Beint á leiðarkerfi vefsins

Samráðsnefnd um veikindarétt opinberra starfsmanna

Í kjarasamningum opinberra starfsmanna er að jafnaði að finna ákvæði um samstarfsnefndir aðila. Löng hefð er fyrir slíku samstarfi samningsaðila en samstarfið starfar þá á samningstíma viðkomandi kjarasamnings. Slíkum nefndum er meðal annars að reyna að leysa úr ágreiningi sem kann að koma upp við túlkun á kjarasamningsákvæðum.

Haustið 2000 gerðu BSRB, BHM og KÍ samkomulag við ríki, Reykjavíkurborg og Launanefnd sveitarfélaga um veikindarétt opinberra starfsmanna og var hann síðan færður inn í samninga allra aðildarfélaga BSRB sem eru með samningsrétt við þessa aðila. Hlutverk samráðsnefndar er að fjalla um túlkun og útfærslu ákvæða samkomulags aðila um veikindarétt.

Samkomulagið má sjá hér: Samkomulag um veikindarétt

Nýtt samkomulag var svo gert árið 2004 sem sömuleiðis var fært inn í kjarasamninga allra aðildarfélaga BSRB sem hafa samningsrétt við ríki, Reykjavíkurborg og þá Launanefnd sveitarfélaga (nú Samband íslenskra sveitarfélaga). Samkomulagið frá 2004 má sjá hér: Samkomulag um veikinda- og slysarétt

Verklagsreglur nefndarinnar er að finna hér.


Vinnuréttur

Póstlistaskráning


Á döfinni


nýsköpun

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta