Beint á leiðarkerfi vefsins

Erindisbréf og upplýsingar um skipunarkjör

Í 8. gr. stml. segir að veita skuli starfsmanni upplýsingar um skipunar- eða ráðningarkjör þegar hann er skipaður eða ráðinn til starfa. Sá sem veitir starf getur sett starfsmanni erindisbréf, enda skal að jafnaði setja starfsmanni slík fyrirmæli ef hann óskar þess, hvort sem það varðar starf hans almennt eða einstaka grein þess eða greinar. Á grundvelli þessa lagaákvæðis hafa verið settar reglur nr. 413/1996, um skyldu til að upplýsa embættismenn um skipunarkjör. Reglugerðin gildir eingöngu um embættismenn ríkisins.

Lágmarksupplýsingagjöf við skipun í embætti

Samkvæmt 2. gr. reglugerðarinnar skal við skipun í embætti upplýsa með skriflegum hætti á sérstöku fylgiblaði eftirtalin atriði:

  1. Deili á aðilum.

  2. Vinnustaður. Sé ekki um fastan vinnustað að ræða, eða stað þar sem vinnan fer jafnaðarlega fram, skal koma fram að embættismaður sé skipaður til starfa á mismunandi vinnustöðum.

  3. Titill, staða, eðli eða tegund embættis sem viðkomandi er skipaður til, eða stutt útlistun eða lýsing á starfinu.

  4. Fyrsti starfsdagur.

  5. Lengd skipunar.

  6. Orlofsréttur.

  7. Frestur til að biðjast lausnar.

  8. Mánaðarlaun, t.d. með vísan til launataxta, úrskurðar Kjaradóms eða kjaranefndar, og aðrar greiðslur, svo og greiðslutímabil launa.

  9. Lengd venjulegs vinnudags eða vinnuviku.

  10. Lífeyrissjóður.

  11. Eftir atvikum tilvísun til úrskurðar Kjaradóms, kjaranefndar eða gildandi kjarasamnings hlutaðeigandi stéttarfélags.

Upplýsingar skv. 6. - 9. tl. er heimilt veita með vísan til laga, stjórnvaldsfyrirmæla eða kjarasamninga.

 

Störf erlendis

Sé embættismanni, öðrum en embættismanni utanríkisþjónustu, falið að starfa í öðru landi í einn mánuð eða lengur, skal hann fyrir brottför fá skriflega staðfestingu á eftirfarandi skipunarkjörum:

1. Áætlaður starfstími erlendis.
2. Í hvaða gjaldmiðli laun eru greidd.
3. Uppbætur eða hlunnindi sem tengjast starfi erlendis.
4. Eftir atvikum skilyrði þess að embættismaður geti snúið aftur til heimalandsins.

Upplýsingar skv. 2. og 3. tl. má gefa með vísan til laga, stjórnvaldsfyrirmæla eða kjarasamninga.

 

Breytingar á skipunarkjörum

Ef breytingar verða á skipunarkjörum umfram það sem leiðir af lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eð kjarsamningum skal staðfesta breytingarnar með skriflegum hætti ekki síðar en mánuði eftir að þær komu til framkvæmda.

 

Fyrirmynd að fylgiblaði um skipunarkjör

Starfsmannaskrifstofa Fjármálaráðuneytisins hefur útbúið fyrirmynd að fylgiblaði um skipunarkjör sem sjá má hér.


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta