41
Ný skýrsla Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins sýnir að staða þeirra sem starfa við ræstingar er verri en þeirra sem eru í öðrum störfum á öllum mælikvörðum.
Tæplega 6 af hverjum 10 sem starfa við ræstingar eiga erfitt með að ná ... endum saman og tæplega 2 af hverjum 10 búa við efnislegan skort. Þá er lægra hlutfall þeirra en fólks í öðrum störfum sem metur líkamlegt heilsufar gott (39% á móti 50%) og andleg líðan mælist sömuleiðis mun verri meðal þeirra sem starfa við ræstingar ... . Til viðbótar hafa þau sem starfa við ræstingar í meira mæli orðið fyrir réttindabrotum á síðastliðnum 12 mánuðum.
Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar.
„Við erum að tala hér um hóp fólks sem sinnir ... gríðarlega mikilvægum störfum sem að mælist með talsvert verri lífsskilyrði á öllum mælikvörðum en annað fólk á vinnumarkaði. Það er auðvitað óboðlegt og ljóst að þurfi að taka til hendinni til að tryggja fólki sem starfar við ræstingar ásættanleg launakjör
42
mismunandi störfum. Laun eru almennt lægri hjá þeim starfsstéttum þar sem konur eru í meirihluta en bent hefur verið á að konur frekar en karlar vinna í nánum samskiptum við annað fólk sem veldur bæði tilfinningalegu álag og skapa óáþreifanleg verðmæti ... fyrir samfélagið. Hefðbundin karlastörf hins vegar fela oft í sér sköpun á áþreifanlegum verðmætum. Þessi munur ýtir undir ólíkt virðismat á þessum störfum. Sjúkraliðastéttin er ein þeirra stétta sem vinnur í nánum samskiptum við fólk og skapar óáþreifanleg ... verðmæti, en um 98 prósent sjúkraliða eru konur. Rekja má stóran hluta launamunar til kynskipts vinnumarkaður og kynjaskekkju í mati samfélagsins á hefðbundnum kvenna- og karlastörfum.
Lífseig samfélagssýn.
Vanmat á störfum kvennastétta ... karlastörf og illa launuð kvennastörf sé eðlilegur þáttur í samfélagsgerð okkar. Krafan um að greiða skuli konum og körlum jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf er hins vegar bæði eðlileg og sanngjörn og undarlegt að baráttan fyrir launajafnrétti hafi staðið yfir ... , var starfshópur um endurmat á störfum kvenna skipaður. Starfshópurinn hefur nú skilað tillögum sínum og leggur til að stofnaður verði aðgerðahópur um launajafnrétti. Aðgerðarhópurinn fengi meðal annars það hlutverk að greina vandann með því að setja af stað
43
landsins til að taka upp samræmt starfsmatskerfi sem hafði það að markmiði framfylgja jafnlaunaákvæðum laga og tryggja starfsfólki sömu laun fyrir sömu eða jafnkrefjandi störf óháð kyni, vinnustað eða stéttafélagi. Þetta markmið er í samræmi ... við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og dómaframkvæmd um að mismunandi kjarasamningar réttlæti ekki launamun fólks í sama starfi.
Það eru mikil vonbrigði að deila þurfi um þennan sjálfsagða rétt fólks. Dæmi um störf sem eru talin jafnkrefjandi ... og þar með jafnverðmæt samkvæmt starfsmati eru frístundaleiðbeinandi, leiðbeinandi á leikskóla og skólaritari. Fólk sem starfar í þessum störfum er sem sagt á ólíkum vinnustöðum innan sveitarfélaga en sömu launum óháð því í hvaða stéttarfélagi þau eru. Það er algjörlega ... ljóst og hefur verið það í fjöldamörg ár að fólk í sömu störfum eigi að fá sömu laun, enda hefur það verið framkvæmdin hingað til.
Sveitarfélögin fóru ekki ein í þetta verkefni að meta störfin með starfsmati heldur er það samstarfsverkefni ... hjá sveitarfélögum þekkir vel til starfsmatsins og veit sem er að það á að geta treyst því að þau fái sömu laun og aðrir fyrir sömu eða sambærileg störf. Þetta traust er rofið og sveitarfélögin virðast ekki átta sig á því hvaða afleiðingar það mun hafa til framtíðar
44
en til uppsagnar kemur.
Reglur um áminningarferli opinberra starfsmanna má finna bæði í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og kjarasamningum starfsmanna sveitarfélaga. Þar segir að hafi starfsmaður sýnt í starfi sínu óstundvísi eða aðra ... vanrækslu, óhlýðni við löglegt boð eða bann yfirmanns síns, vankunnáttu eða óvandvirkni í starfi, hefur ekki náð fullnægjandi árangri í starfi, hefur verið ölvaður að starfi eða framkoma hans eða athafnir í því eða utan þess þykja að öðru leyti ósæmilegar ... , óhæfilegar eða ósamrýmanlegar starfinu skuli vinnuveitandi veita honum skriflega áminningu. Áður en slík ákvörðun er tekin skal þó gefa starfsmanni kost á að tala máli sínu ef það er unnt.
Ákvörðun um að veita starfsmanni áminningu ... . Áminning skal vera skrifleg og þar tilgreint hverjar afleiðingarnar verða bæti starfsmaður ekki ráð sitt, en afleiðingar geta verið þær að starfsmanni sé sagt upp störfum. Það er því skylt að veita áminningu ef uppsögn má rekja til atvika er að varða ... starfsmanninn, en ef um er að ræða hagræðingu í rekstri þarf ekki að gæta að áminningarferli.
Tafarlaus uppsögn getur verið réttlætanleg.
Við vissar aðstæður getur verið réttlætanlegt að starfsmanni sé vikið fyrirvaralaust úr starfi, hafi
45
BSRB hefur sent frá sér ályktun vegna ákvörðunar Kópavogsbæjar um að lækka laun karlmanns sem hafði hærri laun en kona í jafn verðmætu starfi í kjölfar úrskurðar kærunefndar jafnréttismála. Hér að neðan má einnig nálgast samatekt á úrskurði ... jafnréttismála .
.
Stjórn BSRB mótmælir þeirri ákvörðun Kópavogsbæjar að lækka laun karlmanns sem hafði hærri laun en kona í jafn verðmætu starfi í kjölfar úrskurðar kærunefndar ... sinn. .
.
Með fordæmi sínu er Kópavogsbær að koma þeim skilaboðum áleiðis að sæki fólk rétt sinn til jafnra launa og niðurstaðan er þeim í vil, þá verði brugðist við því með því að lækka launa samanburðaraðila í sambærilegu starfi. Þetta er alveg ný nálgun ... við hann. Þannig getur Kópavogsbær sýnt í verki að bæjarfélagið vinni af heilum hug að því að uppræta kynbundinn launamun í stað þess að beita fólk valdníðslu ef það leitar sjálfssagðra réttinda sinna til jafnra launa fyrir jafn verðmæt störf.
Nýlegur úrskurður kærunefndar jafnréttismála nr. 1/2014, A gegn Kópavogsbæ, varðar konu sem taldi að brotið hefði verið gegn jafnréttislögum þar sem að hún og karl sem einnig starfaði hjá bænum nytu mismunandi launakjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf
46
BSRB óskar eftir að ráða sérfræðing í samskiptum og miðlun í fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði og sjálfstæði í áhugaverðum verkefnum.
Sérfræðingur BSRB í samskiptum og miðlun ber ábyrgð ... aðilum sem taka þátt í þjóðfélagsumræðunni fyrir hönd bandalagsins.
Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf í hröðu og spennandi umhverfi. Tækifæri til vaxtar og aukinnar ábyrgðar og að hafa áhrif á umræðu um lífskjör og mannréttindi á Íslandi ... á vefumsjón, samfélagsmiðlum og útgáfu
Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða yfirgripsmikil reynsla af miðlun upplýsinga
Starfið krefst ríkrar samskiptafærni, skipulagshæfileika, gagnrýnnar hugsunar, hugmyndaauðgi og að geta unnið hratt ... undir álagi
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024. Umsókn um starfið ... þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfsemi BSRB og hvernig umsækjandi uppfylli hæfniskröfur starfsins. Við hvetjum öll kyn til að sækja um. . Hægt er að sækja um starfið
47
Starfsmaður sem hefur þurft að láta af störfum vegna veikinda og fengið lausnarlaun getur fengið starf hjá sama atvinnurekanda nái hann heilsu á ný, þrátt fyrir lausnarlaunin. Um það hefur verið deilt en nú hefur þessi skilningur BSRB ... verið staðfestur af dómstólum og með áliti umboðsmanns Alþingis.
