Skipun í embætti
Skipun í embætti
Fjallað er um embættismenn í 20. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944. Þar segir að forseti lýðeldisins veiti þau embætti er lög mæla. Forseti getur vikið þeim embættismönnum úr embætti sem hann hefur veitt það og hann getur flutt embættismenn úr einu embætti í annað, enda missi þeir einskis af embættistekjum sínum og skal þeim veittur kostur á að kjósa um embættisskiptin eða lausn frá embætti. Engan má skipa embættismann nema hann hafi íslenskan ríkisborgararétt. Allir embættismenn verða að vinna eið eða drengskaparheit að stjórnarskránni.
Embættismenn eru tæmandi taldir í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.[1] Þeir eru skipaðir tímabundið eða til fimm ára í senn, nema annað sé sérstaklega tekið fram í lögum. Þegar maður hefur verið skipaður í embætti skal honum tilkynnt ekki síðar en sex mánuðum áður en skipunartími hans rennur út hvort embættið verði auglýst laust til umsóknar. Ef það er ekki gert framlengist skipunartími hans sjálfkrafa um fimm ár, nema hann óski eftir að láta af störfum.
Setning í embætti
Ef embættismaður er fjarverandi vegna veikinda eða fellur frá er heimilt að setja annan mann í embættið um stundarsakir, þó aldrei lengur en eitt ár. Enn fremur má setja mann til reynslu í embætti áður en hann er skipaður í það, til eins árs í senn en aldrei lengur en tvö ár. Sá sem settur er í embætti nýtur sömu réttinda og skyldna og aðrir embættismenn.
[1]Embættismenn eru: skrifstofustjóri Alþingis, ríkisendurskoðandi og umboðsmaður Alþingis. Forsetaritari, ráðuneytisstjórar og skrifstofustjórar í Stjórnarráði, sendiherrar og sendifulltrúar í utanríkisþjónustunni. Hæstaréttardómarar, skrifstofustjóri Hæstaréttar og héraðsdómarar. Biskup Íslands, vígslubiskupar, prófastar og prestar þjóðkirkjunnar. Ríkissaksóknari, vararíkissaksóknari og saksóknarar. Ríkislögmaður, ríkissáttasemjari og umboðsmaður barna. Sýslumenn, ríkislögreglustjóri, [aðstoðarríkislögreglustjórar, lögreglustjórar og aðstoðarlögreglustjórar], skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, [forstjóri Útlendingastofnunar] og lögreglumenn. Tollstjórinn í Reykjavík og tollverðir. Forstjóri fangelsismálastofnunar, forstöðumenn fangelsa og fangaverðir. Ríkisskattstjóri, skattrannsóknarstjóri ríkisins og yfirskattanefndarmenn sem hafa það starf að aðalstarfi. Yfirdýralæknir. Forstöðumenn ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja, áður ótaldir.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























