BSRB hvetur félagsfólk og almenning til þess að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi um allt land - í þetta skipti á rauðum sokkum - í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins, 1. maí á Kvennaári 2025.
Í Reykjavík mun tilvísun í 1. maí 1970 setja sterkan svip á gönguna. Sá dagur markaði upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar þegar konur á rauðum sokkum mættu í kröfugöngu verkalýðsins með risastóra Venusarstyttu. Fjölmiðlar sögðu frá því að Rauðsokkahreyfingin hefði borið styttuna í óþökk fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar og nokkuð stapp var um hvort þær fengju að taka þátt í göngunni en eftir miklar samningaviðræður fengu þær á endanum að ganga aftast. Líklega grunaði engan þá að Rauðsokkahreyfingin ætti eftir að breyta sögu tuttugustu aldarinnar.
Nú, 55 árum síðar, býður fulltrúaráð verkalýðsins konum á rauðum sokkum að ganga fremst í kröfugöngunni á Kvennaári
2025.
Yfirskrift dagsins að þessu sinni er Við sköpum verðmætin.
DAGSKRÁ 1. MAÍ 2025
Reykjavík
Í Reykjavík fer kröfugangan af stað frá Skólavörðuholti kl 13:30 og hefst útifundur á Ingólfstorgi kl 14:00. Meira um dagskrá útifundarins hér.
- Fundarstýra: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir sviðshöfundur og listakona.
- Ræðumenn: Karla Esperanza Barralaga Ocón starfskona í umönnun, trúnaðarmaður og stjórnarmaður í Eflingu og Jóhanna Bárðardóttir rafveituvirki, rafvirki og trúnaðarmaður RSÍ.
- Rauðsokkur segja nokkur orð
- Fram koma: Mammaðín og Una Torfa.
Táknmálstúlkar: Margrét Baldursdóttir og Lilja Íris Long Birnudóttir
Dagskráin er textatúlkuð á ensku.
Að útifundi loknum býður BSRB gestum og gangandi í verkalýðskaffi að vanda á Grettisgötu 89 þar sem Kvennakór Reykjavíkur töfrar fram dýrindis veitingar.
Hafnarfjörður
Samstöðutónleikar Verkalýðsfélagsins Hlífar og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar í Bæjarbíói kl: 14:00.
- Fram koma: Bríet, Diljá, Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson
- Bæjarbíó opnar kl. 13:30
Akranes
Verkalýðsfélag Akraness, VR, FIT, Kennarasamband Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands og Sameyki standa fyrir dagskrá á baráttudegi verkalýðsins 1. maí á Akranesi.
Kröfuganga frá Þjóðbraut 1. kl. 14:00. Trommusveit TOSKA undir stjórn Heiðrúnar Hámundar leiðir gönguna.
Hátíðar- og baráttufundur í sal eldri borgara Dalbraut 4 að lokinni kröfugöngu.
- Ræðumaður: Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA
- Tónlistaratriði: Kvennakórinn Ymur
- Veitingar að hætti kórfélaga að dagskrá lokinni
- Biósýning fyrir börn. Bíóhöllin kl. 13:00 og kl. 16:00. Miðar á midix.is
Stykkishólmur
Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá á Fosshótel Stykkishólmi.
- Dagskráin hefst kl. 13:30
- Kynnir: Vignir Smári Maríasson formaður Vlf. Snæfellinga
- Ræðumaður: Valmundur Valmundsson formaður SSÍ
- Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Stykkishólms
- Skemmtiatriði: Lalli töframaður
- Fosshótel Stykkishólmi sér um kaffveitingar
Grundarfjörður
Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá í Samkomuhúsi Grundarfjarðar
- Dagskráin hefst kl. 14:30
- Kynnir: Sævör Þorvarðardóttir fulltrúi Sameykis stéttarfélags
- Ræðumaður: Valmundur Valmundsson formaður SSÍ
- Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Grundarfjarðar
- Skemmtiatriði: Lalli töframaður
- Kvenfélagið Gleym-mér-ei sér um kaffveitingar
Snæfellsbær
Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá í Klifi.
- Dagskráin hefst kl. 15:30
- Kynnir: Vignir Smári Maríasson formaður Vlf. Snæfellinga
- Ræðumaður: Valmundur Valmundsson formaður SSÍ
- Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Snæfellsbæjar
- Skemmtiatriði: Lalli töframaður
- Félag eldri borgara í Snæfellsbæ sér um kaffiveitingar
Borgarnes
Stéttarfélag Vesturlands og Kjölur standa fyrir hátíðar- og baráttufundi sem hefst í Hjálmakletti, Borgarnesi kl. 14:00.
12:00 bíó fyrir yngstu kynslóðina í Óðal – popp og svali í boði.
- Ávarp: Silja Eyrún Steingrímsdóttir, formaður Stéttarfélags Vesturlands
- Ræðumaður: Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdarstjóri Vörðu
- Ávarp, atriði frá Tónlistarskólanum í Borgarnesi, Bjarni Freyr Gunnarsson tekur lagið. Ræðu dagsins flytur Aleksandra Leonardsdóttir. Einnig koma fram Barnakórarnir og Jón Jónsson.
- Félögin bjóða samkomugestum upp á kaffihlaðborð að fundi loknum. Foreldrar og nemendur 9.bekkjar í Grunnskólans í Borgarnesi sjá um veitingar.
- 12:00 bíó fyrir yngstu kynslóðina í Óðali – popp og svali í boði
Búðardalur
Baráttufundur í Dalabúð hefst kl. 14:30.
- Ávarp dagsins flytur Sólrún Ýr Guðbjartsdóttir, kennari í Auðarskóla
- Kynnir: Þóra Sonja Helgadóttir, verkefnastjóri Kjalar í Stykkishólmi
- Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Auðarskóla
- Þorrakórinn tekur lagið
- Kaffihlaðborð að fundi loknum. Skátafélagið Stígandi sér um veitingar í umsjón Katrínar Lilju
Ísafjörður
Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu kl. 14:00 með Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi
- Hátíðardagskrá í Edinborg
- Ræðumaður dagsins: Bergvin Eyþórsson
- Tónlistaratriði: Fagranesið tekur nokkur lög og barnakór Tónlistarskólans 3. til 4. bekkur syngur.
- Pistill dagsins: Lísbet Harðar Ólafardóttir
- Maraþonmenn tala lagið
- Slysavarnardeildin Iðunn sér um kaffiveitingar í Guðmundarbúð að lokinni dagskrá í Edinborgarhúsinu.
- Bíó fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og kl. 16:00 - 10 líf
- Bíó fyrir eldri í Ísafjarðarbíói kl. 20:00 – The Fall Guy
Akureyri
Kröfuganga og hátíðardagskrá á Akureyri miðvikudaginn 1. maí
- 13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
- 14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu
- Kynnir er Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju
- Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna, Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM
- Hátíðarræða, Finnbjörn A. Hermannsson – forseti ASÍ
- Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum um Gosa
- Ívar Helgason tekur lagið
- Kaffihressing að dagskrá lokinni
- Pylsur, safi og andlitsmálning fyrir börnin.
Húsavík
Stéttarfélögin standa fyrir hátíðarhöldum 1. maí á Fosshótel Húsavík. Hátíðin hefst kl. 14:00. Boðið verður upp á veglegt kaffihlaðborð frá hótelinu, hátíðarræða, auk þess sem heimamenn í bland við góða gesti munu sjá um að skemmta gefstum með mögnuðum tónlistaratriðum.
