381
BSRB óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Skrifstofa BSRB verður opin á hefðbundnum afgreiðslutíma frá kl. 9 til 16 á milli jóla og nýárs. Lokað verður á gamlársdag en skrifstofan opnar svo aftur á nýju ári
382
Starfsfólk skrifstofu BSRB óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra páska..
Skrifstofa BSRB verður lokuð
383
Aðgengi að hreinu og góðu drykkjarvatni, beint úr krananum, telst sjálfsagt mál á Íslandi en það er ekki svo víða um heim. BSRB hefur, eins og önnur samtök launafólks víða um heim, barist fyrir því að óhindrað aðgengi almennings að neysluvatni ... verslunarvara með síaukinni einkavæðingu vatnsveita.
BSRB telur að vatnsveitur ætti að reka á félagslegum grunni og taka mið af almannahagsmunum til að tryggja rétt einstaklinga til nægilegs hreins vatns til drykkjar og hreinlætis á viðráðanlegu verði ... . Eins og fram kemur í stefnu bandalagsins í umhverfismálum, sem mótuð var á þingi BSRB haustið 2015, þarf bæði að tryggja að auðlindir landsins verði í almannaeigu og að aðgengi
384
BSRB tekur þátt í spennandi tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar um styttingu vinnuvikunnar sem hófst nú um mánaðarmótin. Það hefur lengi verið á stefnuskrá BSRB að stytta vinnuvikuna til að koma megi ... starfsstaðanna. Fulltrúi BSRB, Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri bandalagsins, situr í stýrihópi verkefnisins ásamt fulltrúum Reykjavíkurborgar og bindur hópurinn vonir við að hægt verði að taka stærri skref þegar tilraunaverkefninu lýkur svo koma megi
385
sem hafa mikilvægustu innsýnina í kerfið og hvernig best er að móta það til framtíðar.
Fulltrúar BSRB og starfsmenntasjóða BSRB á fundinum voru Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar stéttarfélags, Fríða Rós Valdimarsdóttir, sérfræðingur í fræðslumálum ... hjá BSRB, Karl Rúnar Þórsson, formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar og Ragnhildur Bolladóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Sjúkraliðafélagi Íslands.
Starfshópur á vegum félags og vinnumarkaðsráðherra um heildarendurskoðun framhaldsfræðslunnar
386
Hvernig heilbrigðiskerfi vill íslenska þjóðin? Vill almenningur treysta áfram á opinbera heilbrigðiskerfið eða auka einkareksturinn? Þessum spurningum og fleirum verður svarað á opnum veffundi BSRB um heilbrigðismál miðvikudaginn 26. maí ... , prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, kynna helstu niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem unnin var í samvinnu við BSRB. Þar var meðal annars spurt um ólík rekstrarform í heilbrigðisþjónustunni, fjármögnun hennar og fleira. Að loknu erindi Rúnars mun ... hann svara spurningum frá fundargestum. Fundarstjóri verður Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Hægt er að skrá þátttöku á Facebook-viðburði
387
bæjarstarfsmannafélög innan BSRB kjarasamninga sína nema SfK. Við upphaf kjarasamningsviðræðna þessa árs lá ljóst fyrir að ekki yrði samið um heildarendurskoðun kjarasamninga. Þannig yrði kjarasamningum framlengt með breytingum sem væru sambærilegar í öllum ... kjarasamningum aðildarfélaga BSRB og samningur farmlengdur til eins árs. .
Við undirritun kjarasamnings í júlí sl. hjá SfK var þeim aftur á móti tilkynnt að fella ætti út yfirlýsingu ... ..
Stjórn BSRB sendi nýverið frá sér ályktun þar sem skorað var á Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Kópavogsbæjar að ganga frá framlengingu kjarasamninga við SfK með sama hætti og gert var hjá öðrum aðildarfélögum BSRB. Nú er ljóst
388
Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB, Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs, Ingibjörg Hjaltadóttir sérfræðingur í öldrunarhjúkrun á Landspítala og Erna Indriðadóttir fjölmiðlakona munu allar flytja erindi en ítarlegri dagskrá ... málþingsins má sjá hér að neðan..
Allir áhugasamir eru velkomnir á málþingið sem fer fram kl. 13 þann 13. október í húsi BSRB að Grettisgötu 89. Að loknum erindunum munu fyrirlesarar ... BSRB .
13:30 Aldursvæn Reykjavík. Hvað er nú það? – Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi og formaður velferðarráðs .
Fundarstjóri: Ágúst Bogason, kynningarfulltrúi BSRB
389
Verkföll samþykkt í sex sveitarfélögum til viðbótar.
Yfirgnæfandi meirihluti félaga BSRB í sex sveitarfélögum, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Árborg, Ölfus, Hveragerði og Vestmannaeyjum samþykkti boðun verkfalls ... í atkvæðagreiðslum sem lauk nú á hádegi. Því er ljóst að þungi færist í verkfallsaðgerðir BSRB félaga en verkfallsboðanir hafði þegar verið samþykkt í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi.
Í Hafnafirði samþykktu 95,36% verkfallsboðun ... virðist hafa verið löngu tilbúið í verkföll, fólk ætlar ekki að láta þetta misrétti yfir sig ganga ofan á allt og er tilbúið til að leggja niður störf til að knýja fram réttláta niðurstöðu“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um kosninguna ... . „Sveitarfélögin hafa þó enn tækifæri til að sjá að sér og koma til móts við starfsfólk sitt en hingað til hefur samningsviljinn verið enginn,“ sagði Sonja.
Yfir 1500 BSRB félagar leggja því að óbreyttu niður störf í maí og júní hjá tíu sveitarfélögum
390
vinnuvikunnar hefur verið ein af meginkröfum félagsmanna BSRB síðustu árin, sér í lagi í kjölfar hrunsins. „Þá fundum við að forgangsröðin var önnur hjá fólki, það vildi eiga meiri gæðatíma með sér og sínum,“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB ... vinnudagur geti komið niður á því hversu lengi fólk endist í starfi. Ef hægt væri að koma í veg fyrir örorku og veikindi með styttri vinnudegi gæti það vegið upp á móti mögulegum kostnaði við styttinguna.
Tilraunaverkefni sem BSRB og Reykjavíkurborg ... geta byrjað strax.
Stjórnendur fyrirtækja og stofnanna sem vilja hugsa út fyrir kassann þurfa ekki að bíða eftir því að samið verði um styttingu vinnuvikunnar í kjarasamningum. Tilraunaverkefni BSRB og Reykjavíkurborgar sýnir að atvinnurekendur ....
Lestu meira um baráttu BSRB fyrir styttingu vinnuvikunnar hér..
Smelltu hér til að horfa á umfjöllun Kveiks
391
BSRB mun ekki styðja frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna nema gerðar verði á því breytingar í meðförum Alþingis. . . Bandalagið telur frumvarpið ekki endurspegla það samkomulag sem bandalög ... opinberra starfsmanna gerðu við ríki og sveitarfélög. Í umsögn BSRB um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins er bent á að með minniháttar breytingum á frumvarpinu sé hægt að gera þær mikilvægu breytingar á lífeyrismálum ... . Það teljum við ekki tryggt eins og frumvarpið kemur frá ráðuneytinu og við því þarf Alþingi að bregðast,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB. Afstaða bandalagsins er sú sama og til fyrra frumvarps fjármálaráðherra, sem lagt var fram á þingi ... fyrir síðustu kosningar.
Ábyrgð nái til allra sjóðfélaga.
Í umsögn BSRB er þessi afstaða bandalagsins ítrekuð: „Samræming lífeyriskerfa milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins verður ekki gerð með skerðingu á réttindum núverandi ... því til fyrirstöðu að fara þessa leið. . Lesa má nánar um afstöðu BSRB
392
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, skrifar grein um stóru málin sem stjórnmálamönnum hefur orðið svo tíðrætt um í Fréttablaðið í dag. Greinin er einnig ... . Ekki eru allir sammála um hvaða mál það séu og því full ástæða til að benda á hvaða mál þola ekki lengur bið, að mati BSRB, óháð því hvaða flokkar mynda hér ríkisstjórn. .
Þannig hafa nú litið dagsins ljós tillögur um mikilvægar breytingar á lögum ... um fæðingarorlof. BSRB leggur þunga áherslu á að unnið verði áfram að þessum málum af krafti, og frumvarp lagt fyrir Alþingi til samþykktar sem fyrst. Engin ástæða er til annars en að ætla að góð samstaða verði um það á Alþingi að bæta stöðu nýbakaðra foreldra .... .
BSRB telur einnig mikilvægt að Alþingi ljúki umfjöllun um húsnæðisfrumvörp félags- og húsnæðismálaráðherra sem fyrst. Bandalagið bindur miklar vonir við að framboð af leiguhúsnæði fyrir launafólk aukist verulega samþykki Alþingi frumvörpin .... .
Meira fé í heilbrigðismálin.
Bandalagið styður áform um þak á greiðslur sjúklinga fyrir þjónustu heilbrigðiskerfisins, þó ekki hafi verið tekin afstaða til frumvarps heilbrigðisráðherra sem hefur það að markmiði. BSRB leggst alfarið gegn
393
Fulltrúi úr stjórn Starfsmannafélags Kópavogs (SfK) ásamt lögfræðingi BSRB áttu á mánudaginn sl. fund hjá ríkissáttasemjara. Þar kom ... með lögfræðingi BSRB og forsvarsmanni frá Outcome, sem sá um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar, þar var tekin ákvörðun um að fresta fyrirhuguðu verkfalli um sinn og endurtaka atkvæðagreiðsluna. Þrátt fyrir að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar hafi verið afgerandi, telur ... ..
Stjórn SfK harmar jafnframt framkomu bæjarstjórnar Kópavogsbæjar í málinu. Ítrekað hefur meirihluti bæjarstjórnarinnar neitað að hitta stjórn SfK og formann BSRB vegna málsins. Fyrst var óskað eftir fundi vegna kjaradeilunnar áður en hún kom inn á borð ... ríkissáttasemjara, en meirihluti bæjarstjórnar hefur alltaf neitað að hitta fulltrúa SfK og BSRB en þess í stað vísað á samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga ( SNS ... )..
Það er krafa stjórnar SfK að bæjarstjórn Kópavogsbæjar leggi sitt af mörkum til að leysa megi kjaradeildu félagsins með farsælum og sanngjörnum hætti líkt og gert var hjá öðrum aðildarfélögum BSRB
394
réttinda. Heildarsamtök opinberra starfsmanna hafa tekið þátt í þeirri vinnu enda miklir hagsmunir í húfi. Það er skýr krafa BSRB að ef jafna á lífeyrisréttindi á milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins þurfi laun opinberra starfsmanna að hækka ... . .
„ BSRB mun ekki samþykkja neinar breytingar á lífeyriskjörum opinberra starfsmanna nema tryggt sé að ekki verði hróflað við þegar áunnum réttindum. BSRB tekur þátt í vinnunni við að búa til samræmt lífeyriskerfi til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri ... vinnumarkaði verið sambærileg. Það er því skýr krafa BSRB að komi til jöfnunar lífeyrisréttinda þarf að bæta opinberum starfsmönnum það upp í launum,“ segir Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB
395
Opinberir starfsmenn sætta sig ekki við áframhaldandi skeytingarleysi viðsemjenda nú þegar tíu mánuðir eru liðnir frá því kjarasamningar losnuðu. Félagar í BSRB, Bandalagi háskólamanna (BHM) og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) munu ... fjölmenna á fund í Háskólabíói klukkan 17 í dag til að krefjast þess að ríki og sveitarfélög gangi tafarlaust til samninga við starfsfólk sitt.
