Beint á leiðarkerfi vefsins

Veikindaréttur á almenna vinnumarkaðnum

Veikindaréttur á almenna vinnumarkaðinum er talsvert frábrugðinn því sem gerist hjá opinberum starfsmönnum.

Líkt og á opinbera vinnumarkaðnum hafa mörg hver stéttarfélög samið um betri veikindarétt en felst í lágmarksrétti allra fastráðinna starfsmanna sem kveðið er á um í lögum nr. 19/1979, um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla.

Lágmarksréttur vegna veikinda

Lög um rétt verkafólks til uppsagnarfrest frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla kveða á um lágmarksréttindi starfsmanna til greiðslu launa er þeir forfallast frá störfum vegna veikinda eða slysa. Í flestum kjarasamningum er kveðið á um meiri réttindi en lögin gera ráð fyrir en hér verður tæpt á því helsta er lögin fela í sér varðandi veikindarétt starfsmanna.

Í 5. gr. og 6. gr. laganna er kveðið á um veikindarétt fastráðinna starfsmanna: 

Á fyrsta starfsári: Starfsmenn sem eru á fyrsta starfsári hjá atvinnurekanda skal ekki missa neins af launum sínum í tvo daga fyrir hvern unninn mánuð í veikinda- og slysatilfellum. Aukin réttindi bætast svo við þennan rétt ef forföllin eru vegna vinnuslyss eða atvinnusjúkdóma.

Eftir eitt ár í starfi: Starfsmenn sem hafa unnið hjá atvinnurekanda í eitt ár samfellt halda launum í einn mánuð ef þeir forfallast frá vinnu vegna sjúkdóma eða slysa.
Eftir þrjú ár í starfi: Hafi starfsmenn verið ráðnir hjá sama atvinnurekanda í þrjú ár samfellt skal það halda launum í einn mánuð og halda daglaunum sínum annan mánuð.
Eftir fimm ár í starfi: Hafi starfsmaður verið í samfelldri ráðningu til fimm ára hjá sama atvinnurekanda ávinnur hann sér rétt til greiðslu hefðbundinna launa í einn mánuð en daglauna í tvo mánuði þar að auki.

Aukin réttindi vegna vinnuslyss eða sjúkdóms: Ef forföllin stafa af vinnuslysi eða sjúkdómi á fastráðið verkafólk framangreindan rétt en þar að auki rétt til að halda dagvinnulaunum í allt að þrjá mánuði.


Veikindaréttur félagsmanna BSRB samkvæmt kjarasamningum aðildarfélaga

Póstmannafélag Íslands hefur samið um talsvert meiri réttindi fyrir sitt fólk. Hjá þeim er veikindarétturinn tveir mánuðir á dagvinnulaunum auk vaktaálags eftir eitt ár, fjórir mánuðir eftir fimm ár og sex mánuðir eftir tíu ár.

Í samningum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við Skýrr hf eru veikindadagarnir 133 almanaksdagar eftir eitt ár, eftir sjö ár lengist veikindarétturinn í 175 daga og eftir 12 ára starfsaldur í 273 daga. Starfsmaðurinn heldur fullum launum þessa daga en þá er átt við dagvinnulaun auk greiðslna fyrir yfirvinnu, vakta-, gæsluvakta- og óþægindaálag og greiðslur fyrir eyður í vinnutíma, enda hafi vinnuframlag eða vinnutími verið ákveðið með reglubundinni vaktatöflu. 

 


Vinnuréttur

Póstlistaskráning


Á döfinni


Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta