Hæfasti umsækjandinn
Ein grundvallarregla stjórnsýsluréttar felur í sér að ráða og skipa skuli hæfustu mennina sem völ er á og er þessi regla einnig leidd af lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna nr. 70/1996 (hér eftir nefnd starfsmannalögin). Í greinargerð með frumvarpi til starfsmannalaga kemur fram að með setningu þeirra skuli gerðar auknar kröfur til menntunar og starfsreynslu og að hæfustu einstaklingarnir verði valdir til starfa án tillits til kynferðis.
Í því felst að atvinnurekandi skal byggja á málefnalegum sjónarmiðum við val á umsækjendum um opinbert starf. Þannig gæti t.d. klíkuskapur eða ættengsl flokkast sem ómálefnaleg sjónarmið. Almennt er litið svo á að atvinnurekandi hafi e-ð svigrúm til að ákveða hvern umsækjenda hann ætli að ráða. Þetta er matskennd ákvörðun að því leyti að lög eða kjarasamningar eða annað kveða ekki með tæmandi hætti á um hvernig skuli standa að slíkum ráðningum. Með málefnalegum sjónarmiðum er byggt á þáttum eins og menntun, reynslu, þekking og persónuleika.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























