Beint á leiðarkerfi vefsins

Ráðningarsamningar - sveitarfélagastarfsmenn og aðrir

Í gr. 11.1.3.1. í kjarasamningi Samflots við Launanefnd sveitarfélaga segir að ætíð skuli gera skriflegan ráðningarsamning við starfsmann, sbr. samning aðila um ráðningarsamninga og tilskipun. Hér er átt við tilskipun Evrópusambandsins nr. 91/533/EBE frá 14. október 1991 um skyldu vinnuveitanda að skýra launþegum frá samningsskilmálum eða ráðningarfyrirkomulagi. Í sömu gr. í kjarasamningi Kjalar – stéttarfélags í almannaþjónustu, Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Starfsmannafélags Garðabæjar, Starfsmannafélags Suðurnesja og fleiri stéttarfélaga sveitarfélagsstarfsmanna við Launanefnd sveitarfélaga má finna samskonar texta.

Tilskipunin gildir um alla starfsmenn sem eru ráðnir samkvæmt ráðningarsamningi eða öðru ráðningarfyrirkomulagi. Tilskipunin gildir ekki um starfsmenn sem ráðnir eru til styttri tíma en eins mánaðar eða vinnuvikan er styttri en 8 klukkustundir eða tilfallandi starfa eða starfa af sérstökum toga enda liggi hlutlægar ástæður til grundvallar því að tilskipuninni verði ekki beitt. 

Atvinnurekanda ber skylda til að skýra starfsmanni frá helstu ákvæðum ráðningarsamnings eða ráðningarfyrirkomulags. Í upplýsingunum skal a.m.k. koma fram: 

a) deili á aðilum;
b) vinnustaður; ef ekki erumfastan vinnustað að ræða, eða stað þar sem vinnan fer jafnaðarlega fram, skal komafram að launþeginn sé ráðinn á mismunandi stöðum ogheimilisfang skráðrar starfsstöðvar eða eftir atvikumlögheimili vinnuveitandans;
c) i) titill, staða, eðli eða tegund starfs sem launþegi erráðinn í, eða
    ii) stutt útlistun eða lýsing á starfinu;d) upphafsdagsetning ráðningarsamnings eða ráðningarfyrirkomulags;
e) þegar ráðningarsamningur eða ráðningarfyrirkomulager tímabundið: hve langan tíma er áætlað að það vari;
f) lengd launaðs orlofs sem launþegi á rétt á eða, sé þaðekki ljóst þegar upplýsingarnar eru gefnar, reglur umúthlutun eða ákvörðun orlofs;
g) lengd uppsagnarfrests sem vinnuveitandi og launþegiverða að virða komi til þess að ráðningarsamningi eðaráðningarfyrirkomulagi ljúki eða, sé það ekki ljóst þegarupplýsingarnar eru gefnar, reglur sem gilda þegaruppsagnarfrestur er ákveðinn;
h) upphafsgrunnlaun, aðrir launaþættir sem launþegi á réttá og hve oft launagreiðslur fara fram;
i) lengd venjulegs vinnudags eða vinnuviku;j) eftir atvikum:
   i) tilvísun til almennra samninga sem taka til starfsskilyrðalaunþegans, eða
  ii) þegar um er að ræða almenna samninga, sem hafaverið gerðir utan fyrirtækisins af sérstökum þar til bærum aðilum eða sameiginlegum stofnunum,heiti þar til bærs aðila eða sameiginlegrar stofnunarsem annaðist samningana.  

Atvinnurekanda er skylt að miðla upplýsingum innan tveggja mánaða frá því að starf hefst  með skriflegum ráðningarsamningi eða ráðningarbréfi eða einu eða fleiri skriflegum skjölum. Ef ráðningarsambandi lýkur áður en tveggja mánaða fresturinn frá því starfið hófst rennur út skal atvinnurekandi veita starfsmanni upplýsingarnar við lok þess tímabils í síðasta lagi. 

Ef starfið sem ráðið er til er í öðru landi eða löndum skulu ofangreindar upplýsingar veittar áður en starfsmaður fer af landi brott. Til viðbótar skal sú upplýsingagjöf fela í sér upplýsingar um:
a) hve lengi hann/hún mun starfa erlendis;
b) hvaða gjaldmiðil á að nota við launagreiðslur;
c) eftir því sem við á, hvaða bætur í peningum eða fríðinditengjast starfi erlendis;
d) eftir því sem við á, skilyrðin fyrir því að launþegi getisnúið aftur til heimalandsins. 

Atvinnurekanda ber að skýra frá hverjum þeim breytingum sem kunna að verða á ráðningarsamningi með skriflegu skjali sem fyrst og ekki síðar en einum mánuði eftir að breytingin kemur til framkvæmda.  

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar

Í gr. 9.3. í kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við Reykjavíkurborg segir að ætíð skuli gera skriflegan ráðningarsamning við starfsmann við upphaf ráðningar. Í ráðningarsamningi skuli koma fram þær upplýsingar sem skylt er að veita, sbr.“Samkomulag um skyldu vinnuveitanda til að ganga frá skriflegum ráðningarsamningum eða skriflegri staðfestingu ráðningar við starfsmenn” milli aðila. Í kjarasamningnum segir einnig að Reykjavíkurborg áskilji sér rétt til að beita heimild til að staðfesta ráðningu starfsmanns með ráðningarbréfi við hópráðningar, t.d. vegna sumarvinnu skólafólks. Sérstakt samkomulag um skyldu vinnuveitanda til að gera skriflegan ráðningarsamning má sjá hér.

Póstmannafélag Íslands

Í gr. 16.1 í kjarasamningi Póstmannafélags Íslands og Íslandspósts hf. segir að gerður skuli skriflegur ráðningarsamningur eða ráðningarbréf útbúið af Íslandspósti hf.  


Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta