastörfum sæti mismunun, lög um starfsmenn í hlutastörfum nr. 10/2004.
Lögin fela í sér almennar meginreglur og lágmarkskröfur um hlutastörf. Tilgangur þeirra er að uppræta mismunun gagnvart launafólki í hlutastörfum og til að auka möguleika á hlutastörfum að teknu tillitii bæði til atvinnurekenda og launafólks. Með lögunum er stuðlað að sveigjanlegri tilhögun vinnutíma en meginmarkmið þess er að hlutavinnufólk sæti ekki lakari meðhöndlun en þeir sem sinna fullu starfi nema mismununin verði réttlætt á grundvelli hlutlægra ástæðna. Starfsmaður í hlutastarfi telst sá sem vinnur að jafnaði styttri vinnutíma á viku eða að meðaltali á ári en sambærilegs manns hjá sama fyrirtæki eða stofnun eða samkvæmt öðrum áhrifaþáttum í fullu starfi.
Bann við mismunun
Í 4. gr. laganna segir að starfsmenn í hlutastörfum skuli ekki njóta hlutfallslega lakari kjara eða sæta lakari meðferð en sambærilegir starfsmenn í fullu starfi af þeirri ástæðu einni að þeir eru ekki í fullu starfi, nema réttlæta megi slíkt á grundvelli hlutlægra ástæðna.
Skyldur atvinnurekanda
Í lögunum er kveðið á um ákveðnar skyldur atvinnurekanda vegna ákvörðunartöku og upplýsingagjöf til þeirra sem eru í hlutastörfum. Atvinnurekandi skal svo sem kostur er leitast eftir að:
a. taka tillit til óska starfsmanns um að flytjast úr fullu starfi í hlutastarf eða úr hlutastarfi í fullt starf,
b. taka tillit til óska starfsmannsins um að auka eða minnka starfshlutfall sitt, skapist svigrúm til þess,
c. auðvelda aðgang að hlutastörfum á öllum sviðum fyrirtækisins eða stofnunarinnar, þar á meðal að sérhæfðum störfum og stjórnunarstörfum,
d. veita tímanlega upplýsingar um störf sem losna á vinnustaðnum, þar með talin hlutastörf, til að auðvelda flutning úr hlutastarfi í fullt starf og öfugt,
e. greiða fyrir aðgangi starfsmanna í hlutastörfum að starfsmenntun og starfsþjálfun, m.a. í því skyni að þeir geti aukið hæfni sína og til að stuðla að starfsframa og hreyfanleika í starfi,
f. veita trúnaðarmönnum starfsmanna upplýsingar um hlutastörf á vinnustað.
Uppsögn hlutastarfandi
Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. laga um starfsmenn í hlutastörfum telst það ekki eitt og sér gild ástæða uppsagnar að starfsmaður neiti að fara úr fullu starfi í hlutastarf eða öfugt. Uppsögnin er þó ekki talin brjóta í bága við lögin ef hún er í samræmi við önnur lög, kjarasamninga eða venju og stafar af öðrum ástæðum, svo sem rekstrarþörfum viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar.
Brot gegn lögunum
Brjóti atvinnurekandi gegn ákvæðum laga um starfsmenn í hlutastörfum getur það varðað hann skaðabótum, sbr. 5. gr. laganna.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























