201
BSRB leggst gegn því að skattar verði lækkaðir á hátekjufólk, eins og boðað er í tillögu að fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nú liggur fyrir Alþingi. Þá er bent á aðra mikilvæga þætti sem gera þarf ráð fyrir í áætluninni í
202
Skipta verður ávinningi af tækniframförum með réttlátum hætti með jöfnuð að leiðarljósi segja formenn norrænna bandalaga launafólks sem eiga aðild að Norræna verkalýðssambandinu, NFS.
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, er ein fimmtán formanna aðildarfélaga NFS sem skrifuðu grein sem birtist í Fréttablaðinu nýverið um áhrif stafrænnar tækni á
203
Með samstöðunni hefur íslenskt launafólk unnið mikla sigra á undanförnum árum og áratugum. Sú samstaða hefur ekki orðið til úr engu. Við sýnum samtakamáttinn með því að fjölmenna í kröfugöngu á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins á 1. maí.
BSRB hvetur alla félagsmenn til að fjölmenna í kröfugöngu og baráttufundi í sínu bæjarfélagi. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, mun halda ræðu á baráttufundi í Reykjanesbæ og munu félagar í aðildarfélögum bandalagsins sýna styrk sinn víða um la
204
Aðeins rúmlega einn af hverjum 100 nemendum í grunnnámi við íslenska háskóla leggur stund á starfsmiðað nám. Í Finnlandi er nær annar hver nemandi á sama stigi í starfstengdu námi. Þetta kom fram í erindi Runólfs Ágústssonar frá Ráðgjöf og verkefnastjórnun á menntadegi BSRB, sem var haldinn í síðustu viku.
Í erindi sínu fjallaði Runólfur um fagháskólanám og möguleika félagsmanna BSRB til að afla sér frekari menntunar með því að sækja slíkt nám. Hann gagnrýndi þá miklu áherslu sem ísle
205
Bjarg íbúðafélag ætlar að byggja 75 íbúðir á Akureyri á næstu árum og hefur þegar fengið vilyrði fyrir lóð fyrir að minnsta kosti 18 íbúðir við Guðmannshaga í Hagahverfi. Skrifað var undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu íbúðanna á Akureyri í gær.
Akureyrarbær verður þar með fyrsta bæjarfélagið utan höfuðborgarsvæðisins til að úthluta lóðum til Bjargs og leggja félaginu til 12 prósenta stofnframlag. Lóðum fyrir íbúðirnar 75 verður úthlutað á næstu þremur árum.
Samkomulagið und
206
Við búum í ríku samfélagi og höfum efni á að reka gott heilbrigðiskerfi, sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, á opnum fundi BSRB á mánudag. Hann sagði Íslendinga vel geta sett sambærilegt hlutfall af landsframleiðslu í heilbrigðismál og þjóðirnar í kringum okkur.
„Á endanum er þetta alltaf spurning um það hvernig samfélagi við viljum búa í,“ sagði Kári á fundinum. Hann hefur barist fyrir því að framlög til heilbrigðismála verði stóraukin hér á landi. Um 87 þúsu
207
Við minnum á opinn fund BSRB um heilbrigðismál sem fer fram í hádeginu í dag, 9. október. Frummælandi á fundinum verður Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og áhugamaður um heilbrigðiskerfið
208
Samstaðan hefur skilað íslensku launafólki miklu á undanförnum áratugum. Þá samstöðu sýnum við með því að mæta í kröfugöngu á baráttudegi verkalýðsins.
BSRB hvetur félagsmenn sína til að fjölmenna í kröfugöngu og á baráttufundi hvar sem þeir eru á landinu.
Bandalagið tekur þátt í kröfugöngu í Reykjavík. Safnast verður saman á horni Laugavegar og Snorrabrautar klukkan 13:00 og hefst kröfuganga klukkan 13:30. Útifundur á Ingólfstorgi verður settur klukkan 14:10.
Dagskrá
209
E fnt verður til málþings laugardaginn 18. apríl kl. 14 í tengslum við sýninguna MENN sem nú stendur yfir í Hafnarborg. Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands (RIKK) skipuleggur málþingið en þar koma fræðimenn og samfélagsrýnar saman og ræða efni frá sjónarhóli karla- og jafnréttisfræða
210
„Okkur tókst að byggja upp samfélag þar sem jöfnuður fólksins var settur framar öllu – kerfi sem veitti fólki jafnari tækifæri, óháð efnahag, fjölskylduaðstæðum og búsetu. Eins og sakir standa erum við að þróast frá þessari samfélagsgerð yfir í samfélag aukinnar misskiptingar og ójafnaðar. Grunngildum okkar er ógnað og það munum við ekki sætta okkur við,“ sagði Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, í 1. maí ræðu sinni á Ing
211
Fullbókað er á fræðslufund BSRB í tengslum við starfslok sem fram fer mánudaginn 3. febrúar 2014 kl. 15:15 í húsnæði BSRB að Grettisgötu 89, 1. hæð. .
