Auglýsingaskylda ríkisins
Embættismenn
Ríkinu ber skylda til að auglýsa laus störf. Í 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 segir að laus embætti skulu auglýst í Lögbirtingarblaði og umsóknarfrestur skuli ekki vera skemmri en tvær vikur frá útgáfu blaðsins. Þó er heimilt að skipa mann eða setja í embætti án þess að embættið sé auglýst laust til umsóknar þegar:
1) Þegar skipunartími embættismanns er framlengdur sjálfkrafa um fimm ár
2) Þegar menn eru settir í embætti tímabundið vegna forfalla
3) Þegar menn eru fluttir til í embætti án þess að embættið sé auglýst laust til umsóknar
Hvergi er kveðið á um hvert efni auglýsinga vegna lausra embætta hjá ríkinu skuli vera. Slíkar reglur eru hins vegar í gildi varðandi önnur störf hjá ríkinu.
Aðrir starfsmenn ríkisins
Í 2. mgr. 7. gr. stml. er kveðið á um auglýsingaskyldu vegna lausra starfa hjá ríkinu. Þar segir að önnur störf skuli auglýst opinberlega samkvæmt reglum sem settar eru af fjármálaráðherra.
Forstöðumanni stofnunar er heimilt að setja sérreglur um hvernig skuli auglýsa störf hjá stofnunninni, enda sé það gert opinberlega og reglurnar hjóti staðfestingu fjármálaráðherra. Slíkar reglur mega fela í sér að ekki þurfi að auglýsa störf sem ekki er krafist tiltekinnar sérmenntunar eða sérhæfingar.
Að lokum segir í lagaákvæðinu að sá sem auglýsir starf ber skyldu til þess að veita aðgang að upplýsingum um nöfn og starfsheiti umsækjenda sé þess óskað að umsóknarfresti liðnum. Þar af leiðandi er ekki heimilt að veita umsækjendum um opinbert starf nafnleynd.
Í reglugerð nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum er nánar kveðið á um framkvæmd auglýsinga. Reglugerðin á við um þá starfsmenn ríkisins sem ekki eru embættismenn.
Auglýsa skal laus störf, þannig að umsóknarfrestur sé a.m.k. tvær vikur frá birtingu auglýsingar.
Ekki er skylt að auglýsa störf í eftirfarandi tilvikum:
-
Störf sem aðeins eiga að standa í tvo mánuði eða skemur.
-
Störf við afleysingar, svo sem vegna orlofs, veikinda, barnsburðarleyfis, námsleyfis, leyfis til starfa á vegum alþjóðastofnana o.þ.u.l., enda sé afleysingu ekki ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt.
-
Störf sem auglýst hafa verið innan síðustu sex mánaða og í þeirri auglýsingu hafi þess verið getið að umsóknin geti gilt í sex mánuði.
Laust starf telst nægjanlega auglýst ef auglýst er annað hvort þannig:
-
að auglýsing birtist á netinu á sérstöku vefsvæði um laus störf hjá ríkinu og til hennar sé jafnframt vísað að minnsta kosti einu sinni í yfirliti um laus störf hjá ríkinu sem birtist í dagblaði sem gefið er út á landsvísu. Í yfirlitinu skal tilgreina starfsheiti, nafn stofnunar, í hvaða sveitarfélagi starfsmaður verður staðsettur og hvert leita skuli varðandi frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur skal miðast við fyrstu birtingu yfirlits í dagblaði,
eða -
að auglýsing birtist að minnsta kosti einu sinni í dagblaði sem gefið er út á landsvísu.]
Í auglýsingu um laust starf skulu að minnsta kosti vera upplýsingar um eftirfarandi:
-
Hver veitir nánari upplýsingar um starf.
-
Hvert á umsókn að berast.
-
Hvort hún eigi að vera á sérstökum eyðublöðum og ef svo er hvar sé hægt að fá þau.
-
Umsóknarfrestur.
-
Hvaða starf/starfssvið er um að ræða. Þar komi fram lýsing sem sé nægjanlega greinargóð til þess að væntanlegur umsækjandi geti gert sér glögga grein fyrir því í hverju starfið felst.
-
Starfshlutfall.
-
Hvaða menntunar- og/eða hæfniskröfur gerðar eru til starfmanns.
-
Hvaða starfskjör eru í boði.
-
Stjórnunarleg staða starfsins innan stofnunar/ríkisfyrirtækis.
-
Hvenær starfsmaður skuli hefja störf.
-
Að öllum umsóknum verði svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























