Aðkoma ráðuneyta að eineltismálum undirstofnana
Aðkoma ráðuneyta að eineltismálum
Umboðsmaður Alþingis ákvað að taka til athugunar að eigin frumkvæði hvernig aðkomu ráðuneyta væri almennt háttað að málum þar sem lægi fyrir að tiltekinn kerfisvandi væri til staðar í starfsemi undirstofnunar þess ráðuneytis, þ.e. verulegir samskiptaörðugleikar væru á milli starfsmanna ríkisstofnana eða jafnvel að fram hefðu komið ásakanir hjá starfsmanni um einelti af hálfu annarra starfsmanna og/eða yfirmanns stofnunar.
Umboðsmaður benti á að ráðuneyti gæti á grundvelli stjórnunarheimilda sinna tekið mál til umfjöllunar að eigin frumkvæði. Ráðuneyti hafi ekki eingöngu heimild til slíks heldur gæti einnig hvílt jákvæð athafnaskylda á því í ákveðnum tilvikum. Ef fyrir liggur viðvarandi ástand sem brýtur í bága við lög og ráðstafanir forstöðumanns ná ekki tilætluðum árangri, hvílir að mati umboðsmanns Alþingis sú skylda á ráðherra að gera virkar ráðstafanir til að koma starfsemi slíkrar stofnunar í lögmætt horf. Ef meint brot beinist að háttsemi forstöðumannsins sjálfs gagnvart öðrum starfsmönnum eða vanrækslu hans á að bregðast við ólögmætri háttsemi í samskiptum starfsmanna innbyrðis kann athafnaskylda að hvíla á hlutaðeigandi ráðherra til að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að aflétta hinu ólögmæta ástandi. Framangreint á við undir þeim kringumstæðum sem starfsmaður getur ekki fengið úrlausn mála sinna með kæru til æðra stjórnvalds né sérstaks stjórnvalds sem fer með eftirlitshlutverk á umræddu málefnasviði.
Að mati umboðsmanns Alþingis skal því ráðherra kanna með sjálfstæðum hætti hvort grundvöllur sé fyrir ásökunum starfsmanna ef kvörtun berst um að forstöðumaður beiti einelti eða bregðist ekki við einelti annarra starfsmanna. Því skulu ráðuneyti með beinum og skýrum hætti taka afstöðu til þess hvort skylda hvíli á þeim til að grípa til raunhæfra og virkra úrræða á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna.
Álitið í heild sinni má nálgast hér
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