Ef starfsmaður hefur lengi frá vegna veikinda og ekki er fyrirséð að hann nái aftur heilsu sinni innan tiltekins tíma getur verið farin sú leið að veita honum lausn frá störfum. Um slíkt gilda ... ákvæði kjarasamninga um lausnarlaun, en þá skal starfsmaður almennt halda föstum launum í þrjá mánuði og því hefur verið litið svo á að lausnarlaun jafngildi á sinn hátt launum í uppsagnarfresti, ef starfsmaður þarf að láta af störfum heilsu sinnar ... lengi frá vinnu og hann átti rétt til launa í veikindum og í þriðja lagi ef starfsmaður óskar sjálfur eftir lausn frá störfum þar sem hann telst varanlega ófær um að gegna starfinu heilsu sinnar vegna.
Í sinni einföldustu mynd má segja ....
Álitamál komið upp.
Undanfarin ár hafa komið upp álitamál þar sem atvinnurekendur opinberra starfsmanna hafa talið lausnarlaun jafngilda því að starfsmenn geti ekki fengið aftur störf hjá sama eða öðrum opinberum atvinnurekanda, ef hann endurheimtir
48
Formannafundur NFS, Norræna verkalýðssambandsins, kaus í gær Magnús Gissler í starf framkvæmdastjóra sambandsins. Gissler hefur talsverða reynslu af störfum stéttarfélaga og mun ... hann formlega hefja störf hjá NFS á vormánuðum þegar hann hefur lokið skyldum sínum á núverandi vinnustað..
NFS eru stærstu samtök launafólks á Norðurlöndum með um 9 milljónir félagsmanna ... . BSRB tekur virkan þátt í starfi NFS og mun m.a. koma að því að halda fund NFS hér á landi í maí næstkomandi. Fundurinn mun fara fram á Stykkishólmi og von er á forystufólki helstu heildarsamtaka launafólks á Norðurlöndum á fundinn, bæði á opinberum
49
sem hann tekur eftir og getur trúnaðarmaður gert kröfu um að atvinnurekandi bæti úr slíkum málum, þegar tilefni er til.
Trúnaðarmenn njóta að nokkru leyti verndar gegn uppsögn úr starfi. Verndin er til þess að tryggja að trúnaðarmaður geti sinnt sínu ... starfi og sínum skyldum án þess að eiga á hættu að missa starf sitt vegna þeirra. Verndin nær fyrst og fremst til þeirra starfa sem tengjast trúnaðarmannastarfinu en ekki daglegra starfa hans á vinnustaðnum. Ef atvinnurekandi þarf að fækka starfsfólki ... skal trúnaðarmaður jafnframt sitja fyrir um að halda sínu starfi.
Samkvæmt samkomulagi um trúnaðarmenn er trúnaðarmönnum tryggð þau mikilvægu réttindi að geta sótt málþing, fundi, ráðstefnur og námskeið í allt að eina viku á ári án skerðingar á reglubundnum
50
Magnús Már Guðmundsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB. Hann tekur við starfinu af Helgu Jónsdóttur, sem lét af störfum um áramótin. Magnús hefur verið borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúi frá árinu 2014 en mun óska eftir leyfi ... frá störfum á fundi borgarstjórnar í næstu viku.
„Það eru spennandi tímar hjá BSRB eins og annars staðar í verkalýðshreyfingunni og ég hlakka til að starfa með öflugu fólki innan bandalagsins og í aðildarfélögum þess,“ segir Magnús Már. „Barátta ... á fréttastofu Vísis.is og Bylgjunnar að námi loknu en hóf störf sem kennari í Menntaskólanum í Kópavogi árið 2011. Hann var kjörinn varaborgarfulltrúi í Reykjavíkurborg árið 2014, varð tímabundið borgarfulltrúi árið 2016, en hefur verið varaborgarfulltrúi ... aftur frá árinu 2017.
„Það er mikill fengur fyrir okkur hjá BSRB að fá Magnús Má til liðs við okkur,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. „Magnús kemur með mikla reynslu með sér til starfa, til að mynda hefur hann stýrt tilraunaverkefni
51
Björnsdóttir, formaður starfshóps um endurmat á störfum kvenna og hagfræðingur BSRB.
