Beint á leiðarkerfi vefsins

Auglýsingaskylda annarra

Sveitarfélögum ber ekki lagaleg skylda til að auglýsa laus störf. Fjöldi þeirra hefur þó sett sér sérstakar reglur um auglýsingu lausra starfa í samþykktum. Í sumum tilfellum hafa aðildarfélög BSRB samið um slíka auglýsingaskyldu með kjarasamningi. Hér að neðan má lesa umfjöllun um slík samningsákvæði.

Reykjavíkurborg og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hafa samið um auglýsingaskyldu vegna lausra starfa í gr. 9.1. kjarasamnings. Í ákvæðinu segir:

9.1 Auglýsing starfa
9.1.1 Það er skylda stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar að auglýsa öll laus störf laus til umsóknar á opinberum vettvangi. Skal það gert með 14 daga fyrirvara að jafnaði. Þó er ekki skylt að auglýsa afleysingastörf vegna fæðingarorlofs eða veikinda eða störf þar sem ráðning skal standa 12 mánuði eða skemur, tímavinnustörf, störf nema eða störf unglinga í vinnuskóla. Ef borgaryfirvöld líta svo á að ráða skuli í stöðu með uppfærslu innan starfsgreinarinnar eða frá hliðstæðum starfsgreinum skal staðan auglýst á þeim vettvangi einum. 

9.1.2 Í starfsauglýsingu skal að lágmarki tilgreina:

1.       Starfsheiti, starfstegund eða eftir atvikum stutta starfslýsingu.
2.       Starfshlutfall ef ekki er um fullt starf að ræða.
3.       Kröfur sem gerðar eru til starfsmanns.
4.       Starfskjör í boði s.s. með orðunum “eftir hlutaðeigandi kjarasamningi opinberra
5.       starfsmanna”.
6.       Hver veitir nánari upplýsingar um starfið.
7.       Hvert umsókn á að berast.
8.       Hvenær starfsmaður skuli hefja starf.
9.       Hvort umsókn eigi að vera á sérstöku eyðublaði og ef svo er hvar sé hægt að fá það.
10.   Kröfur um gögn - ef einhver eru - sem eiga að fylgja umsókn.
11.   Umsóknarfrest. 

Í kjarasamningi Orkubús Vestfjarða hf og félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum segir í gr. 11.1.2. að allar lausar stöður hjá O.V. skulu auglýstar innan fyrirtækisins áður en þeim verður ráðstafað.

Þá hefur Kjölur - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu og Launanefnd sveitarfélaga samið um í gr. 9.1. kjarasamnings vegna tónlistarkennara að tónlistarskóla beri að auglýsa laus störf. Undantekning þess er ef um tímabunda ráðningu er að ræða sem ætlað er að standa skemur en til 2ja ára eða stundakennara (tímakaupsfólk). Veita skal a.m.k. 14 daga umsóknarfrest frá birtingu auglýsingar. Miða skal við að auglýsing birtist með þeim hætti að auðvelt sé að afla sér vitneskju um hið lausa starf.


Vinnuréttur

Póstlistaskráning


Á döfinni


kjaramál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta