Lífeyrismálin í lýðræðislegu ferli

Skoðun

Það er afar mikilvægur áfangi að BSRB og öðrum bandalögum opinberra starfsmanna hafi náð samkomulagi við ríki og sveitarfélög um nýtt lífeyriskerfi fyrir allt launafólk. Sú vinna hefur verið mikilvægur þáttur í að ná sátt á vinnumarkaði og bæta vinnubrögð við gerð kjarasamninga, skrifar Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, í grein í Fréttablaðinu í dag.

Þar rekur Elín Björg í stuttu máli feril málsins innan bandalagsins frá því allir formenn aðildarfélaga BSRB samþykktu að leggja í þessa vegferð árið 2010. Síðan þá hefur málið verið rætt á tveimur þingum bandalagsins, auk þess sem fjallað hefur verið um stöðuna og áherslur bandalagsins á öllum stærri fundum síðan.

Í greininni kemur fram að alltaf hafi niðurstaðan verið sú sama. Áherslur hafi verið skerptar og ákveðið að halda vinnunni áfram. Síðasti liðurinn í þessu lýðræðislega ferli var svo umfjöllun um drög að samkomulagi opinberra starfsmanna við ríki og sveitarfélög sem fjallað var um á fundi formannaráðs BSRB í Reykjanesbæ í byrjun september.

Formannaráðið, sem er æðsta vald bandalagsins milli þinga, greiddi að endingu atkvæði um málið. Alls greiddu formenn 22 aðildarfélaga af 26 atkvæði með tillögu um að fela formanni bandalagsins að undirrita samkomulagið. Það gerði Elín Björg í umboði formannaráðsins síðastliðinn mánudag.


Grein Elínar Bjargar má lesa í heild sinni hér að neðan.

Lýðræðisleg ákvörðun um lífeyrismál


Það er afar mikilvægt að bandalög opinberra starfsmanna hafi náð samkomulagi við ríki og sveitarfélög um nýtt lífeyriskerfi fyrir allt launafólk á Íslandi. Það er hluti af því markmiði að ná sátt á vinnumarkaði og bæta vinnubrögð við gerð kjarasamninga.

BSRB skrifaði undir samkomulag við ríki og sveitarfélög á mánudag, eins og önnur heildarsamtök opinberra starfsmanna. Með því samkomulagi er fyrirkomulagi lífeyrismála breytt og tekið upp nýtt kerfi þar sem allir launamenn hafa sömu réttindi.

Samhliða því hafa ríki og sveitarfélög skuldbundið sig til að leiðrétta launamun á milli opinbera markaðarins og hins almenna. Sú vinna á að taka að hámarki 10 ár og mun BSRB beita sér af fullum þunga til að tryggja að staðið verði við þann hluta samkomulagsins.

Þegar breytingar eru fram undan eru eðlilega margar skoðanir á því hvaða leið eigi að fara. Gríðarleg vinna liggur á bak við það samkomulag sem undirritað var á mánudag og hefur frá upphafi verið fjallað um það á lýðræðislegan hátt innan BSRB.

Allir formenn aðildarfélaga BSRB samþykktu árið 2010 að fara í þessa vegferð. Bandalagið hefur allt frá þeim tíma gætt hagsmuna núverandi sjóðsfélaga í lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna og þeirra sem síðar munu verða félagar.
Allt frá því þessi vegferð hófst hefur verið fjallað um stöðu viðræðnanna á fundum og þingum BSRB og áherslur bandalagsins skerptar og skýrðar. Sú vinna komst á lokapunkt þegar formannaráð BSRB, sem er æðsta vald þess milli þinga, fjallaði um málið í byrjun september.

Á fundi formannaráðsins var farið ítarlega yfir niðurstöðu í samningaviðræðum við ríki og sveitarfélög. Að því loknu fór fram atkvæðagreiðsla þar sem formenn 22 félaga af 26 samþykktu að fela forystu BSRB að skrifa undir samkomulagið.
Vinnunni er ekki lokið. BSRB mun sjá til þess að staðið verði við alla þætti samkomulagsins. Vinna við greiningu og leiðréttingu á launum er fram undan. Þar mun bandalagið halda áfram að gæta hagsmuna sinna félagsmanna.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?