Hvað felst í virðismati starfa?. Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdastýra Jafnlaunastofu.
Konur búa enn við launamisrétti 60 árum ... erlendar rannsóknir sýna að ein skilvirkasta aðgerðin til að stuðla að jöfnum launum fyrir jafnverðmæt störf felst í virðismati starfa. Konur og karlar vinna ólík störf á ólíkum vinnustöðum og því er næsta skref að útvíkka samanburðinn til að meta megi ... heildstætt virði ólíkra starfa sem heyra undir sama atvinnurekanda en unnin eru á mismunandi vinnustöðum.
Starfshópur forsætisráðherra, sem BSRB, BHM og KÍ áttu sæti í, um endurmat á störfum kvenna skilaði ... upp þekkingu, prufa sig áfram í nýjum leiðum að virðismati og búa til verkfæri til að leiðrétta skakkt verðmætamat kvennastarfa á grundvelli tillagnanna. Aðgerðarhópurinn hefur hafið störf og vinnur um þessar mundir að þróunarverkefni um endurmat á virði
52
Virðismat starfa er forsenda þess að launajafnrétti náist á Íslandi, þetta kom fram á á opnum fundi Forsætisráðuneytisins um jafnrétti á vinnumarkaði í morgun, 20. mars..
Á undanförnum árum hafa rannsóknir leitt í ljós ... að meginástæða launamunar kynjanna sé hinn kynskipti vinnumarkaður og vanmat á störfum kvenna. Í nýlegri rannsókn á launamun karla og kvenna frá Hagstofunni segir : „Kynbundin skipting vinnumarkaðarins í störf og atvinnugreinar skýrir að miklu leyti þann ... launamun sem enn er til staðar.“ Laun eru almennt lægri í störfum sem konur gegna að miklum meirihluta, líkt og í heilbrigðisþjónustu, við menntun og félagsþjónustu, en störfum þar sem karlar eru í meirihluta. Aðgerðahópur um launajafnrétti ... og jafnrétti á vinnumarkaði, sem starfað hefur frá árinu 2021, kom a fót þróunarverkefni um mat á virði starfa til að greina hvaða þættir það eru sem einkenna kvennastörf og kunna að vera vanmetnir í því skyni að útrýma launamun sem skýrist af kynskiptum ... vinnumarkaði og kerfisbundnu vanmati á hefðbundnum kvennastörfum. Eitt af markmiðum þróunarverkefnis um virðismat starfa var að búa til verkfæri/kerfi sem gæti fangað jafnvirðisnálgun jafnréttislaga og stuðlað að launajafnrétti kynjanna. Sonja Ýr Þorbergsdóttir
53
Þar fræddist Christina um stefnu BSRB, íslenska efnahagskerfið og komandi kjarasamninga svo eitthvað sé nefnt..
Þá fræddi Christina starfsfólk BSRB um áherslur sínar í starfi norræna ... verkalýðssambandsins, hvernig hún vildi sjá samtökin þróast á næstu árum og hver sameiginleg markmið verkalýðsfélaga á Norðurlöndum eru að hennar mati..
Christina tók nýverið við starfi ... framkvæmdastjórn NFS eftir að Lóa Brynjúlfsdóttir ákvað að snúa til annarra starfa. Christina hefur síðustu vikur verið að kynnast aðildarfélögum sambandsins og mun í næsta mánuði sitja fyrsta stjórnarfund NFS eftir að hún tók við embætti. Að baki NFS eru um 9 ... milljónir félagsmanna á Norðurlöndum sem starfa bæði á opinberum og almennum vinnumarkaði
54
COVID-19 heimsfaraldurinn virðist hraða þeirri þróun á vinnumarkaði sem spáð hefur verið á komandi árum þar sem störfum innan ákveðinna starfsgreina mun fækka á meðan ný störf verða til í öðrum geirum.
