Beint á leiðarkerfi vefsins

Einelti

 Hér verður fjallað um skilgreiningu hugtaksins einelti, skyldur atvinnurekenda og viðbrögð vegna eineltis og hvernig skuli  bregðast við einelti.

 Skilgreining eineltis

Í 1. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum segir að atvinnurekendur skulu tryggja öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi sem jafnan sé í samræmi við félagslega og tæknilega þróun í þjóðfélaginu. Samkvæmt lögunum er það á ábyrgð forstöðumanns að tryggja starfsmönnum sínum gott starfsumhverfi út frá margvíslegum sjónarmiðum.

Á grundvelli laganna hefur verið sett reglugerð nr. 1000/2004, um aðgerðir gegn einelti á vinnustað. Í reglugerðinni er einelti skilgreint svo:

Ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Kynferðisleg áreitni og annað andlegt eða líkamlegt ofbeldi fellur hér undir. Hér er ekki átt við skoðanaágreining eða hagsmunaárekstur sem kann að rísa á vinnustað milli stjórnanda og starfsmanns eða tveggja eða fleiri starfsmanna enda leiði slíkur skoðanaágreiningur eða hagsmunaárekstur ekki til þeirrar háttsemi sem lýst er hér að framan.

 

 


Vinnuréttur

Póstlistaskráning


Á döfinni


umhverfismál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta