    <language>is</language>
Skoðun | BSRB
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga
Húsnæðisverð hefur frá aldamótum hækkað nær tvöfalt meira tekjur sumra hópa. Meðalíbúð á höfuðborgarsvæðinu kostar í dag yfir 11 faldar árstekjur einstaklings á fyrstu kaupa aldri borið saman við um 6 faldar árstekjur um aldamót. Þessi þróun er ekki eingöngu bundin við Ísland og drifkraftarnir eru ólíkir eftir því hvaða tímabil er skoðað. 
Vaxandi húsnæðiseftirspurn hefur ekki einungis birst á eignamarkaði heldur hefur leiguverð hækkað langt umfram launaþróun. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun benti nýverið á að tæplega helmingur leigjenda býr við íþyngjandi húsnæðiskostnað, þ.e. meira en 40% af ráðstöfunartekjum þeirra fer í leigu. 
Fáir valkostir tekjulágra á húsnæðismarkaði
Umhverfi hás húsnæðisverðs, hárra vaxta og þrengri lánþegaskilyrða skapar verulegar áskoranir fyrir tekjulágt fólk á húsnæðismarkaði. Við þær aðstæður og íþyngjandi leiguverð reynist tekjulágum leigjendum erfitt að safna upp eigin fé til útborgunar á húsnæði. Þeim sem þó hafa eigið fé er þröngur stakkur sniðinn af lánþegaskilyrðum sem setja hámark um greiðslubyrðahlutföll. Eignir sem samræmast kaupgetu tekjulágra eru vart til við núverandi markaðsaðstæður.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur bent á að stuðningur foreldra við fyrstu kaup hafi aukist verulega frá árinu 2022. Fyrir stóran hóp sem hefur ekki þann stuðning og uppfyllir ekki lánþegaskilyrði er eini valkosturinn búseta í hagnaðardrifnu leiguhúsnæði. Þar getur munað yfir 70-80 þúsund krónum á mánuði á leiguverði miðað við leiguíbúðir í óhagnaðardrifnum félögum.
Að komast í Bjarg ? 
Almenna íbúðakerfið var stofnað í kjölfar kjarasamninga árið 2015 til að bregðast við vaxandi vanda tekjulágra á leigumarkaði. Markmiðið var að búa til valkost fyrir tekjulágt fólk á vinnumarkaði þar sem það gæti búið við húsnæðisöryggi og viðráðanlega leigu. Félagið byggir á samstarfi húsnæðissjálfseignastofnana, ríkis og sveitarfélaga. Ríki og sveitarfélög styðja við félögin í upphafi með svokölluðu stofnframlagsláni sem nemur 30% af stofnkostnaði íbúða, 18% frá ríki og 12% frá sveitarfélagi. Lánin eru verðtryggð miðað við verðmæti eignanna og greidd til baka á 50 árum. Stofnframlagið getur í tilfelli  sveitarfélaga verið í formi lóðaframlags eða afsláttar af gjöldum. 
Bjarg Íbúðafélag í eigu ASÍ og BSRB byggir íbúðir fyrir tekjulágt fólk á vinnumarkaði en 75% launafólks á Íslandi eru í aðildarfélögum ASÍ og BSRB.  Innan almenna kerfisins byggja einnig önnur félög fyrir ólíka hópa t.d. námsmenn, eldri borgara og öryrkja en Bjarg er eina félagið sem byggir sérstaklega fyrir láglaunafólk. Lög um almennar íbúðir setja skilyrði um tekju- og eignamörk til að fólk eigi rétt á íbúðum í kerfinu.  Leigjendur hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum búa við viðráðanlega leigu og kannanir HMS sýna að þau upplifi mun meira húsnæðisöryggi.
Of fáar íbúðir hafa verið byggðar 
Félagslegar lausnir í húsnæðismálum hafa lengi verið mikilvægt baráttumál verkalýðshreyfingarinnar og á síðustu öld var byggt upp kerfi verkamannabústaða, félagslegra eignaíbúða. Áður en verkamannabústaðakerfið var markaðsvætt upp úr aldamótum voru tæplega fjórar og hálf íbúð innan kerfisins fyrir hverja 100 á vinnumarkaði. Í dag ná óhagnaðardrifnar íbúðir fyrir þennan sama hóp, láglaunafólks, ekki einni íbúð á hverja 100 á vinnumarkaði. Framboð íbúða fyrir láglaunafólk hefur því dregist umtalsvert saman frá aldamótum.
Sveitarfélög bera, samkvæmt lögum um húsnæðismál, ábyrgð á að leysa húsnæðisþörf þess fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Almenna íbúðakerfinu er einmitt ætlað að mæta þessum hópi  og eru félög eins og Bjarg reiðubúin til að byggja upp húsnæði í sveitarfélögum víða um land. Framkvæmdaraðilum hefur skort lóðir til uppbyggingar og hafa sveitarfélög í sumum tilfellum hafnað því að úthluta lóðum til aðila sem vilja byggja upp húsnæði innan kerfisins. Af þeim sökum hafa safnast upp biðlistar hjá Bjargi þar sem yfir 4000 fjölskyldur bíða eftir húsnæði. 