Á sama tíma munu félagsmenn BSRB, BHM og Fíh koma saman á baráttufundum víða um land og fylgjast ... til að við sýnum viðsemjendum okkar það. Nú munum við fylgja eftir okkar kröfum með aðgerðum,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Á baráttufundinum mun forystufólk opinberra starfsmanna kanna hug félagsmanna til þess að hefja þegar í stað ... undirbúning frekari aðgerða til að knýja viðsemjendur til þess að ganga til samninga.
Ræðumenn verða:.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands, fyrir hönd BHM ... Reykjavíkurdætrum taka nokkur lög.
. Fundir á landsbyggðinni.
Búið er að skipuleggja fundi á landsbyggðinni þar sem tekið verður við streymi frá fundinum í Háskólabíói. Félagar í aðildarfélögum BSRB, BHM og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
396
Árið sem nú er að líða litaðist af því að kjarasamningar aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá því í byrjun apríl. Bandalagið hefur því að meginstefnu til lagt vinnu sína og orku í að ná fram sameiginlegum kröfum aðildarfélaganna ... í kjaraviðræðunum gagnvart viðsemjendum og stjórnvöldum. En þó að kjarasamningarnir séu í forgrunni höfum við hjá BSRB sinnt fjölmörgum öðrum mikilvægum málum.
Við höfum barist fyrir auknum jöfnuði og réttlæti en þar ber hæst krafan um að allir geti lifað ... á vinnumarkaði, undirbúið okkur fyrir framtíðarvinnumarkaðinn og unnið að loftslagsmálunum, svo eitthvað sé nefnt.
Tilraunaverkefnin varða leiðina.
Það áttu væntanlega fáir von á því þegar samningar þorra aðildarfélaga BSRB losnuðu í byrjun apríl ... að samningar yrðu enn lausir í lok árs, níu mánuðum síðar. Það eru gríðarleg vonbrigði hversu hægt hefur gengið að semja og ljóst að þolinmæðin hjá félagsmönnum aðildarfélaga BSRB er löngu þrotin.
Markmið okkar í kjarasamningsgerðinni eru skýr ... vinnuvikunnar án launaskerðingar verið eitt af stærstu áherslumálum BSRB. Það ætti ekki að hafa komið viðsemjendum á óvart, enda höfðum við unnið að tilraunaverkefnum um styttingu vinnuvikunnar með Reykjavíkurborg frá árinu 2015 og með ríkinu frá árinu 2017
397
Sumrin eru frábær árstími til að njóta lífsins með fjölskyldu og vinum enda flestir sem taka sér sumarfrí á þessum tíma árs. Þó það sé gott að eiga gæðastundir á sumrin er markmið BSRB að fjölga þeim allt árið um kring. Stór áfangi í þá átt ... áður en snúa þarf aftur til vinnu.
Fjölskylduvænt samfélag hefur verið eitt af stóru baráttumálum BSRB lengi. Fjallað er um þetta mikilvæga mál í stefnu bandalagsins sem samþykkt var á 45. þingi ... BSRB haustið 2018..
Stór þáttur í baráttunni fyrir fjölskylduvænna samfélagi hefur verið krafan um styttingu vinnuvikunnar. Nú hefur þeim áfanga verið náð að samið hefur verið um allt að fjögurra stunda styttingu í dagvinnu og að lágmarki ... fjórar og hámarki átta hjá vaktavinnufólki.
Í haust ætti vinna við undirbúning á styttingu vinnuvikunnar að ná hámarki á vinnustöðum hjá launafólki sem er i aðildarfélögum BSRB. Samtal innan vinnustaða um styttingu hjá dagvinnufólki á að klárast 1 ... en dagvistun ekki tryggð.
Einnig náðist mikilvægur áfangi í baráttu BSRB fyrir fjölskylduvænna samfélagi á árinu þegar ákveðið var að lengja fæðingarorlofið úr 9 mánuðum í 12. Þá stendur eftir krafan um að réttur barna til öruggrar gjaldfrjálsrar
398
Áherslan á félagslegt réttlæti er eitt af því sem sameinar BSRB og Alþýðusamband Ísland í baráttu fyrir betra samfélagi. Mikilvægt er að heildarsamtök launafólks standi saman og styðji við hvort annað í baráttunni, sagði Elín Björg Jónsdóttir ... , formaður BSRB, í ávarpi sínu við setningu 42. þings ASÍ í morgun. . „Stundum er eins og við í forystu BSRB og ASÍ tölum í sitthvora áttina í mikilvægum málum, en þegar nánar er að gáð eru miklu fleiri atriði sem sameina okkur en sundra,“ sagði ... Elín Björg. „Við erum sammála um mikilvægi þess að berjast fyrir kjörum og réttindum launafólks í landinu. Þar eigum við að standa saman og styðja við bakið hvort á öðru í baráttunni.“. . Elín Björg sagði BSRB og ASÍ eiga það sameiginlegt ... félagar. . Samstaða er yfirskrift þessa fertugasta og annars þings ASÍ og það á vel við. Hún er mikilvægt afl fyrir allt launafólk og við eigum þar samleið BSRB og ASÍ. . Stundum er eins og við í forystu BSRB og ASÍ tölum í sitthvora ... hvort á öðru í baráttunni. . Mikilvægi heildarsamtaka á borð við ASÍ og BSRB eru augljós í því að móta sýn um hvernig samfélag við viljum byggja. En það er ekki nóg að hafa markmiðin á hreinu, við verðum líka að vinna sameiginlega að því að komast
399
Félagsmenn í aðildarfélögum BSRB og ASÍ hafa tekið vel við sér og fjölmargar umsóknir hafa borist Bjargi íbúðafélagi. Rétt er að minna sérstaklega ... þá sem búa á landsbyggðinni á möguleikann á að sækja um.
Bjarg íbúðafélag, sem stofnað var af ASÍ og BSRB, hefur það að markmiði að byggja upp og leigja tekjulágum félögum þessara tveggja heildarsamtaka íbúðir. Félagið er ekki rekið í hagnaðarskyni.
Samkvæmt samantekt frá Bjargi, sem kynnt var á fundi stjórnar BSRB síðastliðinn föstudag, hafa á fimmta hundrað umsóknir þegar borist félaginu. Mikill meirihluti umsókna, nærri níu af hverjum tíu, eru frá fólki sem nú býr á höfuðborgarsvæðinu ....
Þeir félagsmenn aðildarfélaga BSRB sem hafa hug á að sækja um íbúð hjá Bjargi eru hvattir til að nota sér reiknivél á vef Bjargs og að skila inn umsókn fyrir lok júlí
400
Forsvarsmenn Bjargs íbúðafélags, sem stofnað var af BSRB og ASÍ, hafa undirritað viljayfirlýsingar um uppbyggingu á leiguíbúðum í Sveitarfélaginu Árborg og Sveitarfélaginu Ölfusi.
Áformað er að reisa 44 íbúðir í Björkustykki á Selfossi ... sem fyrst.
„Þetta er afar jákvætt skref enda hefur verið ríkur vilji til þess hjá Bjargi að byggja líka upp leiguíbúðir á landsbyggðinni,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB og stjórnarmaður í Bjargi íbúðafélagi.
„Við sjáum ... að það er þörf fyrir íbúðir af þessu tagi víða og mikilvægt að hraða uppbyggingu eins og mögulegt er svo hægt verði að flytja inn sem fyrst,“ segir Elín.
Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignastofnun stofnuð af BSRB og Alþýðusambandi Íslands árið 2016 ... . Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði, félagsmönnum í BSRB og ASÍ, aðgengi að hagkvæmu, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.
Uppbygging er þegar hafin á tveimur stöðum