Fyrir þá sem ekki hafa bókað sig eða komast ekki á staðninn verður hægt að fylgjast með fræðslufundinum á vefnum á slóðinni
212
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, var gestur í Vikulokunum á Rás 1 á laugardaginn var. Gestir Hallgríms Thorsteinssonar í þættinum voru ásamt Elínu Björgu þeir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, og Árni Snævarr, upplýsingafulltrú SÞ í Brussel..
Meðal þess sem fjallað var um í þættinum voru nýársávörp forseta Íslands og forsæ
213
Um 230 fulltrúar launafólks og launagreiðenda komu saman á Nordica í gær á vinnufundi um Betri vinnutíma í vaktavinnu til að bera saman bækur, greina hvaða lærdóm má draga af vinnutímabreytingunum og ræða hvar helstu áskoranir og tækifæri liggja.
Dagskráin hófst með ávarpi Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara. Þá fór verkefnastjórn Betri vinnutíma yfir vinnutímabreytingarnar, innleiðingu og eftirfylgni og Kolbeinn Guðmundsson, formaður matshóps kynnti niðurstöður þeirra mælinga sem
214
Formannaráð BSRB kom saman til fundar í Stykkishólmi dagana 17. og 18. október.
Meginefni fundarins var að ræða væntanlegar kröfur BSRB gagnvart stjórnvöldum í aðdraganda kjarasamninga.
Fundurinn hófst með stuttri yfirferð á stefnu bandalagsins og síðan tók við stefnumótunarvinna og umræður undir stjórn Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanns BSRB. Markmiðið var að draga fram grunn að helstu kröfum BSRB á stjórnvöld í aðdraganda kjarasamninga.
Í fyrsta hluta vinnunnar var ræ
215
Nýlega birtust niðurstöður úr stórri rannsókn sem staðfestir að þriðjungur kvenna á íslenskum vinnumarkaði hefur orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í vinnunni. Fyrsta #metoo bylgjan hófst haustið 2017 og strax í kjölfarið tóku verkalýðshreyfingin og kvennahreyfingin höndum saman og kröfðust aðgerða af hálfu stjórnvalda og atvinnurekenda.
Viðbrögð stjórnvalda hingað til.
Stjórnvöld hafa skipað tvo starfshópa síðan #metoo byltingin hófst. Fyrri hópurinn lét gera ran
216
BSRB hefur auglýst tvö laus störf á skrifstofu bandalagsins laus til umsóknar. Um er að ræða nýja stöðu hagfræðings og stöðu kynningarfulltrúa.
Hagfræðingurinn mun annast greiningar á velsæld og efnahagsmálum og safna saman upplýsingum um vinnumarkaðinn með það að markmiði að byggja undir stefnumótun bandalagsins. Gerð er krafa um háskólapróf í hagfræði og marktæka reynslu af hagfræðistörfum. Þá er óskað eftir greiningarhæfni og góðu valdi á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga ásamt
217
Jafnréttismál eru kvikur málaflokkur þar sem þekkingu fleygir fram og viðmið breytast reglulega. Í kjölfarið verða oft til ný lög og nýjar reglur. Eitt af því sem hefur breyst undanfarin ár er að nú hefur fólk rétt til þess að skilgreina kyn sitt sjálft. Þetta breyttist með lögum um kynrænt sjálfræði sem tóku gildi um mitt ár 2019. Kynin eru því ekki lengur bara tvö, karl og kona, heldur þarf að gera ráð fyrir fólki sem skilgreinir sig fyrir utan hið hefðbundna kynjakerfi. Markmiðið er að bæt
218
Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna voru meðalatvinnutekjur kvenna 77,2 prósent af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 22,8 prósent lægri atvinnutekjur að meðaltali.
Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 6 klukkustundir og 10 mínútur miðað við fullan vinnudag frá klukkan 9 til 17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið klukkan 15:10.
Ný skýrsla forsætisráðherra sem unnin var í kjölfar loforðs stjórnvalda í tengslum við kjara
219
Tímarit útgefin af BSRB allt frá árinu 1944 eru nú komin á netið og aðgengileg á vef Landsbókasafnsins, timarit.is, eða verða sett þar inn bráðlega.
Prentuð eintök af tímaritunum hafa verið til í geymslum bandalagsins en erfitt hefur verið að veita félagsmönnum, fræðimönnum og öðrum áhugasömum aðgang að þeim í því formi. Því var ákveðið að gera átak í að skanna tímaritin inn í samstarfi við La
220
Lagt er til að aðgerðahópur stjórnvalda um launajafnrétti komi á fót þróunarverkefni um mat á virði starfa og þrói samningaleið um jafnlaunakröfur til að leiðrétta muninn. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um endurmat á störfum kvenna sem lögð hefur verið lögð fram til opin samráðs í Samráðsgátt stjórnvalda.
Hópurinn var skipaður 1. desember 2020 í kjölfar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninga milli ríkis og sveitarfélaga og aðildarféla