Húsnæðismarkaður og stöðugleiki
Húsnæðismarkaður og stöðugleiki
Vaxandi húsnæðiskostnaður er stærsti einstaki verðbólguvaldur á Íslandi undanfarna áratugi og um leið stór áhrifaþáttur í launamyndun og launakröfum. Umræðan um húsnæðismarkaðinn verður því ekki slitin frá umræðu um verðbólgu, vexti og efnahagslegan stöðugleika. 
Á þeim tíu árum frá því almenna íbúðakerfið var sett á fót hefur það sannað sig sem raunhæfur kostur til að tryggja húsnæðisöryggi hjá tekjulágu fólki og um leið auka framboð á því húsnæði sem vöntun er á sem stuðlar þannig jafnframt að stöðugleika á húsnæðismarkaði. Sveitarfélög leika lykilhlutverk í skipulagi og framboði lóða og geta þannig stutt við kröftuga uppbyggingu og stuðlað að bættum húsnæðismarkaði, stöðugu verðlagi og húsnæðisöryggi fyrir alla.
Húsnæðisverð hefur frá aldamótum hækkað nær tvöfalt meira tekjur sumra hópa. Meðalíbúð á höfuðborgarsvæðinu kostar í dag yfir 11 faldar árstekjur einstaklings á fyrstu kaupa aldri borið saman við um 6 faldar árstekjur um aldamót. 
Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu?
Gjaldskrár hafa víða tekið miklum breytingum. Leikskólagjöld fyrir fulla vistun, 8–8,5 tíma á dag, hafa í mörgum sveitarfélögum hækkað verulega á kjörtímabilinu, eða um allt að 85%. Í þeim stærstu kostar 8 tíma vistun víða um 50.000 krónur á mánuði og 8,5 tíma vistun allt að 68.000 krónur]]></description>
Hvar á láglaunafólk að búa?
Um síðustu aldamót þegar stjórnvöld lögðu niður verkamannabústaðakerfið var tekin pólitísk ákvörðun um að markaðsvæða húsnæðisöryggi láglaunafólks. Sú ákvörðun gróf undan lífskjörum og skildi stóran hóp launafólks eftir með óhóflegan húsnæðiskostnað. Enn í dag er staðan sú að fjöldi fólks á vinnumarkaði hefur enga möguleika á að kaupa sér húsnæði. ]]></description>
Sí­menntun er nauð­syn – ekki lúxus
Samhliða hröðum tæknibreytingum sjáum við einnig að grafið er undan réttindum launafólks. Brotakenndum ráðningarsamböndum fjölgar, sem og verktakavinnu og gerviverktöku, á kjörum sem eru undir kjarasamningsbundnum lágmarkskjörum. Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) hefur bent á að víða sé verið að veikja hefðbundin réttindi starfsfólks, draga úr fyrirsjáanleika og færa áhættu frá atvinnurekanda yfir á launafólk. Slík þróun hefur í för með sér minna atvinnuöryggi og verri kjör.]]></description>
„Gula spjaldið“ á opinberum vinnumarkaði
Með því að afnema áminningarskylduna er verið að færa valdið nær alfarið yfir til stjórnenda. Það þýðir minna öryggi fyrir starfsfólk, meiri óvissu og aukna hættu á ósanngjörnum ákvörðunum. Það er ekki uppskrift að betra starfsumhverfi – heldur verra]]></description>
Ríkisstjórn útúrsnúninga?
Ríkisstjórnin segist leggja áherslu á mannauðsstjórnun. Raunin er sú að ekki allir vinnustaðir eru fyrirmyndar vinnustaðir líkt og sjá má af könnunum vegna Stofnun ársins. Við þekkjum mörg dæmi um skort á þekkingu stjórnanda eða stuðningi til hans og – í verstu tilfellum – harðræði, ákvarðanir sem byggjast á geðþótta eða ógnarstjórnun. Þar sem valdaójafnvægi er slíkt að fólk þorir ekki einu sinni að krefjast réttra launa, hvað þá benda á það sem betur má fara. Það er víðar en ykkur grunar. Í slíku umhverfi skiptir skýr lagaleg vernd máli.]]></description>
Góð áminning um virðingu
Ef vilji ríkisstjórnarinnar stendur til raunverulegra umbóta byrjar hún á því að styrkja réttindi, bæta starfsaðstæður og byggja upp traust. Það er forsenda þess að almannaþjónustan sem við treystum öll á virki. Það væri góð áminning um hvað virðing þýðir í raun.]]></description>
Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi
Þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir þegir yfir lítillækkandi orðræðu gagnvart opinberu starfsfólki er hún ekki hlutlaus – hún er að samþykkja hana. Og þegar hún velur að bregðast við með því að veikja ráðningarvernd þessa hóps blasir forgangsröðunin við. Minna öryggi fyrir fólkið sem ber uppi samfélagið.]]></description>
Góð áminning um sanngirni
Í sömu viku og fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi sem á að gera slökum stjórnendum auðveldara að reka ríkisstarfsmenn gaf héraðssaksóknari út 60 ákærur fyrir ofbeldisbrot eða hótanir gegn opinberum starfsmönnum. ]]></description>
Góð áminning um sjálfsögð réttindi
Nú ætlar ríkisstjórnin að ráðast í eina stærstu réttindaskerðingu sögunnar á íslenskum vinnumarkaði — að afnema áminningarskyldu. Slík aðgerð dregur úr starfsöryggi allra ríkisstarfsmanna. ]]></description>
Ofbeldi í nánum samböndum og vinnumarkaðurinn
Þrátt fyrir mikla umræðu um kynbundið ofbeldi á Íslandi hefur samhengið á milli vinnumarkaðar og ofbeldis í nánum samböndum ekki fengið athygli. Vinnustaðir geta gengt mikilvægu hlutverki í því að styðja þolendur ofbeldis og stefna stjórnvalda á því sviði sömuleiðis. Slíkur stuðningur getur veitt öryggi þegar heimilið er ekki öruggt og vinnusamband getur tryggt stöðugleika og fjárhagslegt öryggi fyrir brotaþola.]]></description>
Aukin misskipting leysir ekki verðbólguvandann
Í umræðunni um verðbólgu er oft vísað til launahækkana sem helsta orsakavaldsins, en síður rætt um undirliggjandi veikleika hagkerfisins, svo sem markaðsbrests á húsnæðismarkaði, fákeppni, innviðaskuld og veika tekjustofna hins opinbera]]></description>
Rang­færslur Við­skipta­ráðs
Að leggja til skerðingu veikindaréttar hjá hópum sem eru útsettari fyrir veikindum vegna starfsaðstæðna er ekki aðeins ósanngjarnt heldur ómanneskjulegt.]]></description>
Reykjavíkurleiðin ekki rétta leiðin
Hópurinn sem gjaldskrárhækkanir bitna verst á eru foreldrar í ósveigjanlegum störfum eða sem eiga lítið sem ekkert bakland, það ýtir undir stéttskiptingu. Þetta bætist ofan á þunga stöðu margra heimila vegna verðbólgu, vaxta og hækkanna á nauðsynjavörum á borð við húsnæði, mat, rafmagn og hita sem eru meiri en kjarasamningsbundnar hækkanir stórra hópa.]]></description>
Daði Már og mann­auðsmálin
Ríkisstjórn sem vill bæta opinbera þjónustu á ekki að byrja á að rýra réttindi starfsfólks. Hún á að byrja á sjálfri sér, til dæmis með því að tryggja að einföld grunnatriði eins og regluleg starfsmannasamtöl séu skylda hjá öllum stofnunum. Við vitum mikilvægi þeirra – ekki af því að okkur finnst það, heldur vegna gagna. ]]></description>
Meirihluti vill lögfesta rétt til leikskólapláss
Í ljósi þeirra neikvæðu áhrifa og kostnaðar sem skapast af umönnunarbilinu á fjölskyldur, vinnumarkað, jöfnuð og jafnrétti er stórmerkilegt að málið hafi ekki verið tekið heildstætt til umræðu og tryggt að börn hafi sama rétt til leikskólapláss alls staðar á landinu. ]]></description>
Kvennaár og hvað svo?
Tölfræðileg samantekt okkar á kvennaári sýnir að kynjamisrétti verður hvorki skilið né leyst með því að horfa einangrað á einstaka mælikvarða. Kynjamisrétti verður til í samspili vinnumarkaðar, fjölskylduábyrgðar, velferðarkerfa og öryggis kvenna, sem kallar á samþættar og markvissar aðgerðir. Umfjöllun okkar um tvöfalda mismunun innflytjendakvenna undirstrikar líka þörfina á að tölfræði sé hægt að greina eftir uppruna]]></description>
Ólaunuð vinna kvenna
Hefðbundnar hugmyndir um hlutverk kynjanna valda því að konur sinna heimili og börnum í miklu meira mæli en karlar. Sú vinna fer fram samhliða launaðri vinnu og hefur áhrif á vinnutíma, tekjur og möguleika kvenna til fjárhagslegs sjálfstæðis.]]></description>
Ofbeldi í nánum samböndum 
Kallað er eftir aðgerðum til að uppræta stafrænt ofbeldi gegn konum og stúlkum, sem er ein útbreiddasta birtingarmynd ofbeldis í heiminum í dag. Ein af kröfum Kvennaárs er að lög um nauðganir og önnur kynferðis- og kynbundin ofbeldisbrot verði endurskoðuð til að fanga betur brot í netheimum og á samskiptamiðlum.]]></description>
Tvöföld mismunun kvenna í hópi innflytjenda 
Yfir helmingur kvenna í hópi innflytjenda starfar í ferðaþjónustu, framleiðslu og leigustarfsemi og ýmissri sérhæfðri þjónustu, eins og t.d. ræstingarstörfum þar sem aðfluttar konur eru í miklum meirihluta. Um 15% innflytjendakvenna starfa í þessum atvinnugreinum samkvæmt óbirtri greiningu Vörðu – rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins upp úr Stöðu launafólks á Íslandi 2025. ]]></description>