41
Nýrrar ríkisstjórnar bíða mörg erfið verkefni og rétt er að óska henni velfarnaðar í störfum sínum. Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar gefur visst tilefni til bjartsýni en auðvitað er það svo að það eru verkin sem skipta máli. . Það er ánægjulegt að ný ríkisstjórn hafi uppi góð áform í jafnréttismálum. Í stefnuyfirlýsingunni segir að til standi að vinna að jafnrétti á vinnumarkaði, meðal annars með því að skylda fyrirtæki með fleiri en 25 starfsmenn til að taka upp jafnlaunavottun
42
Þeir flokkar sem mynda munu ríkisstjórn þurfa að standa vörð um grundvallargildi á borð við jöfnuð og félagslegt réttlæti að mati formannaráðs BSRB. Á fundi ráðsins, sem nú er að ljúka, var samþykkt ályktun um stjórnarmyndun. . Í ályktunni er einnig hvatt til þess að áhersla verði lögð á uppbyggingu innviða samfélagsins og bent á að allir flokkar hafi verið sammála um þá þörf í kosningabaráttunni. Formannaráðið telur ljóst að forgangsraða verði í þágu heilbrigðis- og menntamála. Þá
43
Umsækjendur um störf hjá ríki og sveitarfélögum sem fá ekki starfið þrátt fyrir að þeir séu hæfustu umsækjendurnir eiga mjög erfitt með að sækja rétt sinn. Þetta kom fram í máli Trausta Fannars Valssonar, dósents við lagadeild Háskóla Íslands, á starfsdegi réttindanefndar BSRB í dag. . Trausti sagði það skyldu hins opinbera að ráða hæfasta einstaklinginn í auglýst starf. Leggja eigi mat á alla umsækjendur og velja þann hæfasta til starfans. Telji umsækjandi sem ekki fær starfið að
44
Stjórn Norræna verkalýðssambandsins (NFS) skorar á ríkisstjórnir Norðurlandanna og á Norrænu ráðherranefndina að leita þegar eftir áhrifum í G20-hópnum. Þar eiga sæti 19 þjóðríki auk Evrópusambandsins, en tilgangur hópsins er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika í heiminum. . Í grein sem birt er í stærstu dagblöðum Norðurlandanna, þar á meðal í Fréttablaðinu, segja fulltrúar norrænu verkalýðshreyfingarinnar að norræna líkanið geti orðið fyrirmynd annarra og því sé ekki ásættanleg
45
Stjórn BSRB hefur nú til skoðunar hvort bandalagið mun koma að stofnun íbúðafélags ásamt Alþýðusambandi Íslands (ASÍ). Félagið mun verða leigufélag sem rekið verður án hagnaðarsjónarmiða. Skýrast mun á næstu vikum hvort, og þá hvernig, BSRB mun taka þátt í stofnun íbúðafélagsins. .
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, kynnti áform um stofnun íbúðafélagsins við hátíðarhöld vegna 100 ára afmælis ASÍ um helgina. Félagið mun hafa það hlutverk að byggja fjölda leiguíbúða og leigja lágtekjufólk
46
Styrktarsjóður
BSRB vill benda félagsmönnum á að til að geta fengið styrk vegna ársins 2015 er
nauðsynlegt að skila umsóknum og fylgigögnum í síðasta lagi föstudaginn
18. desember nk
47
Þingi BSRB var slitið á föstudaginn síðasta þar sem hátt í 240 félagsmenn BSRB komu saman m.a. til að vinna að stefnu bandalagsins til næstu þriggja ára. Unnið var í nokkrum málsstofum sem fjölluðu um ólík efni og vinnur skrifstofa bandalagsins nú að því að vinna úr niðurstöðum þeirra. Á næstunni verður stefna næstu þriggja ára gefin formlega út ásamt ályktunum þingsins.
BSRB vill koma á framfæri kærum þökkum til allra þingfulltrúa 44. þings bandalagsins, formönnum aðildarfélaga
48
Kjaraviðræður þriggja af fjölmennustu aðildarfélögum BSRB sem semja við ríkið eru hafnar að nýju eftir sumarleyfi. Formaður SFR segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að menn bíði átekta og fundað verði næstkomandi miðvikudag og fimmtudag í deilunni.
SFR er í samfloti við Sjúkraliðafélag Íslands (SLFÍ) og Landssamband lögreglumanna (LL) í kjaraviðræðunum en samningar flestra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá lokum apríl.
.
49
Ríkisstjórnin verður að bregðast við,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um stigmagnandi verðbólgu og spá sérfræðinga um frekari stýrivaxtahækkanir Seðlabankans.
Sonja Ýr gerir þetta að umtalsefni í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.
„Kvíða er farið að gæta á mörgum heimilum landsins vegna verðs á nauðsynjavörum og síhækkandi húsnæðiskostn
50
BSRB hefur barist fyrir því, eins og heildarsamtök launafólks víða um heim, að óhindrað aðgengi almennings að hreinu drykkjarvatni verði flokkað sem sjálfsögð mannréttindi sem allir eigi að njóta. Íslendingar eiga því að venjast að geta skrúfað frá næsta krana til að fá hreint drykkjarvatn en staðan er talsvert önnur víða í heiminum.
Samfélagslegt eignarhald á vatni er eitt frumskilyrðanna fyrir því að aðgangur að drykkjarvatni geti fallið í sama flokk og hver önnur mannréttindi. Anna
51
BSRB hefur verið tíðrætt um mikilvægi þess að gerð séu skil milli vinnu og einkalífs. Stytting vinnuvikunnar hefur það að markmiði að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að gera skil milli vinnu og einkalífs. Fyrir síðustu kjarasamningsgerð gerði bandalagið kröfu um að reglur yrðu settar í kjarasamninga um þessi skil. Að mati bandalagsins var þetta nauðsynlegt til þess að minnka til muna áreiti utan vinnutíma og tryggja að greitt sé sérstaklega fyrir það þe
52
Heimsfaraldurinn sem við erum nú loks farin að sjá fyrir endann á hefur verið gríðarleg þolraun fyrir íslenska heilbrigðiskerfið og það ótrúlega öfluga fólk sem þar starfar. Þrátt fyrir að þessi mikilvæga þjónusta hafi verið fjársvelt og starfsfólkið búið við óhóflegt álag áður en faraldurinn skall á stóðst hún prófið og skilaði landsmönnum í gegnum faraldurinn betur en flestir þorðu að vona.
Nú þegar við erum loksins farin að leyfa okkur að vona að það versta sé að baki hefst kunnugl
53
Starfsmaður sem hefur þurft að láta af störfum vegna veikinda og fengið lausnarlaun getur fengið starf hjá sama atvinnurekanda nái hann heilsu á ný, þrátt fyrir lausnarlaunin. Um það hefur verið deilt en nú hefur þessi skilningur BSRB verið staðfestur af dómstólum og með áliti umboðsmanns Alþingis.
Ef starfsmaður hefur lengi frá vegna veikinda og ekki er fyrirséð að hann nái aftur heilsu sinni innan tiltekins tíma getur verið farin sú leið að veita honum lausn frá störfum. Um slíkt gi
54
Hækka þarf atvinnuleysisbætur til að tryggja afkomu fólks sem misst hefur vinnuna vegna faraldurs kórónaveirunnar og hækka bætur almannatrygginga til öryrkja, sagði Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, í viðtali í Silfrinu í Sjónvarpinu í gær.
„Þegar við hjá BSRB veittum umsögn um fjárlögin sem nú eru í gildi vöruðum við við því að það væri verið að hækka atvinnuleysisbætur og lítið, sem og bætur almannatrygginga. Þær voru ekki hækkaðar til samræmis við kjarasamningsbundn
55
Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í þeim aðildarfélögum BSRB sem lokið hafa atkvæðagreiðslu um nýja kjarasamninga samþykktu samningana. Atkvæðagreiðsla stendur enn yfir eða er að hefjast hjá öðrum aðildarfélögum.
Atkvæðagreiðslu um samninga aðildarfélaga BSRB sem gerðir voru við Samband íslenskra sveitarfélaga er lokið og niðurstöðurnar farna að berast viðsemjendum og ríkissáttasemjara. Atkvæðagreiðslum nokkurra félaga um samninga við ríkið er einnig lokið. Atkvæðagreiðsla annarra f
56
Undanþágunefndir aðildarfélaga BSRB ákváðu í gær að veita Landspítalanum og heilsugæslustöðvum tímabundna undanþágu frá verkfalli sem boðað hefur verið á mánudag og þriðjudag eftir að hættuástandi var lýst yfir vegna COVID-19 faraldursins.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir félögin taka ábyrga afstöðu, enda ekki ætlunin að valda almenningi hættu með aðgerðunum. „Þetta sýnir þó svart á hvítu hversu ómissandi okkar fólk er í almannaþjónustunni að heilu stofnanirnar eru ekki s
57
Við þekkjum öll merkin. Brandararnir sem skilja eftir sting í maga. Tvíræða hrósið. Grófa orðfærið. Útilokun frá verkefnum eða samstarfi. Óviðeigandi skilaboð í gegnum samfélagsmiðla, SMS eða tölvupóst. Starandi augnaráð upp og niður líkamann. Snertingu sem varir of lengi. Spurningar um líkamann eða kyn sem gerir viðtakanda orðlausa(n). Óþarflega mikil nálægð. Daður sem breytist í pressu um að látið sé undan vilja annars.
Allt eru þetta dæmi um kynbundna eða kynferðislega áreitni sé h
58
Frestur til að sækja um nám í Norræna lýðháskólanum í Genf, Genfarskólanum, á næsta ári rennur út þann 15. desember næstkomandi. Skólinn er ætlaður virkum félögum í stéttarfélögum sem hafa áhuga á alþjóðlegu samstarfi verkalýðshreyfingarinnar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi sótt fræðslustarf verkalýðshreyfingarinnar og þekki til starfsemi stéttarfélaganna og samtaka þeirra hér á landi. Aðild að Genfars
59
Fyrirtæki og stofnanir verða að veita starfsfólki sínu ákveðið svigrúm vegna fjölskylduaðstæðna samkvæmt ákvæðum kjarasamninga, þar með talið með því að verða við óskum starfsmanna um sveigjanleika eða minnkað starfshlutfall vegna fjölskylduaðstæðna.
Síðustu ár hefur mikið verið rætt um samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs. BSRB er með ítarlega stefnu í jafnréttismálum og leggur áherslu á að foreldrar hafi jafna möguleika á því að sinna umönnun barna sinna og eyða gæðatíma með fjöls
60
Það er mjög algengt að ekki sé brugðist við kvörtunum um kynferðislega áreitni innan vinnustaða, segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB, í forsíðuviðtali við Mannlíf í dag.
Sonja segir að BSRB hafi ekki fengið mjög mörg mál til umfjöllunar, en það geti helgast af því að fólk hafi ekki vitneskju um hvert það geti leitað. Hún segir eitt af verstu málunum sem hún hafi fengið til umfjö