Á undanförnum árum ... hefur því verið spáð að miklar breytingar verði sem hafi það í för með sér að störfum muni fækka innan ákveðinna starfsgreina. Þetta mun gerast í kjölfar tæknibreytinga og aukinnar gervigreindar. Þá er viðbúið að störf á ýmsum sviðum verði ótryggari vegna óljósara ... ráðningasambands og skertra réttinda. Á móti er því spáð að ný störf verði til, meðal annars tengd notkun tölvu- og hátækni, viðbrögðum við hlýnun jarðar og þróun í átt að grænu hagkerfi. Allt krefst þetta nýrrar hugsunar og nýrra vinnubragða sem kalla á ný ... eða breytt störf. Þá verður aukin þörf fyrir starfsfólk innan heilbrigðis- og félagsþjónustu vegna fjölgunar aldraðra og áherslu á hærra þjónustustig.
Þessar breytingar munu hafa í för með sér hættu á að ákveðnir hópar fólks muni standa verr að vígi ... á vinnumarkaði en aðrir, einkum eldra fólk sem hefur ekki lokið mikilli formlegri menntun og sinnir einhæfum störfum. Fólk með lengri menntun og sérhæfðari starfsreynslu stendur betur að vígi og munu sumir hverjir hafa hag af þessum breytingum
55
Hrannar Már Gunnarsson hefur hafið störf sem lögfræðingur BSRB. Hann tekur við starfinu af Döllu Ólafsdóttur sem hefur horfið til annarra starfa. Hrannar mun sinna verkefnum á sviði vinnuréttar og veita aðildarfélögum BSRB ráðgjöf um túlkun laga
56
BSRB stóð fyrir fundi um virðismat starfa með formönnum og starfsfólki aðildarfélaga sl. miðvikudag.
Helga Björg Ragnarsdóttir og Rósa Björk Bergþórsdóttir hjá Jafnlaunastofu sveitarfélaga kynntu virðismat og virðismatskerfi, áskoranir ... störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir fólk óháð kyni.
Þrátt fyrir það að lög um launajafnrétti hafi verið í gildi í nærri 65 ár er launamunur enn töluverður hér á landi.
Kynskiptur ... í staðalímyndir kynjanna. Ólaunuð vinna kvenna sem áður fór fram inni á heimilum er því minna metin en launuð vinna karla sem yfirfærist á störfin þegar þau flytjast út af heimilum og inn á mennta- og heilbrigðisstofnanir. Þannig er kynskiptur vinnumarkaður ein ... til að vera við fátæktarmörk á eldri árum en karlarnir.
Virðismat og virðismatskerfi.
Virðismatskerfi eru kerfi til að meta með kerfisbundnum hætti innbyrðis vægi starfa út frá þeim kröfum sem störf gera til starfsfólks ... þegar lagt er mat á virði starfa.
Til að styðja við innleiðingu og framkvæmd jafnlaunareglna hefur Alþjóðavinnumálastofunin (ILO) gefið út leiðbeiningar með áherslu á mat á virði starfa og þróun matskerfa sem eru eins laus við kynjaskekkju
57
á að vinnumarkaðurinn sé mjög kynskiptur þegar litið sé til atvinnugreina og starfa og það sé meginástæða kynbundins launamunar. Laun séu að meðaltali lægri í stéttum þar sem konur eru í meirihluta og að þær stéttir heyri margar undir opinbera geirann ... þeirra um jafnlaunaákvæði í stofnskrá stofnunarinnar árið 1919. Það var í fyrsta sinn sem gerð var krafa um að greiða skuli konum og körlum jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf. Það þótti mun róttækari krafa en krafan um sömu laun fyrir sömu vinnu þar sem hún felur ... í sér að heimilt er að bera saman ólík en jafnverðmæt störf. Það er umhugsunarefni að okkur hafi ekki tekist að framfylgja betur kröfunni um jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf líkt og Ísland skuldbatt sig til að gera með fullgildingu jafnlaunasamþykktar ILO fyrir 63 ... . Þá er einnig grunnt á úreltum hugmyndum um fyrirvinnuhlutverk karla.
Vanmat á störfum kvennastétta byggir almennt ekki á ásetningi um að mismuna skuli kynjunum eða meðvitaðri hlutdrægni heldur er það afleiðing af sögulegum, menningarlegum ... um endurmat á störfum kvenna hefur birt tillögur sínar um aðgerðir
58
kynjanna. Í því felst meðal annars að konur og karlar gegna ólíkum störfum á vinnumarkaði og kynjaskipting milli starfsgreina er áberandi. Konur eru í miklum meirihluta starfsfólks á opinberum vinnumarkaði líkt og í heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu ... og menntakerfinu. Laun karla eru þó alltaf hærri en kvenna óháð því hvort þeir starfa á almennum eða opinberum vinnumarkaði.
