41
Í sameiginlegri yfirlýsingu íslensku verkalýðshreyfingarinnar eru konur hvattar til að sýna samstöðu og leggja niður störf klukkan 14:38 í dag til að fylgja eftir kröfu um kjarajafnrétti. . Í yfirlýsingunni, sem forystufólk BSRB ... , Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna og Kennarasambands Íslands hafa sent frá sér er vakin athygli á því að í dag, 41 ári eftir að íslenskar konur vöktu heimsathygli með því að leggja niður störf sé enn þörf á að grípa til aðgerða til að krefjast ... . Niðurstöður nýrra kjararannsókna verkalýðshreyfingarinnar vitna um stöðu sem er óviðunandi. Enn mælist óútskýrður munur á launum karla og kvenna. Það þýðir að konur fá lægri laun fyrir sömu störf og karlar gegna vegna þess að þær eru konur. Munur ... á heildartekjum karla og kvenna hérlendis er enn meiri, eða tæplega 30%. Sá munur skýrist meðal annars af því að þau störf sem konur gegna að miklum meirihluta eru minna metin en starfsgreinar þar sem karlar eru í meirihluta. Þá gegna konur hlutastörfum í meiri ... mæli en karlar. . Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að í kjarasamningum er samið um sömu laun fyrir konur og karla. Ákvörðunin um að greiða konum lægir laun en karlar fyrir sambærileg störf er tekin í hverri viku á vinnustöðum
42
Helsti þröskuldur í samfélagsgerð okkar hvað jafnréttisbaráttu varðar er kynjamisrétti og rótgrónar hugmyndir um karlmennsku og kvenleika. Íslenskur vinnumarkaður er afar kynjaskiptur sem best sést á því að konur eru meirihluti starfsmanna ... í umönnun en mikill meirihluti þeirra sem starfa við mannvirkjagerð eru karlar.
Ímynd kvenna á vinnumarkaði er oft ekki opinberuð sem kemur fram hvernig „fjórða valdið“, fjölmiðlar, umgangast konur og þeirra störf. Sagt er að eigi umfjöllun ... sem snertir konur að koma fram þá séu það konur, sem eru að mestu ábyrgar fyrir því að skrifa um konur og að taka viðtöl við þær. Þetta sé vegna þess að konur og þeirra störf séu bara alls ekki í forgangi hjá körlum því reynsla þeirra liggi ekki saman. Karlar ... Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (1951) um að konum og körlum skuli greidd sömu laun fyrir jafn verðmæt störf. Frá því að lög um jafnlaunaráð árið 1973 voru sett hafa öll jafnréttislög kveðið á um launajafnrétti.
Núgildandi jafnréttislög frá 2008 um jafna stöðu og jafnan ... rétt kvenna og karla kveða á um að allir einstaklingar skuli eiga jafna möguleika óháð kyni. Þar er ekki eingöngu átt við launamun kynjanna heldur einnig að jafna áhrif, bætta stöðu kvenna og aukna möguleika þeirra í samfélaginu. Síðast en ekki síst
43
„Jafnréttismál eru hagsmunir okkar allra, ekki bara kvenna. Breytum menningunni og hugarfarinu, saman! Stöndum saman og höfum hátt!“ Þetta voru meðal annars skilaboðin frá samstöðufundum kvenna á Arnarhóli og víð um land í gær.
Stærsti ... samstöðufundurinn var haldinn á Arnarhóli í Reykjavík og var hann afar vel sóttur, eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.
Á samstöðufundunum var eftirfarandi yfirlýsing samþykkt:.
. Yfirlýsing samstöðufunda kvenna, 24. október 2018.
Frásagnir kvenna af áreitni, ofbeldi og misrétti á vinnustöðum sem deilt hefur verið undanfarið ár á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #MeToo undirstrika að kjaramisrétti er ekki eina misréttið sem konur þurfa að glíma við á vinnumarkaði. Við stöndum ... hér saman til að lýsa því yfir, hátt og snjallt, að kynferðisleg áreitni og ofbeldi er ólíðandi með öllu!.
Við verðum að tryggja öryggi kvenna og jaðarsettra hópa á vinnumarkaði. Við verðum að skapa samfélag þar sem störf kynjanna eru metin ... að verðleikum, samfélag þar sem kjarajafnrétti ríkir..
Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna eru konur með 26% lægri atvinnutekjur að meðaltali en karlar. Konur vinna þó lengur en karlar ef lögð er saman vinnan innan
44
Fyrir 48 árum boðuðu konur hér á landi í fyrsta sinn til Kvennafrís þar sem 90% kvenna lögðu niður ólaunuð sem launuð störf til að sýna fram á mikilvægi framlags þeirra til samfélagsins. Alls hafa konur lagt ... niður vinnu í sex skipti til að mótmæla kynbundnu misrétti. Konur gengu fyrst út 1975, svo 1985, 2005, 2010, 2016 og 2018. Þessi magnaða kvennasamstaða skilaði mörgum risastórum áföngum í átt að auknu jafnrétti og ruddi brautina að auknum tækifærum ... og möguleikum kvenna..
En þrátt fyrir áratugalanga baráttu búum við enn í samfélagi þar sem langlífasti og útbreiddasti faraldurinn sem við eigum við að etja er kynbundið ofbeldi, ásamt því að framlag kvenna ... sé að það muni a.m.k. taka heila ævi..
En við ætlum ekki að bíða lengur og krefjumst aðgerða strax! Á fjórða tug samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks hafa blásið til heilsdags kvennaverkfalls þann 24. október ... næstkomandi. Það þýðir að konur og kvár sem geta, leggja niður störf; mæta ekki til vinnu, annast ekki börnin s.s. gefa þeim mat eða smyrja nesti né sinna veikum fjölskyldumeðlimum heldur fá karlkyns fjölskyldumeðlim til að standa vaktina. Sleppa öllu sem gæti
45
Karlar í stjórnunarstöðum, ólaunuð vinna á heimilum og kynskiptur vinnumarkaður er meðal þess sem hefur leitt til þess að óútskýrður launamunur kvenna innan ríkja Evrópusambandsins (ESB) mælist nú 16,3%.
Miðað við 16,3% launamun má segja ... að konur innan ESB vinni launalaust það sem eftir er af árinu, samkvæmt samantekt Evrópusambandsins um kynbundinn launamun ....
Tekið hefur verið tillit til styttri vinnutíma á vinnustað, lægra tímakaups og minni atvinnuþátttöku í tölunum, en séu þeir þættir ekki teknir út fyrir sviga sést að tekjur kvenna eru að meðaltali 39,6% lægri en tekjur karla innan ríkja ESB.
Fimm ... skýringar eru sagðar helstar á óútskýrðum launamuni kvenna í samantekt ESB:.
Karlar í yfirmannastöðum, sem birtist meðal annars í því að aðeins 6% forstjóra fyrirtækja eru konur.
Ólaunuð vinna á heimilum og tengt fjölskyldu, sem konur ... vinna í mun meira mæli en karlar.
Tímabundin fjarvera kvenna frá vinnumarkaði, til dæmis í tengslum við barneignir.
Kynskiptur vinnumarkaður þar sem konur tilheyra frekar starfsstéttum sem eru verr launaðar en starfsstéttir
46
Fjórða Kvennaþing Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) fór fram í Melbourne Ástralíu í gær. Í dag hófst svo þing ITUC sem stendur yfir í sex daga. Kvennaþingið er mikilvægur vettvangur kvenna innan verkalýðshreyfingarinnar á heimsvísu ... um fjárfestingu í umönnun, útrýmingu kynferðislegs ofbeldis og áreitni á vinnumarkaði, jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf, aukinn hlut kvenna í valdastöðum innan verkalýðshreyfingarinnar og réttlát umskipti. Áhersla var lögð á fjölbreytileika í umræðunni ... með tilliti til aldurs, frumbyggja, LGBTQI+, kvenna sem upplifa misrétti vegna húðlitar, uppruna og fötlunar.
Aðildarfélög ITUC eru 332 og starfa fyrir 200 milljónir launafólks í 163 löndum. Þrátt fyrir að staða kvenna sé afar ólík milli landanna ... þá er kjarni baráttumála stéttarfélaganna um jafnrétti og jöfnuð þau sömu. Verkefni verkalýðshreyfingarinnar er að skapa betri framtíð sem mun eingöngu nást með samstöðu. Meðal þess sem rætt var á fundinum var framlag kvenna til þjóðarbúsins. Til að mynda kom ... fram að ef ólaunað vinnuframlag kvenna í Kólumbíu væri metið myndi það að minnsta kosti vega um 20% af hagvextinum og að aukning á atvinnuþátttöku kvenna í Noregi hafi vegið meira í auðlegð þjóðarinnar heldur en olíuvinnslan. Aukin áhersla á jafnréttismál og samstöðu
47
Hópur kvenna innan verkalýðshreyfingarinnar hafa sent forystu allra heildarsamtaka launafólks bréf þar sem hreyfingin er hvött til að bregðast við umræðum um kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni og ofbeldi sem konur hafa orðið fyrir í vinnu ... og við félagsstörf innan hreyfingarinnar.
Verkalýðshreyfingin er hvött til að hlusta á þær konur sem stíga fram og rjúfa þögnina, stórefla fræðslu um jafnrétti, setja reglur um öryggi á vinnustöðum og í félagsstarfi, setja fram áætlun um viðbrögð komi ... er á,“ segir meðal annars í bréfinu.
Bréfið var rætt á fundi stjórnar BSRB síðastliðinn þriðjudag. Þar var farið yfir efni þess og rætt með hvaða hætti bandalagið muni bregðast við áskorun þessara fjölmörgu kvenna. Þeirri umræðu er ekki lokið og verður ... , sem sagt var frá hér á vef bandalagsins nýverið, var fjallað um hvernig stéttarfélög geta tekið á málum sem varða kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi.
. Bréf kvenna innan verkalýðshreyfingarinnar má lesa hér að neðan.
Til forystu samtaka launafólks,.
Að undanförnu hafa konur í verkalýðshreyfingunni rætt saman í lokuðum hópi og sagt frá kynbundinni áreitni, kynferðislegri áreitni og ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir í vinnunni og félagsstörfum innan
48
Konur sem eiga það sameiginlegt að vinna á vinnustöðum þar sem karlar eru í miklum meirihluta voru í sviðsljósinu á hádegisverðarfundi sem haldinn var í dag, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna ....
Ein af þeim sem sagði frá sinni upplifun var Birna Björnsdóttir, sem um talsvert skeið var eina konan í stöðu slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanns hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
„Mér var ágætlega tekið í hópnum,“ sagði ... Birna. „En ég er líka ágætlega öflug, margir þessir strákar eiga ekkert roð í mig.“ Hún sagði að þrátt fyrir að hafa verið tekið vel af vinnufélögunum þurfi hún, eins og margar konur sem vinni á karlavinnustöðum, að þola fordóma.
Hún sagði ... hafi sama spurningin komið upp: „Það var alltaf spurt „áttu börn?“. Ég spurði strákana, þeir fengu aldrei þessa spurningu,“ sagði Eva Björk.
Hún segir að sá vinnuveitandi sem á endanum hafi ráðið hana til starfa hafi virkilega viljað fá konu ... til starfa, og þar starfar hún enn í dag. Þrátt fyrir það segir hún upplifa starfið þannig að hún þurfi að sanna sig tífalt meira en „strákarnir“.
Eva Björk segir mikilvægt að konur sæki í störf þar sem karlmenn séu í meirihluta, þó að hlutföllin
49
ára. Í öllum tilvikum var reiknað út frá tímakaupi karla og kvenna, að teknu tilliti til grunnlauna, fastra greiðslna og yfirvinnu.
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir þessa þróun grafalvarlega. „Við vitum að megin ástæðan ... í viðtali við Bylgjuna í hádeginu í dag.
„Við getum ekki haft það þannig að karlastéttir séu verðmetnar hærra en hefðbundnar kvennastéttir. Þess vegna þurfum við að jafna aðstöðu kvenna og karla til að sinna sambærilegum störfum og fá þau metin.
Tölur Hagstofunnar sýna svart á hvítu áhrif kynskipts vinnumarkaðar. Þannig var bæði meðaltal og miðgildi launakvenna lægra en karla í öllum starfsstéttum og bilið milli efstu og neðstu tíundar var breiðara hjá körlum en konum.
Dæmi ... að Hagstofa Íslands birti mælingu sína í dag, 24. október, en þennan dag árið 1975 gengu íslenskar konur út af vinnustöðum um allt land til að mótmæla muni á kjörum á kjörum kvenna og karla undir yfirskriftinni Kvennafrí. Konur gengu einnig út þennan dag árið ... 1985, 2005, 2010 og 2016.
Í tölum Hagstofunnar eru taldar til meðalatvinnutekjur kvenna. Árið 2016 voru konur að meðaltali með 72,5 prósent af atvinnutekjum karla og voru því með 27,5% lægri tekjur af sinni atvinnu að meðaltali. Samkvæmt
50
landsins sem tekur virkan þátt í að halda heilbrigðiskerfinu gangandi. Í þessarar fagstétt eru 97% konur og meðalaldur stéttarinnar er um 50 ár. Þetta eru sjúkraliðar ... !. . Hvar er kynbundið óréttlæti að finna?.
Í dag er kvenréttindadagurinn sem er hátíðis- og baráttudagur kvenna á Íslandi þar sem því er fagnað að 19. júní 1915 fengu konur á Íslandi, 40 ára og eldri, kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Margt ... hefur áunnist í gegnum árin sem bætt hefur stöðu kvenna hins vegar eigum við enn langt í land með að jafna stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.
Hér á jafnréttisparadísinni Íslandi er við lýði kynbundinn launamunur, kynskiptur vinnumarkaður ... meginorsök kynbundins launamunar.
Staðreyndin er sú að störf sem almennt eru unnin af konum eru minna metin í launum en hefðbundin karlastörf. Konur búa því enn við launamisrétti sextíu árum eftir að launajafnrétti var leitt í lög á Íslandi ....
Aðgerðir skipta máli.
Þessu er hægt að breyta. Það sjáum við til dæmis þegar launamunur karla og kvenna sem starfa hjá sveitarfélögum er skoðaður. Þar er launamunurinn er töluvert minni en hjá þeim sem starfa hjá ríkinu eða á almennum vinnumarkaði
51
baráttudegi kvenna.
Á fundinum fjallaði Elín Björg um jafnréttismálin út frá sjónarhorni verkalýðshreyfingarinnar undir yfirskriftinni „Kjarajafnrétti strax“. Hún sagði að þó Íslendingar standi vel hvað varði jafnréttismál í samanburði við aðrar þjóðir ... eigum við langt í land með að ná jafnri stöðu karla og kvenna.
Hún benti á að rúmlega þriðjungur kvenna á íslenskum vinnumarkaði sé í hlutastörfum. Rannsóknir bendi til þess að ábyrgð kvenna á fjölskyldu og börnum sé aðalástæða þess að þær vinna ... í hlutastarfi.
„Besta leiðin til að draga úr álaginu er að stytta vinnutímann. Reynsla Svía af styttingu vinnutíma sýnir meðal annars að konur verja tíma sínum fyrir sig og fá þannig aukna hvíld, en karlar taka aukinn þátt í umönnunar- og heimilisstörfum ... Björg sagði fjölmörg verkefni í kjarabaráttunni og margar ástæður fyrir ójafnrétti. Til að eyða launamuni kynjanna verði að ráðast að rótum vandans. „Með því að karlar jafnt sem konur axli ábyrgðina í fæðingarorlofi barna og umönnun fram að leikskóla ... . Með því að ábyrgðin á fjölskyldunni og heimilinu verði jafnt á herðum karla og kvenna. Með því að vera góðar fyrirmyndir. Með því að eyða kynskiptum vinnumarkaði. Með því að konur séu í stjórnum, ráðum og stjórnendastöðum. Og þannig að valdaójafnvægi á vinnumarkaði
52
Ný rannsókn Hagstofu Íslands staðfestir það sem fyrri rannsóknir sýna, að karlar vinni lengri vinnuviku en konur og rúmlega tvöfalt fleiri konur en karlar vinna hlutastörf. Þrátt fyrir að þetta hafi verið staðan síðustu áratugi hefur lítið ... sem ekkert verið gert til að bregðast við þessum mun.
Á þeirri tæplega hálfu öld sem liðin er frá því að fjörutíu stunda vinnuvika var lögfest hefur samfélagið tekið miklum breytingum. Ein af þeim breytingum er verulega aukin atvinnuþátttaka kvenna ....
Við þekkjum vel fjölmörg neikvæð áhrif af löngum vinnudögum. Við vitum að hætt er við streitu, álagi og veikindum þegar fólk sem vinnur langan vinnudag reynir að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.
Það hefur augljós áhrif að konur séu frekar ... í hlutastörfum en karlar. Tekjur þeirra eru lægri en tekjur karla og ellilífeyririnn sömuleiðis. En það er ástæða fyrir því að konur leita frekar í hlutastörf. Karlar sem vinna hlutastörf gera það einkum vegna veikinda. Konur sækja í hlutastörf ... til að hafa sveigjanleika til að sinna heimili og uppeldi barna, en þar axla konur enn þann dag í dag ríkari ábyrgð en karlar.
Þá er mikill meirihluti þeirra sem starfa við umönnun og í heilbrigðisgeiranum konur. Þær kjósa almennt að minnka vinnutímann til að draga
53
Heildartekjur karla eru að jafnaði um 29 prósentum hærri en heildartekjur kvenna samkvæmt nýuppfærðri tekjusögu stjórnvalda. Við blasir algjör stöðnun í jafnréttismálum þar sem engin raunveruleg framþróun hefur orðið undanfarið segir Sonja Ýr ... var gefið í upphafi og ekki hefur tekist að leiðrétta það skakka verðmætamat sem liggur til grundvallar launum stórra kvennastétta.
„Störf þar sem konur eru í meirihluta voru áður unnin inni á heimilunum og færðust svo inn á vinnumarkað, til dæmis ... , þá er skekkjan alltaf til staðar,“ segir Sonja í viðtalinu við RÚV.
Fleira spilar inn í, til dæmis sú aukna ábyrgð sem konur axla á ólaunaðri vinnu inni á heimilunum og sú staðreynd að konur eru frekar í hlutastörfum en karlar. Þá hefur kynbundið náms ... - og starfsval einnig mikil áhrif, sem og völd almennt enda veljast konur síður til stjórnunarstarfa en karlar.
Mikill munur á heildarlaunum.
Þessi kynbundni launamunur á tekjum er til staðar bæði á almenna og opinbera vinnumarkaðinum. „Við sjáum ... rosalegan mun á heildarlaunum milli karla og kvenna. Það er oft minni munur á grunnlaunum en þegar maður horfir á yfirvinnu og önnur laun sem bætast ofan á grunnlaun, þá eykst bilið verulega,“ segir Sonja í viðtalinu við RÚV.
Aðspurð hvað skýri
54
Niðurstöður kjarakönnunar BSRB fyrir árið 2013 sýna fram á að meðal fólks í fullu starfi hafa konur ... innan bandalagsins að meðaltali 27% lægri laun en karlar. Meðallaun kvenna innan BSRB eru 346.724 krónur á mánuði á meðan meðal mánaðarlaun karla eru 474.945..
Kynbundinn ... niðurstöðum könnunarinnar eru grunnlaun kvenna í fullu starfi innan BSRB 298.976 krónur á mánuði á meðan grunnlaun karla eru 345.900. Konur innan BSRB hafa að meðaltali 13,6% lægri grunnlaun en karlar ... . .
Grunnlaun karla hafa hækkað um 6,9% á milli ára en 5,8% hjá konum ... ..
