Uppsögn tímabundinnar ráðningar
Algengt er að félagsmenn BSRB leiti til sinna stéttarfélaga vegna spurninga um uppsögn á tímabundnum ráðningarsamningum. Mikilvægt er að hafa í huga að sú regla gildir um alla tímabunda ráðningarsamninga að þeim verður ekki sagt upp á samningstímabilinu nema sérstaklega hafi verið samið um að slíkt væri heimilt. Ef það kemur ekki fram í ráðningarsamningi að báðir aðilar geti sagt tímabunda ráðningarsamningnum upp er hann ekki uppsegjanlegur. Slíkum samningum lýkur þá eingöngu með samkomulagi samningsaðila eða við lok samningstímans.
Vinnuréttur
Á döfinni
8. júní 2012
24. ágúst 2012
21. september 2012
Leit
























