Skyldur atvinnurekenda vegna kvörtunar um einelti
Atvinnurekanda ber skylda til að skipuleggja vinnu þannig að dregið sé úr hættu á að þær aðstæður skapist í vinnuumhverfi sem leitt geti til eineltis eða annarrar ótilhlýðilegrar háttsemi.
Þá skal atvinnurekandi gera starfsfólki það ljóst að einelti og önnur ótilhlýðileg háttsemi er óheimil á vinnustað. Atvinnurekanda ber skylda til að láta slíka háttsemi á vinnustað ekki viðgangast og skal hann leitast við að koma í veg fyrir ótilhlýðilega háttsemi sem hann fær vitneskju um, í samráði við vinnuverndarfulltrúa[1] á vinnustaðnum þegar við á.
Áhættumat og forvarnir.
Atvinnurekandi ber ábyrgð á að gerð sé áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem felur í sér almennt áhættumat og áætlun um forvarnir, sbr. XI. kafla laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Við gerð áhættumatsins skal meðal annars meta aðstæður í vinnuumhverfinu sem geta leitt til eineltis. Grípa skal til viðeigandi aðgerða í samræmi við niðurstöður áhættumatsins til að draga úr eða koma í veg fyrir að slíkar aðstæður komi upp á vinnustaðnum. Atvinnurekandinn skal hafa samráð við vinnuverndarfulltrúa við gerð áhættumats og áætlun um forvarnir.
Lesa má meira um gerð áhættumats á vefsíðu Vinnueftirlitsins.
[1] Vinnuverndarfulltrúi er fulltrúi í öryggisnefnd, sá sem hefur verið kosinn öryggistrúnaðarmaður eða skipaður öryggisvörður lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Eða aðrir aðilar sem starfa að vinnuvernd innan vinnustaðar.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