Heildarlaun kvenna á árinu 2013 eru aftur á móti 346.724 krónur á mánuði en heildarlaun karla eru 474.945. Þá er miðað við laun fyrir fullt starf. Konur innan BSRB hafa 27% lægri heildarlaun en karlar
55
gegn konum í Róm. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Freyja Steingrímsdóttir sóttu þingið fyrir hönd BSRB ... og leggur áherslu á hlutverk kvenna innan veggja heimilisins. Launamunur kynjanna fari ekki minnkandi, kynbundið ofbeldi fer vaxandi ef eitthvað er og tekin hafi verið skref til að þrengja að rétti kvenna að þungunarrofs. Ítalska verkalýðshreyfingin ... , og lagði þar áherslu á samstöðu og kraft kvenna til að unnt sé að ná árangri þegar kemur að því að draga úr launamisrétti og útrýma kynbundnu ofbeldi. Hún sagði þátttöku og frumkvæði verkalýðshreyfingarinnar skipta höfuðmáli í baráttunni ... í velferðarþjónustu og velmegun almennings. Hún sagði nauðsynlegt að auka hlutfall kvenna á evrópskum vinnumarkaði ekki bara jafnréttisbaráttunnar vegna, heldur einnig væri það efnahagsleg nauðsyn eins og dæmi sanna. Leggja ætti áherslu á að meta launaða og ólaunaða ... vinnu kvenna að verðleikum og tryggja foreldrum rétt til fæðingarorlofs og aðgengi að barnaumönnun að því loknu. . Þá var einnig rætt um leiðir til þess að auka veg kvenna og jaðarsettra hópa innan verkalýðshreyfingarinnar og aðgerðir
56
Atvinnutekjur hinsegin karla eru 30% lægri en gagnkynhneigðra karla á ársgrundvelli en hverfandi munur mælist hjá hinsegin konum. Aðeins um helmingur hinsegin fólks á vinnumarkaði er að fullu opið með hinseginleika sinn á vinnustöðum og tæplega ... við gagnkynhneigða karla en gagnkynhneigðir karlar eru langtekjuhæsti hópurinn á vinnumarkaði. Karlar og konur eru aðgreind til þess að kynbundinn launamunur hafi ekki áhrif á niðurstöður, en þó er mikilvægt að hafa launamuninn í huga. Munurinn er hverfandi ... hjá hinsegin konum í samanburði við gagnkynhneigðar konur. En vert er að hafa í huga að konur eru lægst launaðar á íslenskum vinnumarkaði og atvinnutekjur kvenna eru um 21% lægri en karla samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands.
57
Samtök kvenna af erlendum uppruna og Orkuveita Reykjavíkur hlutu jafnréttisviðurkenninguna fyrir árið 2013. „Það er ekki nóg að virða jafnréttið ... á öllum sviðum. Hún sagði ákvörðunina um að veita Samtökum kvenna af erlendum uppruna vera góða áminningu um að jafnrétti snýst um fleira en jafnrétti kynjanna. Mismunun geti verið af ýmsum toga og gegn henni verði alltaf að berjast. Hún minntist í þessu ... ..
Samtök kvenna af erlendum uppruna voru stofnuð árið 2003 með þann tilgang að sameina konur sem sest hafa að á Íslandi og ljá hagsmuna ... - og áhugamálum þeirra rödd. Markmið samtakanna er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins. Á þeim rúmlega 10 árum sem samtökin hafa starfað hafa þau sannað tilgang sinn, staðið vörð um réttindi kvenna ... af erlendum uppruna með stuðningi og fræðslu og komið í veg fyrir félagslega einangrun þeirra með því að veita þeim tækifæri til þess að aðlagast íslenskri menningu á eðlilegan hátt. Þær konur sem koma að samtökunum hafa auk þess unnið óeigingjarnt og ötult
58
plastpoka.
Morðið á Giuliu hefur leitt til öldu fjöldamótmæla um alla Ítalíu gegn útbreiddum feðraveldishugmyndum sem eru rót misréttis og ofbeldis gegn konum. Fjölmörg deila á samfélagsmiðlum orðum Elenu, systur Guiliu sem bendir ... á að feðraveldismenning ofbeldis gegn konum og stjórnun á lífi kvenna normalíseri hættulega framkomu og hegðun karla í garð kvenna. Hún nefnir jafnframt að fyrrverandi kærastanum sé oft lýst sem skrímsli. Það sé hann hins vegar ekki vegna þess að skrímsli er frávik ... lífi kærustunnar eða kalla á eftir konum úti á götu með kynferðislegum undirtón. Það að slík hegðun sé samþykkt af samfélaginu er liður í vandanum og ýti undir ofbeldi gegn konum.
