Leit
Leitarorð "samtök-fyrirtaekja-a-veitingamarkadi"
Fann 528 niðurstöður
- 181„Árin eftir hrun hafa verið launafólki mjög erfið, megin byrðar efnahagshrunsins hafa verið bornar af launafólki sem hefur mátt sætta sig við hækkun nánast allra tölfræði þátta sem mælikvarðar ná yfir – nema kannski launa sinna,“ sagði Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB á ráðstefnu BSR og ASÍ í morgun. Umfjöllunarefnið að þessu sinni var „Hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu“. Ráðstefnan stendur nú yfir á Grand hóteli í Reykjavík og hægt er að fylgjast með henni hér á heimasíð
- 182Launamunur á milli opinbera og almenna markaðarins er 17% samkvæmt kjarakönnun SFR og samanburði við VR félaga. Borin voru saman laun á milli félagsmanna í sambærilegum störfum og sýndi það sig að enn er almenni markaðurinn talsvert á undan hinum opinbera í launaþróun.. Mikill munur er enn á grunnlaunum félaganna, þar sem meðalgrunnlaun SFR félaga er rúmar 336 þúsund en meðal grunn
- 183Undanfarið hafa reglulega verið sagðar fréttir af því í fjölmiðlum að gera eigi breytingar á lífeyriskerfinu og m.a. hækka lífeyristökualdur. Rétt er að taka fram að ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum og slíkar aðgerðir yrðu aðeins hluti af viðmeiri breytingum á lífeyriskerfi landsmanna.. Frá 2009 hefur verið unnið að breytingum á lífeyriskerfi landsins sem miðar að samræmingu
- 184Aðalfundur BSRB fer fram frá kl. 10-14:45 í dag föstudaginn 16. maí 2014 að Grettisgötu 89. Hægt er að fylgjast með fundinum á vef BSRB og upplýsingar um það má finna hér að neðan. . Fyrir hádegi verða flutt tvö erindi sem eru opin fjölmiðlum og öðrum sem áhuga hafa. Fyrra erindið flytur Rúnar Vilhjálmsson , prófessor í félagsfræði við hj
- 185Fjölmennur aðalfundur SFR fór fram í gær þar sem ný stjórn félagsins var kosin. Árni Stefán Jónsson var sjálfkjörinn sem formaður til næstu þriggja ára samkvæmt nýjum lögum félagsins. Auk hans sitja áfram þau Bryndís Theódórsdóttir frá Vinnumálastofnun, Hildur Kristín Ásmundsdóttir frá Isavia, Jóhanna Sóley Gunnarsdóttir frá Landspítala, Jóhanna Vilhjálmsdóttir frá Fiskistofu, Salóme Berglind Guðmundsdóttir frá Fangelsismálastofnun og Sigurður H. Helgason
- 186Jafnréttisnefnd BSRB býður til hádegisverðarfundar um mismunun á íslenskum vinnumarkaði þann 11. mars n.k. kl 11:50-13. . Á fundinum flytur Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur á Jafnréttisstofu, erindið „Ekki benda á mig...“ – Um mismunun á íslenskum vinnumarkaði. Í erindi sínu mun Ingibj
- 187Styrktarsjóður BSRB vill benda sjóðsfélögum á að í umbeðnu áliti ríkisskattstjóra til Styrktarsjóðs BSRB varðandi skattleysi styrkveitinga segir m.a.:. „Ef stéttarfélag/launagreiðandi greiðir íþrótta- eða heilsuræktarstyrk þá má halda honum utan staðgreiðslu/skattlagningar að hámarki 50.000 kr. á ári ef lagðir eru fram fullgildir reikningar um íþróttaiðkun/þátttöku og ef lagðir eru
- 188BSRB minnir félagsmenn sína á Styrktarsjóð BSRB sem tekur nú við styrkumsóknum fyrir árið 2014. Aðildarfélög að styrktarsjóðnum eru öll félög BSRB nema SFR, Landsamband lögreglumanna og Póstmannafélag Íslands sem reka sína eigin styrktarsjóði. Upplýsingar um sjóði þeirra er að finna á heimsíðum viðkomandi félaga sem finna má hér
- 189Fjöldi námsskeiða er nú í boði fyrir meðlimi stéttarfélaganna bæði hjá Starfsmennt og Framvegis. Þá eru einnig nokkur námsskeið í boði hjá Vinnueftirlitinu sem gjarnan eru niðurgreidd af stéttarfélögum og atvinnurekendum. Hér að neðan má finna tengla og helstu upplýsingar um námsframboð hjá þessum stofnunum á vorönn. . Á vef Starfsmenntar hefur verið
- 190Málþing um mikilvægi öflugrar heilbrigðisþjónustu og þann mannauð sem þar starfar verður haldið á vegum BSRB að Grettisgötu 89, í dag 31. október 2013. Dagskráin hefst kl. 13:00 með setningu formanns BSRB og svo mun heilbrigðisráðherra flytja ávarp. Ráðstefnan er öllum opin en dagskrá hennar má sjá hér að neðan.. Til að fylgjast
- 191Fréttastofa Ríkisútvarpsins vakti í gær athygli á því að vaxtabætur munu eftir áramótin lækka um allt að helming. „Það er auðvitað afleitt að það skuli vera útlit fyrir að það skuli vera afnám á þessu bráðabirgðaákvæði ekki síst vegna þess að það mun bitna á þeim sem síst skyldi það er tekjulágu fólki með háa skuldastöðu,“ sagði Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, þegar fréttastofa Rúv leitaði viðbragð
- 192Verkfallsaðgerðir BSRB hefjast á mánudaginn. Fundur BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara í dag skilaði engum árangri. Ekki hefur verið boðaður annar fundur í ljósi þess hversu langt ber á milli deiluaðila. Formaður BSRB segir það vonbrigði að engan samningsvilja sé að skynja af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Við vonuðumst eftir einhverjum samningstón á þessum fundi en hann var ekki að finna. Það stefnir því enn í umfangsmiklar verkfallsaðgerðir
- 193BSRB og ASÍ bjóða til veffundar þar sem kynntar verða niðurstöður spurningakönnunar Vörðu – Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins um stöðu launafólks. Meðal þess sem fram kemur í niðurstöðunum er að ríflega þriðjungur launafólks glímir við erfiða fjárhagsstöðu og hefur fjárhagsstaðan versnað frá síðasta ári. Fundurinn fer fram miðvikudaginn 19. janúar kl. 13:00 og er öllum opinn. Hægt verður að
- 194Trúnaðarmenn hafa veigamiklu hlutverki að gegna. Þeir eru fulltrúar stéttarfélags á vinnustaðnum og þeim ber að gæta að réttindum samstarfsmanna sinna. Hlutverk trúnaðarmanna getur verið krefjandi og er mikilvægt að trúnaðarmenn séu ávallt vel meðvitaðir um réttindi sín og annarra á vinnustaðnum. Með það að leiðarljósi er trúnaðarmönnum tryggð þau mikilvægu réttindi að geta sótt málþing, fundi, ráðstefnur og námskeið í allt að fimm vinnudaga á ári án skerðingar á reglubundnum launum
- 195Ný skýrsla Kjaratölfræðinefndar um kjarasamningslotuna sem hófst vorið 2019 og er senn að ljúka, þróun efnahagsmála og launa verður kynnt fimmtudaginn 28. október næstkomandi. Um er að ræða haustskýrslu Kjaratölfræðinefndar, sem er samstarfsvettvangur um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. BSRB á fulltrúa í nefndinni. Skýrslan verður kynnt á fjarfundi sem hefst klukkan 10 fimmtudaginn 28. október næstkomandi. Fundinum verður
- 196Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um opinberra starfsmenn á undanförnum vikum. Hefur því meðal annars verið haldið fram, að opinber rekstur sé að þenjast út með tilheyrandi fjölgun opinberra starfsmanna, og að launaþróun þeirra leiði launamyndun á atvinnumarkaði. Báðar þessar fullyrðingar eiga sér enga stoð. Laun á almenna markaðnum hærri. Því hefur einnig verið haldið fram undanfarið að opinberir starfsmenn hafi hækkað í launum mun meira en starfsmenn á almenna markaðnum. Þ
- 197Nú þegar stjórnvöld hafa ákveðið að rýmka sóttvarnaraðgerðir og verulega hefur dregið úr smitum innanlands hefur BSRB-húsið við Grettisgötu 89 verið opnað á ný frá og með deginum í dag. Húsið var lokað fyrir öðrum en starfsfólki frá 25. mars vegna aðgerða til að stemma stigu við útbreiðslu kórónaveirunnar hér á landi. Við biðjum gesti í húsinu að virða merkingar um sóttvarnir sem settar hafa verið upp, notast við grímur, halda sig við tveggja metra regluna og vera duglega að n
- 198Á undanförnum vikum hefur mikið verið deilt um virði samkeppniseftirlits fyrir íslenskt samfélag og hagsæld í landinu. Gagnrýnendur Samkeppniseftirlitsins hafa gengið svo langt að tala fyrir varanlegri veikingu stofnunarinnar með tilheyrandi afturför, ójöfnuði og kjaraskerðingu fyrir íslenskan almenning. Í ljósi þessa viljum við, hagfræðingar þriggja heildarsamtaka á vinnumarkaði með samanlagt um 175.000 félagsmenn, árétta mikilvægi samkeppniseftirlitsins og virkrar samkeppni fyrir hagsæld ís
- 199Vegna hertra sóttvarnaraðgerða hefur BSRB-húsinu verið lokað fyrir almennum heimsóknum í ótilgreindan tíma þar til slakað verður á aðgerðum stjórnvalda á nýjan leik. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Símtölum og tölvupóstum er svarað á skrifstofutíma og hægt er að koma gögnum á Styrktarsjóð BSRB í gegnum vef sjóðsins. Símanúmer og netföng félaga sem starfa í húsinu má finna hér að neðan. ENGLISH. The BSRB-house is currently closed to
- 200Ný greining sérfræðingahóps verkalýðshreyfingarinnar um áhrif COVID-faraldursins á launafólk eftir atvinnugreinum verður kynnt á veffundi þriðjudaginn 15. desember klukkan 11. Dregin verður upp mynd af áhrifum kófsins 2020 á atvinnugreinar og launafólk í landinu í samanburði við áhrifin af hruni íslenska fjármálakerfisins fyrir rúmum áratug