Samkomulag um styttingu fyrir vaktavinnufólk

BSRB gerði kröfu um styttingu vinnuvikunnar í yfirstandandi kjarasamningsviðræðum.

Samkomulag náðist í gærkvöldi í kjarasamningsviðræðum BSRB við viðsemjendur um útfærslu á styttingu vinnuvikunnar í vaktavinnu. Þetta er stór áfangi í átt að því að ljúka gerð kjarasamnings, en áður hafði samkomulag náðst um styttingu vinnuvikunnar í dagvinnu.

Samkomulagið var staðfest seint í gærkvöldi með fyrirvara um að samningar náist um önnur málefni sem út af standa. Þar sem viðræður eru enn í gangi er ekki tímabært að upplýsa hvað felst í samkomulaginu á þessu stigi. Það verður kynnt fyrir félagsmönnum aðildarfélaga BSRB um leið og kjarasamningar hafa náðst.

BSRB fer með samningsumboð fyrir hönd aðildarfélaga um stór sameiginleg mál. Þau stærstu eru stytting vinnuvikunnar án launaskerðingar, launaþróunartrygging og jöfnun launa milli markaða. Önnur mál, svo sem launahækkanir og sértæk mál sem varða einstök félög, eru á borði einstakra aðildarfélaga sem munu semja um það beint við viðsemjendur.

Aðildarfélög hafa boðað til verkfallsaðgerða til að þrýsta á um gerð kjarasamninga, en samningar stórs hluta félagsmanna BSRB hafa nú verið lausir í tæpt ár. Verkfallsaðgerðir munu hefjast mánudaginn 9. mars, náist samningar ekki fyrir þann tíma. Nánari upplýsingar um boðaðar aðgerðir má finna hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?