Launamunur kynjanna er staðreynd ... og með jafnlaunavottun en ekki þvert á vinnustaði. Fram til þessa hefur því lítil sem engin áhersla verið lögð á að vinna gegn launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði s.s. að meta þá þætti í störfum kvennastétta sem gjarnan eru vanmetnir líkt og sköpun ... að því að útrýma launamisrétti. Fjölmargar erlendar rannsóknir sýna að ein skilvirkasta aðgerðin til að stuðla að jöfnum launum fyrir jafnverðmæt störf felst í virðismati starfa. Konur og karlar vinna ólík störf á ólíkum vinnustöðum og því er næsta skref að útvíkka ... samanburðinn til að meta megi heildstætt virði ólíkra starfa sem heyra undir sama atvinnurekanda en unnin eru á mismunandi vinnustöðum.
Í kjölfar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninga aðildarfélaga BSRB og ríkis
59
að stjórnvöld meti umönnunarhagkerfið að verðleikum og viðurkenni vægi þess í heildarhagkerfinu. Stefnumótun á sviði efnahagsstjórnunar þurfi að taka mið af því.
Umönnunarhagkerfið.
Störf innan umönnunarhagkerfisins hafa í gegnum ... tíðina almennt verið ólaunuð og unnin af konum inni á heimilunum. Þessu þarf að breyta og tryggja að störfin séu fjármögnuð, skipulögð og framkvæmd af hinu opinbera. Umfang og mikilvægi umönnunarstarfa á heimsvísu endurspeglar að um grundvallarþjónustu ... er að ræða sem stuðlar að inngildandi hagvexti og sjálfbærri þróun. Hugtakið umönnunarhagkerfi byggir á skilgreiningu ILO og felur í sér ólaunuð störf innan heimilanna, líkt og umönnun barna, veikra ættingja, þjónustu við fatlað fólk eða eldra fólk ... , og formleg launuð störf á vinnumarkaði, svo sem innan menntastofnana, í félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu, þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk..
Aukið jafnrétti kynjanna.
Með því að breyta áherslum á þann veg ... að ólaunuð störf innan umönnunarhagkerfisins verði hluti af formlegum vinnumarkaði aukast möguleikar kvenna til að taka þátt í launaðri vinnu, atvinnuþátttaka eykst og konur þurfa síður að leita í hlutastörf. Það vinnur gegn fátækt kvenna og stuðlar
60
Sjúkraliðar eru ómissandi hlekkur í keðju heilbrigðiskerfisins. Starfið er mjög gefandi og fjölbreytt en reynir líka á og getur verið virkilega krefjandi. Starfsaðstæður eru oft á tíðum erfiðar og getur álagið því orðið meira en gott þykir ... . Þá eru dæmi um að mjög víða, til dæmis á hjúkrunarheimilum og í heimahjúkrun, stendur sjúkraliðum ekki til boða að vinna meira en 80 prósent hlutastarf einmitt vegna þess að vinnuveitendur telja að 100 prósent starf í vaktavinnu vera of íþyngjandi ... . Það er ekki síst vegna þessara þátta sem við stöndum frammi fyrir skorti á sjúkraliðum og að nýliðun inn í fagið gengur of hægt. Skorturinn veldur auknu álagi á þá sem starfa í faginu, kulnun hefur farið vaxandi og eru mörg dæmi þess að sjúkraliðar hafi hrakist ... úr starfi vegna hennar. Þessi staða hefur legið lengi fyrir og kemur engum sem til þekkir á óvart.
Í kjaraviðræðum Sjúkraliðafélags Íslands, sem samninganefnd BSRB leiðir, er stytting vinnuvikunnar ein meginkrafan, enda eru afleiðingar af miklu ... snýr að bættum starfsskilyrðum, þannig að þeim sé gert kleift að vinna 100 prósent starf án þess að gjalda fyrir það með minnkandi starfsþreki og heilsufari sínu.
Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir víða um land, hafa stytt vinnuvikuna