- Ruth Ragnarsdóttir syngur Maístjörnuna við undirleik Ísaks M. Aðalsteinssonar
- Hátíðarræða: Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags
- Tónsmiðjan spilar og syngur nokkur lög
- Nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur flytja tónlist
- Ávarp: Ósk Helgadóttir, varaformaður Framsýnar stéttarfélags
- Geirmundarsveifla: Flytjendur Jónína Björt Gunnarsdóttir, Guðrún Arngrímsdóttir, Maja Eir Kristinsdóttir, Pétur Valgarð Pétursson og Grétar Örvarsson
Vopnafjörður
Félagsheimilinu Miklagarði – Gunnar Smári Guðmundsson flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Borgarfjörður eystri
Álfheimum – Lilja Björk Ívarsdóttir flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Seyðisfjörður
Félagsheimilinu Herðubreið - Kristján Eggert Guðjónsson flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Egilsstaðir
Hótel Héraði - María Von Pálsdóttir flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Reyðarfjörður
Heiðarbær – Eygló Halla Ingvadóttir flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Eskifjörður
Melbær- Jón Kristinn Arngrímsson flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Neskaupstaður
Hótel Hildibrand- Ásdís Helga Jóhannsdóttir flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Fáskrúðsfjörður
Glaðheimum –Pálína Margeirsdóttir flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Stöðvarfjörður
Grunnskólanum Stöðvarfirði – Sverrir Kristján Einarsson flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Breiðdalsvík
Hamar kaffihús - Guðný Harðadóttir flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Djúpivogur
Hótel Framtíð – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Hornafjörður
Heppa restaurant - Guðrún Ingimundardóttir flytur ávarp
- Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.
Selfoss
Kröfuganga hefst klukkan 11:00.
Lúðrasveit Selfoss og Hestamannafélagið Sleipnir leiða kröfugöngu frá Austurvegi 56 að Hótel Selfossi þar sem dagskrá og skemmtun fer fram.
- Kynnir: Helga Kolbeinsdóttir frá FOSS
- Ræðumaður: Halla Gunnarsdóttir, formaður VR
- Ræða námsmanns: María Friðmey Jónsdóttir, FSU
- Tónlistaratriði: Júlí og Dísa taka lagið
- Leikfélag Hveragerðis með lög úr Ávaxtakörfunni
- Fimleikadeildin sér um andlitsmálun
- Kaffi og veitingar
Hella
Opið hús VLFS 13:00 – 15:00.
Allir velkomnir
- Kynnir: Guðrún Elín Pálsdóttir
- Ávarp: Björg Bjarnadóttir, framkvæmdastýra SGS
- Tónlist: Fríða Hansen og Alexander Freyr
- Kvenfélagið Unnur sér um veitingar
- Blöðrur og sleikjó fyrir börnin
- 3. hæð í Miðjunni, Hellu
Reykjanesbær
Á þessum degi fögnum við því sem áunnist hefur í réttindabaráttu verkafólks og óskum öllum til hamingju með daginn. Í tilefni að 50 ára afmæli frá kvennafrídegi munu konur vera áberandi í dagskrá baráttufundarins.
Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félags- fólki og öðrum íbúum svæðisins á baráttu- fund í Stapa, Hljómahöll kl.14:00 til 16:00. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
- Húsið opnar kl. 14 og tekur lúðrasveit tónlistarskóla Reykjanesbæjar á móti fólki.
- Kynnir: Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK
- Ræðurmaður dagsins: Helga Margrét Jóhannesdóttir yfirhjúkrunarfræðingur
og Birgitta H Halldórsdóttir rithöfundur. - Tónlistaratriði: Fríða Dís tekur nokkur vel valin lög.
- Leikfélag Keflavíkur kemur með innslag og Kvennakór Suðurnesja slær botn í dagskrána.
Blönduós
Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi.
- Dagskráin hefst kl. 14:00
- Ræðumenn dagsins: Helga Margrét Jóhannesdóttir yfirhjúkrunarfræðingur og Birgitta H Halldórsdóttir rithöfundur.
- Afþreying fyrir börn,