Beint á leiðarkerfi vefsins

Val á umsækjendum

Almenni vinnumarkaðurinn

Á almennum vinnumarkaði er almennt engum reglum til að dreifa um hvernig skuli staðið að ráðningum í störf enda er litið svo á að atvinnurekandi verði að hafa svigrúm til að meta hvernig hann skuli haga slíkri ákvörðunartöku og hvern hann skuli ráða í sína þjónustu. Þessi ákvörðunarréttur er almennt talinn vera hluti af svokölluðum stjórnunarrétti vinnuveitanda.[1] Viðhorfið er byggt á því að atvinnurekandi hljóti að vera best til þess fallinn að meta hverjar þarfir hans eru hverju sinni fyrir starfsstöðina og hvernig hann eigi að mæta þessum þörfum.

Opinberi vinnumarkaðurinn

Í meginatriðum má segja að sömu sjónarmið gildi um opinberan vinnumarkað varðandi stjórnunarrétt atvinnurekanda vil ráðningu nýs starfsmanns. Hins vegar er opinberum atvinnurekendum settar töluvert meiri skorður um val á umsækjanda vegna stöðuveitingar hjá hinu opinbera. Skorðurnar eru einna helst reglur sérlaga sem gilda um viðkomandi starfsstöð en ef þeim er ekki að dreifa gilda ákvæði laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (hér eftir nefnd stml.) og skráðar sem óskráðar reglur stjórnsýsluréttar.

Ástæða þess að upphaflega voru settar sérstakar reglur um opinberar stöðuveitingar fólst í hættu á misnotkun pólitískra yfirmanna. Í seinni tíð hefur þróunin verið sú að fjöldi opinberra starfsmanna starfa fjær og fjær pólitískum yfirmönnum en sömu sjónarmið varðandi hættu á misnotkun aðstöðu við útdeilingu opinberra gæða eiga engu að síður við. Reglurnar miða að því að ekki sé misfarið með það vald sem stjórnendur hins opinbera fara með.[3] Almennar reglur þess efnis sem binda hendur ríkis og sveitarfélaga er að finna í áðurnefndum reglum stjórnsýsluréttar. Stjórnsýslulög nr. 37/1993 binda hendur ríkis og sveitarfélaga við töku ákvörðunar um rétt eða skyldu manna. Þannig hefur ráðning og uppsögn í opinbert starf t.a.m. talist til stjórnvaldsákvarðana. Gilda því reglur stjórnsýslulaga um undirbúning og úrlausn mála við ráðningu í opinber störf auk óskráðra grundvallarreglna stjórnsýsluréttarins sem taldar eru gilda, sbr. Hrd.1998 bls. 3599 (Héraðsdýralæknir).[4]

Hér á eftir verður fjallað um þær grundvallarreglur sem gæta þarf að við töku ákvörðunar um veitingu opinbers starfs.

 


[1]

Arnmundur Backman og Gunnar Eydal: Vinnuréttur. Reykjavík 1986, bls. 119-120 og Lára V. Júlíusdóttir: Réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Reykjavík 1997, bls. 68

[2]

Ásmundur Helgason: „Löggjöf um opinberar starfsveitingar“. Stjórnmál og stjórnsýsla 2006, bls. 3

[3]

Ásmundur Helgason: „Löggjöf um opinberar starfsveitingar“, bls. 4

[4]

Álit UA frá 3. maí 2004 í máli nr. 3882/2003, 3909/2003 og 3980/2003 (Hæstaréttardómari)
efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta