Kynferðisleg áreitni
Líkt og kom fram í umfjöllun um einelti þá telst kynferðisleg áreitni vera einelti. Því á sú umfjöllun um t.d. um viðbrögð og kvartanir osfrv. einnig við um kynferðislega áreitni.
Kynferðisleg áreitni er einnig skilgreind í lögum um um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna nr. 10/2008 (jafnréttislög) en samkvæmt lögunum er atvinnurekendum skylt að gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað.
Kynferðisleg áreitni
Skilgreining kynferðislegrar áreitni samkvæmt jafnréttislögum er eftirfarandi:
Hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi kynferðisleg hegðun sem er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Eitt tilvik getur talist kynferðisleg áreitni ef það er alvarlegt.
Framangreind skilgreining á kynferðislegri áreitni sýna fram á að áreitni er ekki eingöngu líkamleg áreitni, s.s. þukl. Viðmiðun þess hvað telst vera kynferðisleg áreitni felur í sér hvernig sá sem verður fyrir henni upplifir hana. Í því felst að gerandinn getur ekki réttlætt gerðir sínar með því að vísa til sinna viðmiðana um kynferðislega hegðun eða samskipti og tjáningu. Kynferðisleg áreitni er hegðun sem er í óþökk þess sem verður fyrir henni, hún er ekki gagnkvæm og ekki á jafnréttisgrundvelli.
Bann við uppsögnum og öðrum íþyngjandi ákvörðunum vegna kvörtunar um kynferðislega áreitni
Samkvæmt 27. gr. jafnréttislaga er atvinnurekanda óheimilt að segja upp starfsmanni á grundvelli þess að hann hafi kvartað yfir kynferðislegri áreitni. Atvinnurekandi skal jafnframt gæta þess að starfsmaður verði ekki beittur óréttlæti í starfi, svo sem með tilliti til starfsöryggis, starfskjara eða mats á árangri, á grundvelli þess að hafa kært eða veitt upplýsingar um kynbundna eða kynferðislega áreitni eða kynjamismunun.
Þá segir í 2. mgr. 27. gr. jafnréttislaga að ef leiddar eru líkur að því að gengið hafi verið gegn ákvæði þessu skal atvinnurekandi sýna fram á að uppsögn eða ætlað óréttlæti grundvallist ekki á leiðréttingarkröfu starfsmanns, kæru eða veitingu upplýsinga um kynbundna eða kynferðislega áreitni eða aðra kynjamismunun. Þetta gildir ekki ef uppsögnin á sér stað meira en einu ári eftir að starfsmaðurinn setti fram leiðréttingarkröfur á grundvelli laga þessara.
Vinnuréttur
Á döfinni
Leit
