Einhver kunna að spyrja sig hvaða erindi umræða um skrímsli ... og ofbeldi gegn konum á Ítalíu eigi við Jafnréttisparadísina Ísland. Ein vísbending þess að ofbeldi gegn konum sé útbreitt og normalíserað í íslensku samfélagi líkt og um allan heim er að um 40% kvenna hafa orðið fyrir kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi ... á ævinni hér á landi. Fatlaðar konur, konur af erlendum uppruna og trans konur eru líklegri en aðrar konur til að vera beittar ofbeldi. Sjöttu hverri stúlku í tíunda bekk grunnskóla hefur verið nauðgað af jafnaldra og 58% unglingsstúlkna hafa orðið
59
Rannsóknir sem gerðar hafa verið á launamun kynjanna sýna að laun karla eru almennt hærri en laun kvenna. Þessi kynbundni launamunur er meðal annars tilkominn vegna kynskipts vinnumarkaðar og þeirrar staðreyndar að konur og karlar gegna ... mismunandi störfum. Laun eru almennt lægri hjá þeim starfsstéttum þar sem konur eru í meirihluta en bent hefur verið á að konur frekar en karlar vinna í nánum samskiptum við annað fólk sem veldur bæði tilfinningalegu álag og skapa óáþreifanleg verðmæti ... verðmæti, en um 98 prósent sjúkraliða eru konur. Rekja má stóran hluta launamunar til kynskipts vinnumarkaður og kynjaskekkju í mati samfélagsins á hefðbundnum kvenna- og karlastörfum.
Lífseig samfélagssýn.
Vanmat á störfum kvennastétta ... karlastörf og illa launuð kvennastörf sé eðlilegur þáttur í samfélagsgerð okkar. Krafan um að greiða skuli konum og körlum jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf er hins vegar bæði eðlileg og sanngjörn og undarlegt að baráttan fyrir launajafnrétti hafi staðið yfir ... , var starfshópur um endurmat á störfum kvenna skipaður. Starfshópurinn hefur nú skilað tillögum sínum og leggur til að stofnaður verði aðgerðahópur um launajafnrétti. Aðgerðarhópurinn fengi meðal annars það hlutverk að greina vandann með því að setja af stað
60
Alþekkt er að menntun kvenna hefur aukist verulega á Íslandi síðustu ár og atvinnuþátttaka þeirra hefur jafnframt vaxið gríðarlega. Þátttaka karla við heimilisstörf og umönnun barna hefur því miður ekki aukist að sama skapi. Stytting á vinnutíma ... er lykilþáttur í að leiðrétta þessa stöðu kvenna á vinnumarkaði og til að auka líkur á að lífið verði fjölskylduvænna.
Sjúkraliðafélag Íslands hefur árum saman beitt sér fyrir styttingu vinnuvikunnar og litið til þess að jafna þurfi stöðu kynjanna ... á vinnumarkaði. Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og í niðurstöðum þeirra má sjá að konur bera þungan af heimilishaldi, og að samanlagður vinnutími kvenna í vinnu og á heimili er 30% lengri en hjá körlum ... . Þá hafa kannanir verið gerðar um ástæðu þess að konur og karlar vinna hlutastörf. Algengast er að konur vinna hlutastörf vegna þeirrar ábyrgðar sem þær taka á fjölskyldunni, en enginn karlmaður nefndi þá ástæðu. Almennt séð velja karlar að vinna hlutastörf ... tilraunaverkefnis ríkisins og BSRB sem sett var af stað vorið 2017 kemur fram að styttri vinnutími hefur jákvæð áhrif á vinnu og daglegt líf. Konur upplifðu meira jafnvægi milli vinnu og einkalífs og meiri stuðning frá vinnufélögum en karlar. Eins upplifðu þær minni